9. janúar - Yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak, Hans Blix, staðfesti að engar sannanir hefðu fundist fyrir því að Írak ætti gereyðingarvopn.
22. janúar - Síðasta merkið frá geimkönnunarfarinu Pioneer 10 barst til jarðar úr 7,6 milljarða mílna fjarlægð frá jörðu.
24. janúar - Ráðstefnunni World Social Forum lauk í Porto Alegre í Brasilíu með ákalli um að hætt yrði að heyja fyrirbyggjandi stríð og að öryggisráðið beitti neitunarvaldi fyrir frið.
5. júlí - 12 létust þegar téténskir sjálfsmorðssprengjumenn gerðu árás á rokktónleika í Tusjino í nágrenni Moskvu.
6. júlí - Cosmic Call-verkefnið sendi skilaboð frá Jevpatoria á Krímskaga til fimm stjarna: Hip 4872, HD 245409, 55 Cancri, HD 10307 og 47 Ursae Majoris. Skilaboðin munu ná áfangastað á árunum frá 2036 til 2049.
6. júlí - Ísraelsstjórn lét 350 palestínska fanga lausa.
8. júlí - Um 600 fórust og 200 björguðust þegar ferja sökk í Bangladess.
11. september - Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lést á sjúkrahúsi daginn eftir að ráðist var á hana og hún stungin margsinnis í verslunarmiðstöð.