8. janúar - Landslið Tógó í knattspyrnu karla varð fyrir hryðjuverkaárás á ferð sinni með rútu gegnum angólsku útlenduna Kabinda. Liðið dró sig úr Afríkukeppninni 2010 í kjölfarið.
12. janúar - Jarðskjálfti lagði mikinn hluta Haítí í rúst. Talið er að um 230.000 manns hafi látist.
6. apríl - Karl og kona urðu úti á Emstrum eftir að hafa villst þangað á bíl á leið frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Kona sem var með þeim bjargaðist.
7. apríl - Forseti Kirgistan, Kurmanbek Bakijev, flúði land vegna mótmælaöldu í höfuðborginni Biskek.
8. apríl - Bandaríkin og Rússland endurnýjuðu START-samninginn um fækkun kjarnavopna.
10. apríl - Flugvél fórst í aðflugi að flugvellinum í Smolensk í Rússlandi. Um borð voru Lech Kaczyński, forseti Póllands, kona hans og fjölmargir háttsettir menn úr pólska hernum. Allir um borð fórust, 96 alls.
27. apríl - Standard & Poor's færði lánshæfismat Grikklands niður í ruslflokk 4 dögum eftir virkjun 45 milljarða evra björgunarpakka frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
12. maí - Afriqiyah Airways flug 771 hrapaði við Alþjóðaflugvöllinn í Trípólí með þeim afleiðingum að 103 af 104 um borð fórust.
13. maí - Herforinginn Khattiya Sawasdipol, einn af leiðtogum mótmælenda í Taílandi, var skotinn til bana af leyniskyttu þar sem hann talaði við blaðamann frá The New York Times í Bangkok.
19. maí - Lögregla réðist gegn mótmælendum í Bangkok í Taílandi með þeim afleiðingum að 91 lést.
21. ágúst - Sporvagnalínan Spårväg City var opnuð í Stokkhólmi.
22. ágúst - Námaverkamennirnir í San José-námunni fundust í neyðarathvarfi á 700 metra dýpi og voru allir á lífi. Talið var að það gæti tekið allt að fjóra mánuði að bjarga þeim þaðan.
23. ágúst - Gíslatakan í Manila 2010: Sjö létust þegar lögreglumaður í Manila rændi rútu með ferðafólki frá Hong Kong.
24. ágúst - Árásin á Hótel Muna: Liðsmenn al-Shabaab réðust á hótel í Mógadisjú. 32 létust í átökunum, þar á meðal 11 sómalskir þingmenn.
10. september - Sprengja sprakk á Hotel Jørgensen í Kaupmannahöfn. Sá eini sem særðist var hryðjuverkamaðurinn Lors Doukaiev sem var handtekinn í kjölfarið.
13. október - Námaverkamönnunum 33 sem lokaðir höfðu verið inni í San José-námunni í 69 daga var bjargað upp um borholu, um 60 cm í þvermál, sem boruð hafði verið niður til þeirra. Sjálf björgunin tók tæpan sólarhring.
22. október - Alþjóðlega geimstöðin sló metið fyrir lengstu mannabyggð í geimnum en hún hafði hýst fólk samfleytt frá 2. nóvember 2000.
24. október - Gerpla vann Evrópumeistaratitilinn í fimleikum, fyrst íslenskra liða.
25. október - Yfir 400 fórust í jarðskjálfta og flóðbylgju sem reið yfir vesturströnd Súmötru.
26. október - Um 300 fórust vegna endurtekinna gusthlaupa í Merapifjalli á Jövu í Indónesíu.
9. desember - Við atkvæðagreiðslu á Alþingi um fjárlagafrumvarp sat Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hjá og er það hugsanlega í eina skiptið í sögu Íslands sem stjórnarþingmaður greiðir ekki atkvæði með fjárlagafrumvarpi.