Eyríki í Vestur-Afríku From Wikipedia, the free encyclopedia
Grænhöfðaeyjar (portúgalska: Cabo Verde) eru eyjaklasi í Norður-Atlantshafi um 570 kílómetra undan vesturströnd Afríku. Eyjarnar voru óbyggðar þegar Portúgalar uppgötvuðu þær á 15. öld og gerðu þær að miðstöð fyrir þrælaflutninga. Eyjarnar heita eftir Grænhöfða á vesturströnd Senegals.
República de Cabo Verde | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unity, Work, Progress | |
Þjóðsöngur: Cântico da Liberdade | |
Höfuðborg | Praia |
Opinbert tungumál | portúgalska (opinbert) og kreólska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | José Maria Neves |
Forsætisráðherra | Ulisses Correia e Silva |
Sjálfstæði | |
• frá Portúgal | 5. júlí, 1975 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
166. sæti 4.033 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2013) • Þéttleiki byggðar |
165. sæti 483.628 123,7/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 4,323 millj. dala (183. sæti) |
• Á mann | 7.728 dalir (156. sæti) |
VÞL (2019) | 0.665 (126. sæti) |
Gjaldmiðill | Grænhöfðaeyskur skúti (CVE) |
Tímabelti | UTC-1 |
Þjóðarlén | .cv |
Landsnúmer | +238 |
Samkvæmt opinberum portúgölskum skjölum uppgötvaði António de Noli eyjarnar árið 1456. Hann var gerður að landstjóra eyjanna og fyrstu landnemarnir settust þar að árið 1462. Eyjarnar urðu miðstöð þrælaverslunarinnar á Atlantshafi og ríkidæmi þeirra dró að sjóræningja. Francis Drake rændi höfuðborg eyjanna Ribeira Grande árið 1585. Eftir árás Frakka árið 1712 hnignaði borginni og Praia tók við hlutverki höfuðborgar árið 1770. Þegar þrælaversluninni tók að hnigna versnaði efnahagur eyjanna sem þó voru áfram mikilvæg höfn. Sjúkdómar og eldgos á fyrri helmingi 20. aldar leiddu til þurrka og hungursneyðar. Óánægja með nýlendustjórnina leiddi til sjálfstæðisbaráttu í byrjun 20. aldar. Eftir fall ríkisstjórnar Salazars í Portúgal neyddust Portúgalir til að veita eyjunum sjálfstæði. Sjálfstæðisflokkur Cabo Verde kom á flokksræði og ríkti til 1990 þegar flokksræði var afnumið og fyrstu frjálsu kosningarnar haldnar.
Ísland veitti Grænhöfðaeyjum þróunaraðstoð á 9. og 10. áratug 20. aldar og skipaði sendiherra þar frá 1979 til 1993.[1]
Eyjarnar draga nafn sitt af höfðanum Cap-Vert („Grænhöfða“) á strönd Senegals.[2] Nafn höfðans kemur upphaflega úr portúgölsku Cabo Verde. Portúgalskir sæfarar nefndu höfðann svo árið 1444, nokkrum árum áður en þeir uppgötvuðu eyjarnar.
Þann 24. október 2013 tilkynnti sendinefnd landsins hjá Sameinuðu þjóðunum að önnur lönd ættu ekki að nota þýðingar á heitinu Cabo Verde í opinberum samskiptum heldur ættu öll lönd að nota portúgalska heitið þar sem það væri opinbert heiti landsins á öllum tungumálum.[3][4]
Grænhöfðaeyjar eru í Atlantshafi, um 570 km undan strönd Vestur-Afríku. Strönd Senegal er næst þeim á meginlandinu. Þær eru milli 14. og 18. breiddargráðu norður og 22. og 26. lengdargráðu vestur.
Grænhöfðaeyjar eru tíu eyjar (níu byggðar) og átta smáeyjar sem liggja í hálfhring og skiptast í tvo eyjaklasa:
Þrjár eyjanna, Sal, Boa Vista og Maio, eru flatar, sendnar og þurrar; en hinar eru klettóttari og grónari.
Eyjarnar eru 4.033 km2 að stærð og eru aðallega úr gosbergi með gosmyndunum og gjóskuseti. Gosberg og djúpberg eru basísk og eyjarnar eru bergfræðilega svipaðar öðrum makarónesískum eyjum í Atlantshafi.
Segultruflanir við eyjarnar benda til þess að undirstöður þeirra hafi myndast fyrir 125-150 milljón árum, en eyjarnar sjálfar eru 8-20 milljón ára gamlar.[5] Elstu klettarnir ofan sjávarborðs eru á Maio og norðurskaga Santiago, og eru 128-131 milljón ára gamalt bólstraberg. Gosvirkni á svæðinu hófst snemma á Míósen og náði hátindi sínum undir lok tímabilsins þegar eyjarnar náðu mestu stærð. Á sögulegum tíma hefur eldvirkni verið bundin við eyjuna Fogo.[6]
Á Grænhöfðaeyjum eru 22 sveitarfélög (concelhos) sem skiptast í 32 sóknir (frequesias) frá nýlendutímanum:
Eyja | Sveitarfélag | Manntal 2010 [7] | Sókn |
Santo Antão | Ribeira Grande | 18.890 | Nossa Senhora do Rosário |
Nossa Senhora do Livramento | |||
Santo Crucifixo | |||
São Pedro Apóstolo | |||
Paúl | 6.997 | Santo António das Pombas | |
Porto Novo | 18.028 | São João Baptista | |
Santo André | |||
São Vicente | São Vicente | 76.140 | Nossa Senhora da Luz |
Santa Luzia | |||
São Nicolau | Ribeira Brava | 7.580 | Nossa Senhora da Lapa |
Nossa Senhora do Rosário | |||
Tarrafal de São Nicolau | 5.237 | São Francisco | |
Sal | Sal | 30.879 | Nossa Senhora das Dores |
Boa Vista | Boa Vista | 9.162 | Santa Isabel |
São João Baptista |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.