hluti alþjóðlega staðalsins ISO 3166 sem skilgreinir ríki og landshluta From Wikipedia, the free encyclopedia
ISO 3166-1 er sá hluti ISO 3166 staðalsins sem skilgreinir tveggja og þriggja stafa kóða (kallaðir alpha-2 og alpha-3) auk kenninúmers fyrir lönd og pólitískt afmörkuð svæði. Staðallinn var fyrst gefinn út árið 1974 af Alþjóðlegu staðlastofnuninni.
Tveir skyldir staðlahlutar eru ISO 3166-2 yfir stjórnsýslueiningar landa og ISO 3166-3 yfir fyrrum sjálfstæð ríki.
ISO 3166-1 er notaður mjög víða hjá alþjóðastofnunum, í milliríkjaviðskiptum og samskiptum milli landa. Hann er samt ekki eina kerfi landakóða sem er í notkun. Dæmi um önnur slík kerfi eru listi yfir landsnúmer fyrir millilandasímtöl og landakóðar Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.