23. mars - Ronald Reagan Bandaríkjaforseti setti fram fyrstu hugmyndir sínar um tækni til að verjast eldflaugum. Áætlunin (SDI) var kölluð „Stjörnustríðsáætlunin“ í fjölmiðlum.
25. mars - Michael Jackson kynnti „tunglgönguna“ til sögunnar í sjónvarpsþætti vegna 25 ára afmælis Motown-útgáfunnar.
Apríl
2. apríl - Stór olíuleki varð í Persaflóa úr íranskri olíulind sem Írakar höfðu sprengt.
23. apríl - Corinne Hermès sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Lúxemborg með laginu „Si la vie est cadeau“.
25. apríl - Júríj Andropov bauð bandarísku stúlkunni Samantha Smith til Sovétríkjanna eftir að hún hafði sent honum bréf og lýst áhyggjum sínum af kjarnorkustyrjöld.
Maí
6. maí - Tímaritið Stern birti „dagbækur Hitlers“ sem reyndust vera falsanir.
7. maí - Sverð í kletti, minnismerki um Hafursfjarðarorrustu, var afhjúpað í Noregi.
27. maí - Ólögleg flugeldaverksmiðja í Benton í Tennessee, sprakk í loft upp með þeim afleiðingum að ellefu létust.
28. maí - Eldgos hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli en stóð stutt. Norræn dagblöð létu í ljós ótta um að Vatnajökull myndi bráðna og að suðausturland Íslands færi í kaf.
13. júní - Pioneer 10 varð fyrsti manngerði hluturinn sem fór út fyrir sporbauga helstu reikistjarna sólkerfisins þegar hann fór út fyrir sporbaug Neptúnusar.
17. júní - 856 handtökuskipanir voru gefnar út á hendur stjórnmálamönnum, athafnamönnum og öðrum sem taldir voru tengjast glæpasamtökum Raffaele Cutolo í Napólí.
18. júní - Tíu íranskar konur, þar á meðal táningurinn Mona Mahmudnizhad, voru hengdar fyrir að aðhyllast Baháítrú.
18. júní - Sally Ride varð fyrsta bandaríska konan sem fór út í geim með geimskutlunni Challenger.
19. júní - Spilakassaleikurinn Dragon's Lair kom út.
22. júní - Danski stjórnmálamaðurinn Mogens Glistrup var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir skattaundanskot.
18. ágúst - Fellibylurinn Alicia gekk yfir Texas. 22 létust og eignatjón var metið á 3,8 milljarða dala (á verðlagi ársins 2005).
18. ágúst - Fimm létust og 18 særðust þegar Douglas Crabbe ók vörubíl inn á bar vegahótels við Uluru í Ástralíu.
24. ágúst - Fjölmennur fundur í Reykjavík, sem haldinn var í veitingahúsinu Sigtúni af svokölluðum Sigtúnshópi, krafðist breytinga á húsnæðislánakerfinu.
30. ágúst - Guion Bluford varð fyrsti þeldökki Bandaríkjamaðurinn í geimnum í leiðangrinum STS-8 með geimskutlunni Challenger.
September
1. september - Farþegaþotan Korean Air Lines-flug 007 var skotin niður í sovéskri lofthelgi. 269 voru um borð, þar á meðal bandaríski þingmaðurinn Larry McDonald.
4. september - Sex kafarar gengu neðansjávar yfir Sydneyhöfn, 82,9km á 48 tímum.
4. október - Breski athafnamaðurinn Richard Noble setti hraðamet á landi þegar hann ók eldflaugarknúna bílnum Thrust2 1.019,468km/klst í Nevadaeyðimörkinni.
9. október - Jangúnsprengjutilræðið: Utanríkisráðherra Suður-Kóreu, Lee Bum Suk, og 21 annar létust.
12. október - Fyrrum forsætisráðherra Japan Kakuei Tanaka var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir mútuþægni.