16. febrúar - Réttarhöld yfir John Demjanjuk hófust í Jerúsalem, en hann var sakaður um grimmdarverk í fangabúðunum í Treblinka. Ekkert sannaðist á hann.
24. mars - Michael Eisner og Jacques Chirac undirrituðu samkomulag um byggingu Euro Disney (nú Disneyland Paris).
Apríl
1. apríl - Taílensk-austurríski orkudrykkurinn Red Bull kom á markað í Austurríki.
12. apríl - V. P. Singh, varnarmálaráðherra Indlands, sakaði Bofors um að hafa greitt 145 milljónir sænskra króna í mútur vegna vopnasölu til Indlands.
13. apríl - Portúgal og Alþýðulýðveldið Kína undirrituðu samkomulag um að stjórn Maká gengi til Kína árið 1999.
25. apríl - Alþingiskosningar voru haldnar, þær fyrstu samkvæmt nýjum kosningalögum sem var ætlað að jafna hlut flokka með uppbótarþingmönnum þrátt fyrir misvægi atkvæða eftir kjördæmum.
26. apríl - Sænska fyrirtækið SAAB kynnti orrustuþotuna Saab 39 Gripen.
9. ágúst - Hoddle Street-fjöldamorðin: Julian Knight, 19 ára, skaut 7 til bana og særði 19 í úthverfi Melbourne í Ástralíu.
10. ágúst - Sænsk-svissneska véltæknifyrirtækið ABB varð til við sameiningu Asea og Brown Boveri.
13. ágúst - Verslunarmiðstöðin Kringlan var opnuð í Reykjavík, en hún var reist þar sem áður hét Kringlumýri. Um 40 þúsund manns komu þangað fyrsta daginn.
16. ágúst - Northwest Airlines flug 255 hrapaði í flugtaki á Detroit-flugvelli með þeim afleiðingum að allir um borð, 156 manns, fórust, nema eitt fjögurra ára barn.
8. september - Þingkosningar fóru fram í Danmörku.
8. september - Fimmtíu króna mynt með mynd af bogakrabba var sett í umferð á Íslandi.
13. september - Skransafnarar fundu geislavirk efni í yfirgefnum spítala í Goiânia í Brasilíu. Í kjölfarið létust fjórir vegna geislaeitrunar og hundruð reyndust hafa orðið fyrir geislun.
3. október - Fríverslunarsamningur Kanada og Bandaríkjanna var gerður.
6. október - Sænski njósnarinn Stig Bergling slapp úr fangelsi og flúði frá Svíþjóð með eiginkonu sinni. Í kjölfarið sagði dómsmálaráðherra Svíþjóðar, Sten Wickbom, af sér.
7. október - Síkar lýstu yfir sjálfstæði Kalistans á Indlandi.
13. október - Kýrin Harpa synti yfir Önundarfjörð frá Flateyri að Kirkjubóli í Valþjófsdal á flótta þegar leiða átti hana til slátrunar. Eftir sundafrekið var hún nefnd Sæunn og fékk að lifa lengur.
15. október - Forseti Búrkína Fasó, Thomas Sankara, var myrtur ásamt tólf öðrum í valdaráni Blaise Compaoré.
15.-16. október - Ofviðrið í Englandi 1987: 23 létust í Suður-Englandi þegar stormur gekk yfir landið.
8. desember - Samningur um útrýmingu skammdrægra eldflauga á landi var undirritaður af Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev í Hvíta húsinu í Washington.