Jón Gnarr

íslenskur leikari, útvarpsmaður, skemmtikraftur og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur From Wikipedia, the free encyclopedia

Jón Gnarr
Remove ads

Jón Gnarr (áður Jón Gunnar Kristinsson; f. 2. janúar 1967) er leikari, útvarpsmaður, listamaður og stjórnmálamaður. Jón var borgarstjóri Reykjavíkur fyrir hönd Besta flokksins á árunum 2010–2014. Hann var kjörinn á Alþingi fyrir Viðreisn árið 2024.

Staðreyndir strax Borgarstjóri Reykjavíkur, Forveri ...
Remove ads

Æviágrip

Foreldrar Jóns voru komin af léttasta skeiði þegar þau eignuðust hann og er hann langyngstur barna þeirra. Faðir Jóns var lögreglumaður í yfir 40 ár og kommúnisti. Var samband þeirra erfitt.

Jón var greindur með þroskaskerðingu sem barn og var um tíma á barna- og unglingageðdeild. Hann hefur verið greindur með athyglisbrest með ofvirkni og lesblindu. Á unglingsárum gekk hann undir nafninu Jónsi pönk og var undir áhrifum frá anarkisma og pönk-hljómsveitinni Crass.

Jón hefur unnið sem verkamaður í Volvoverksmiðjunum í Gautaborg, sem leigubílstjóri, á Kópavogshæli og Kleppi. Hann er með meirapróf.

Jón Gnarr á að baki farsælan feril sem leikari, listamaður og grínisti. Hann sá um útvarpsþáttinn Tvíhöfða á X-inu, Radíó, Radíó X og Rás 2 ásamt Sigurjóni Kjartansyni. Þar áður stjórnaði hann öðrum útvarpsþætti, Heimsenda á Rás 2 árið 1994. Árin 1995–1996 var hann ásamt Sigurjóni Kjartansyni með innskot í þættinum Dagsljós á RÚV sem hét Hegðun, atferli og framkoma.[1]

Árið 1998 var hann með uppistandssýninguna Ég var einu sinni nörd og árið 2018 hélt hann upp á 20 ára afmæli þess með uppistandi í Eldborg í Hörpu.

Jón hefur leikið í ýmsum sjónvarpsþáttum svo sem Limbó, Fóstbræðrum, Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavaktinni auk ýmissa kvikmynda, til dæmis Maður eins og ég og Íslenski draumurinn.

Remove ads

Stjórnmálaferill

Besti flokkurinn

Thumb
Jón á Gay pride árið 2010.

Árið 2009 stofnaði Jón Besta flokkinn, sem bauð fram í borgarstjórnarkosningunum 29. maí 2010 í Reykjavík og fékk flokkurinn 6 af 15 borgarstjórnarfulltrúum kjörna. Fljótlega ákváð flokkurinn að ganga til viðræðna við Samfylkinguna um meirihluta, sem og varð. Jón Gnarr var kjörinn borgarstjóri í Reykjavík á fundi nýrrar borgarstjórnar 15. júní 2010 og sat út tímabilið. Hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs í borgarstjórnarkosningum 2014.

Forsetaframboð

Í janúar 2016 var Jón mikið í umræðunni um mögulega forsetaframbjóðendur í forsetakosningum 2016 en 16. janúar tilkynnti hann að hann ætlaði ekki í framboð.[2]

Fyrir forsetakosningarnar 2024 var Jón aftur mikið í umræðunni og 5. janúar sagði hann í viðtali að hann útilokaði ekkert.[3] 12. febrúar greindi Jón frá því að hann væri alvarlega að íhuga framboð.[4] 22. mars sagði Jón í þættinum Vikan með Gísla Marteini að það væri meiri líkur en minni að hann færi í framboð.[5] 2. apríl 2024 tilkynnti Jón framboð til forseta Íslands í myndbandstilkynningu á samfélagsmiðlum.[6] Jón hlaut 10,1% fylgi og endaði í 4. sæti frambjóðenda.

Þingferill

Jón bauð sig fram í 2. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir Viðreisn í Alþingiskosningunum 2024 og komst á þing en fylgið í kjördæminu var 17,7%.

Remove ads

Ritferill

Jón hefur gefið út nokkrar sjálfsævisögulegar bækur, þar á meðal Indíánann, Sjóræningjann og Útlagann þar sem hann talar meðal annars um erfiða reynslu úr héraðskólanum á Núpi í Dýrafirði.[7] Árið 2014 gaf hann út bók á ensku; Gnarr! How I Became the Mayor of a Large City in Iceland and Changed the World. Árið 2021 kom út bókin Óorð: Bókin um vond íslensk orð.

Menntun

Jón er með MFA gráðu frá Listaháskóla Íslands. Sem útskriftarverkefni flutti Jón Konungsbókarútgáfu Völuspár Geymt 25 janúar 2024 í Wayback Machine við frumsamið lag.

Einkalíf

Jón er giftur Jógu Gnarr Jóhannsdóttur. Þau eiga 5 börn.

Eitt og annað

  • Árið 2005 fékk Jón nafni sínu breytt í þjóðskrá úr Jóni Gunnari í Jón Gnarr. Hann hefur kallað sig Gnarr frá barnæsku. Nafnið er stytting á nafninu Gunnar. Sama ár létu börn hans einnig breyta millinafni sínu í Gnarr.
Thumb
Jón Gnarr og Helga Braga á Edduverðlaunahátíðinni 2007.

Leikaraferill

Nánari upplýsingar Kvikmyndir, Ár ...
Remove ads

Bækur

  • Börn ævintýranna (1988)
  • Miðnætursólborgin (1989)
  • Plebbabókin (2002)
  • Þankagangur (2005)
  • Indjáninn (2006)
  • Sjóræninginn (2012)
  • How I became a mayor of a large city in Iceland and changed the world (2014)
  • Útlaginn (2015)
  • Þúsund kossar (2017)
  • Óorð (2021)

Viðurkenningar

  • 2010 – Visir.is, Maður ársins
  • 2013 – Heiðursmeðlimur Samtakanna 78
  • 2013 – Húmanistaviðurkenning Siðmenntar
  • 2014 – LennonOno friðarverðlaun

Tilvísanir

Tenglar

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads