Árið 1969 (MCMLXIX í rómverskum tölum ) var 69. ár 20. aldar og almennt ár sem hófst á miðvikudegi .
Staðreyndir strax Árþúsund:, Aldir: ...
Loka
Janúar
Richard Nixon sver eið að bandarísku stjórnarskránni.
1. janúar - Virðisaukaskattur tók við af söluskatti í Svíþjóð.
2. janúar - Ástralski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch keypti breska tímaritið News of the World .
4. janúar - Spánn lét Marokkó eftir stjórn útlendunnar Ifni .
5. janúar - Ariana Afghan Airlines flug 701 hrapaði á hús í aðflugi að Heathrow í London með þeim afleiðingum að 50 farþegar og tveir íbúar hússins létust.
5. janúar - Sovéska geimkönnunarfarið Venera 5 hóf ferð sína til Venus.
12. janúar - Herlögum var lýst yfir í Madríd og yfir 300 háskólastúdentar handteknir.
12. janúar - Fyrsta breiðskífa bresku sveitarinnar Led Zeppelin , Led Zeppelin , kom út í Bandaríkjunum.
14. janúar - Sovétríkin sendu Sojús 4 út í geim.
15. janúar - Sovétríkin sendu Sojús 5 af stað.
16. janúar - Sojús 5 lagðist að Sojús 4 og tveir geimfarar fluttu sig yfir, sem var í fyrsta sinn sem það var gert.
16. janúar - Háskólaneminn Jan Palach kveikti í sér á Venseslástorgi í Prag til að mótmæla innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu. Hann lést af sárum sínum þremur dögum síðar.
20. janúar - Richard Nixon tók við embætti Bandaríkjaforseta.
22. janúar - Viktor Iljin reyndi að myrða Leoníd Bresnjev í Moskvu.
26. janúar - Elvis Presley tók upp lagið „Long Black Limousine“ í stúdíóí í Memphis, sem var fyrsta lagið í röð endurkomulaga sem komu út á plötunum From Elvis in Memphis og Back in Memphis .
27. janúar - 14 menn, þar af 9 gyðingar, voru teknir af lífi í Bagdad fyrir að hafa njósnað fyrir Ísrael.
27. janúar - Mótmælendapresturinn og sambandssinninn Ian Paisley var handtekinn og fangelsaður í þrjá mánuði fyrir að hafa staðið fyrir ólöglegri samkomu.
28. janúar - Olíulekinn í Santa Barbara 1969 : 80-100.000 tunnur af olíu runnu út í sjó við Santa Barbara í Kaliforníu. Atvikið varð öldungadeildarþingmanninum Gaylord Nelson innblástur að fyrsta Degi jarðar árið 1970.
30. janúar - Bítlarnir komu í síðasta sinn fram opinberlega á tónleikum á þaki Apple Records í London.
Febrúar
Inger Nilsson í hlutverki Línu langsokks.
4. febrúar - Yasser Arafat var kjörinn leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu í Kaíró.
7. febrúar - Norska dagblaðið Klassekampen hóf útgáfu sína.
8. febrúar - Leikin sjónvarpsþáttaröð um Línu langsokk hóf göngu sína í sænska ríkissjónvarpinu og sló í gegn.
9. febrúar - Boeing 747-þota flaut jómfrúarflug sitt.
11. febrúar - Sjóher Ítalíu hertók örríkið Isola delle Rose undan strönd Rímíní og eyðilagði með sprengjum.
13. febrúar - Aðskilnaðarsinnar í Front de libération du Québec settu sprengju af stað í kauphöllinni í Montreal .
14. febrúar - Páll 6. páfi gaf úr páfabréfið Mysterii Paschalis sem endurskipulagði kirkjuár kaþólsku kirkjunnar og afnam messudaga margra dýrlinga.
17. febrúar - Bandaríski kafarinn Berry L. Cannon lést úr koldíoxíðeitrun þar sem hann vann við SEALAB III-rannsóknarstöðina í Kaliforníu.
24. febrúar - Marskönnunarfarinu Mariner 6 var skotið á loft.
Mars
Jómfrúarflug Concorde-þotu í Frakklandi.
2. mars - Concorde-þota flaug jómfrúarflug sitt.
3. mars - Mannaða geimfarið Apollo 9 var sent á loft til að prófa tungllendingarfarið.
3. mars - Palestínumaðurinn Sirhan Sirhan játaði fyrir rétti að hafa myrt Robert F. Kennedy .
4. mars - Dómstóll í Flórída gaf út handtökutilskipun á hendur Jim Morrison fyrir ósæmilegt athæfi á tónleikum The Doors þremur dögum áður.
16. mars - Viasa flug 742 hrapaði á íbúðahverfi í Maracaibo í Venesúela með þeim afleiðingum að allir 84 um borð létust auk 71 á jörðu niðri.
17. mars - Golda Meir varð fyrsti kvenforsætisráðherra Ísraels.
18. mars - Breakfast-aðgerðin : Bandarískar flugvélar hófu leynilegar sprengjuárásir á Kambódíu.
20. mars - John Lennon og Yoko Ono giftu sig á Gíbraltar.
24. mars - Marskönnunarfarinu Mariner 7 var skotið á loft.
26. mars - Skátafélagið Landnemar var stofnað í Hlíðum í Reykjavík.
29. mars - Fjórir flytjendur fengu jafnmörg atkvæði í fyrsta sætið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1969 .
31. mars - Ísfyrirtækið Kjörís tók til starfa í Hveragerði.
31. mars - 153 kolanámumenn fórust í Barroterán-slysinu í Mexíkó.
Apríl
4. apríl - Hjartaskurðlæknirinn Denton Cooley setti fyrsta gervihjartað í mann.
7. apríl - Fyrsti RFC-staðallinn fyrir ARPANET kom út.
9. apríl - 300 meðlimir stúdentahreyfingarinnar Students for a Democratic Society tóku yfir stjórnarbyggingu Harvard-háskóla .
13. apríl - Sporvagnakerfi Brisbane var lagt niður eftir 84 ára starfsemi.
17. apríl - Alexander Dubček neyddist til að segja af sér sem aðalritari tékkneska kommúnistaflokksins.
19. apríl - Hörð átök urðu milli NICRA og lögreglu á Norður-Írlandi. Einn kaþólskur mótmælandi lést eftir barsmíðar lögreglu.
20. apríl - Þjórsárdalsför : Skúli Thoroddsen læknir skoraði Bretadrottningu á hólm.
20. apríl - Breskir hermenn komu til Ulster til að aðstoða lögregluna á Norður-Írlandi.
22. apríl - Robin Knox-Johnston varð fyrstur til að sigra einmenningssiglingakeppni umhverfis hnöttinn án áningar .
24. apríl - British Leyland kynnti sinn fyrsta bíl, Austin Maxi , í Oporto í Portúgal.
28. apríl - Charles de Gaulle sagði af sér forsetaembætti eftir ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á frönsku stjórnarskránni.
Maí
Byggingar í rúst á Curaçao.
1. maí - Bandaríska örgjörvafyrirtækið AMD var stofnað í Kaliforníu.
2. maí - Áætlunarskipið Queen Elizabeth 2 hélt í jómfrúarferð sína frá Southampton til New York.
4. maí - Forseti Indlands, Zakir Husain , fékk hjartaáfall og lést.
6. maí - Limafjarðargöngin í Danmörku voru opnuð fyrir umferð.
8. maí - Sædýrasafnið í Hafnarfirði var opnað almenningi.
10. maí - Víetnamstríðið : Orrustan um Hamborgarahæð hófst.
15. maí - Bandarískur táningur lést úr óþekktum sjúkdómi sem síðar var talinn vera fyrsta tilfelli alnæmis í Bandaríkjunum.
16. maí - Sovéska könnunarfarið Venera 5 lenti á Venus.
17. maí - Venera 6 flaug inn í lofthjúp Venus og sendi þaðan loftslagsgögn þar til loftþrýstingurinn kramdi flaugina.
20. maí - Rosariazo : 4000 manns gengu mótmælagöngu í Rosario í Argentínu. 15 ára unglingur lést í áhlaupi lögreglu á mótmælin.
23. maí - The Who gáfu út rokkóperuna Tommy .
25. maí - Verðlaunakvikmynd John Schlesinger , Midnight Cowboy , var frumsýnd.
25. maí - Ra I -leiðangur Thor Heyerdahl hélt af stað frá Marokkó.
25. maí - Herforinginn Ja'far al-Nimeyri leiddi valdarán í Súdan.
26. maí - John Lennon og Yoko Ono hófu önnur Bed-In-mótmæli á hóteli í Montreal. Lennon samdi lagið „Give Peace a Chance “ við það tækifæri.
26. maí - Andesbandalagið var stofnað í Suður-Ameríku.
26. maí - Apollo 10 sneri aftur til jarðar eftir prófanir fyrir áætlaða tungllendingu.
30. maí - Danmörk varð fyrsta land heims sem afnam bann við klámi .
31. maí - Uppreisnin á Curaçao hófst.
Júní
Víkingaskipasafnið í Hróarskeldu.
3. júní - Á heræfingu á vegum SEATO sigldi ástralska flugmóðurskipið HMAS Melbourne (R21) á bandaríska tundurspillinn USS Frank E. Evans í Suður-Kínahafi með þeim afleiðingum að 74 bandarískir sjóliðar létust.
8. júní - Stálöndin birtist í fyrsta sinn í ítalskri útgáfu Syrpu .
8. júní - Francisco Franco fyrirskipaði lokun landamæranna að Gíbraltar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um fullveldi hjálendunnar. Landamærin voru lokuð til 1982.
8. júní - Bandaríkjaforseti, Richard Nixon , og forseti Suður-Víetnam, Nguyễn Văn Thiệu , hittust á Midway-eyju þar sem Nixon tilkynnti um brotthvarf 25.000 bandarískra hermanna frá Víetnam.
15. júní - Georges Pompidou var kjörinn forseti Frakklands.
17. júní - Boris Spasskíj varð heimsmeisari í skák eftir sigur á Tigran Petrosian .
18. júní - Bandarísku hryðjuverkasamtökin Weather Underground voru stofnuð.
20. júní - Víkingaskipasafnið í Hróarskeldu var opnað almenningi.
23. júní - Ítalska tímaritið il manifesto hóf göngu sína.
24. júní - Bretland og Ródesía lögðu niður stjórnmálasamband eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar.
24. júní - Vivian Strong , 14 ára svört stúlka, var skotin til bana af lögreglumanni í Omaha sem leiddi til þriggja daga uppþota.
24. júní - Danir höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu að 18 ára fengju kosningarétt með miklum meirihluta.
27. júní - Kynlíf samkynhneigðra varð löglegt í Kanada.
28. júní - Stonewall-uppþotin brutust út í New York-borg.
Júlí
Buzz Aldrin heilsar bandaríska fánanum á Tunglinu.
Júlí - Hreyfingin Gay Liberation Front var stofnuð í New York-borg.
1. júlí - Borðtennisdeild KR var stofnuð í Reykjavík.
1. júlí - Karl Bretaprins var gerður prins af Wales í kastalanum Caernarfon .
3. júlí - Einn af stofnendum Rolling Stones , Brian Jones , drukknaði í sundlaug sinni í Sussex á Englandi.
4. júlí - Dýrahringsmorðinginn myrti tvö ungmenni á bílastæði nálægt Vallejo í Kaliforníu.
5. júlí - Þróunarráðherra Keníu, Tom Mboya , var myrtur sem leiddi til uppþota í helstu borgum landsins.
8. júlí - Víetnamstríðið : Bandaríkjaher hóf brottflutning herliðs frá Suður-Víetnam.
10. júlí - Þríbytna Donald Crowhurst , Teignmouth Electron , fannst á reki í miðju Atlantshafi. Talið er að Crowhurst hafi framið sjálfsmorð með því að stökkva fyrir borð.
14. júlí - Fótboltastríðið hófst milli El Salvador og Hondúras.
14. júlí - Bandaríski seðlabankinn tók 500-, 1000-, 5000- og 10.000-dala seðla opinberlega úr umferð, en prentun slíkra seðla var hætt 1945.
18. júlí - Áhöfn reyrskipsins Ra I yfirgaf skipið eftir misheppnaða tilraun til að sigla því yfir Atlantshafið.
19. júlí - John Fairfax kom að landi í Flórída eftir að hafa fyrstur manna róið yfir Atlantshafið á árabátnum Britannia .
19. júlí - Forsætisráðherra Indlands, Indira Gandhi , lét þjóðnýta fjórtán stærstu banka landsins.
20. júlí - Belgíski hjólreiðamaðurinn Eddy Merckx sigraði Tour de France-keppnina í fyrsta sinn.
20. júlí - Lendingarfar geimfarsins Apollo 11 lenti á Tunglinu með geimfarana Buzz Aldrin og Neil Armstrong um borð.
21. júlí - Neil Armstrong steig fyrstur manna fæti á Tunglið og mælti hin fleygu orð „Þetta er lítið skref fyrir mann, en stórt skref fyrir mannkyn“.
22. júlí - Spænski einræðisherrann Francisco Franco útnefndi Juan Carlos prins sem eftirmann sinn.
30. júlí - Richard Nixon kom í óvænta heimsókn til Suður-Víetnam til að funda með Nguyễn Văn Thiệu og bandarískum herforingjum.
31. júlí - Páll 6. páfi kom til Entebbe í Úganda í fyrstu heimsókn páfa til Afríkulands.
Ágúst
Woodstock-tónlistarhátíðin.
September
Willy Brandt talar við fjölmiðla eftir kosningarnar í Þýskalandi.
Október
Mótmæli gegn Víetnamstríðinu í Washington D.C.
Nóvember
Bandaríski geimfarinn Alan L. Bean við það að stíga á tunglið.
Desember
Afgreiðslusalur bankans við Piazza Fontana eftir sprenginguna.
2. desember - Fyrsta farþegaflug Boeing 747-risaþotu fór fram.
4. desember - Tveir meðlimir Svörtu hlébarðanna , Fred Hampton og Martin Clark, voru skotnir til bana af lögreglumönnum þar sem þeir sváfu.
6. desember - Meredith Hunter var myrt af öryggisvörðum á rokkhátíðinni Altamont Free Concert sem Rolling Stones stóðu fyrir í Kaliforníu.
12. desember - Blóðbaðið á Piazza Fontana : 17 létust og 88 slösuðust þegar sprengja sprakk í höfuðstöðvum Banca Nazionale dell'Agricoltura í Mílanó. Tvær sprengjur í viðbót sprungu í Róm hálftíma síðar.
12. desember - Danmörk varð fyrsta land í heimi sem lögleiddi klámljósmyndir .
15. desember - Tveir anarkistar, Pietro Valpreda og Giuseppe Pinelli , voru handteknir og sakaðir um sprengingarnar í Róm. Pinelli féll út um glugga á lögreglustöðinni og lést, sem varð Dario Fo innblástur að leikritinu Stjórnleysingi ferst af slysförum .
16. desember - Dauðarefsingar voru afnumdar í Bretlandi.
23. desember - Olíufyrirtækið Phillips Petroleum uppgötvaði olíu Norðursjó við strendur Noregs.
24. desember - Nígeríuher náði síðustu höfuðborg Bíafra , Umuahia , á sitt vald.
1. janúar - Verne Troyer , bandarískur leikari (d. 2018 ).
3. janúar - Michael Schumacher , þýskur akstursíþróttamaður.
4. janúar - Thor Aspelund , íslenskur stærðfræðingur.
5. janúar - Marilyn Manson , bandarískur söngvari.
6. janúar - Bergur Þór Ingólfsson , íslenskur leikari.
14. janúar - Dave Grohl , bandarískur tónlistarmaður.
14. janúar - Jason Bateman , bandarískur leikari.
15. janúar - Kellita Smith , bandarísk leikkona.
17. janúar - Tiësto , hollenskur plötusnúður.
18. janúar - Ever Palacios , kólumbískur knattspyrnumaður.
24. janúar - Hilmir Snær Guðnason , íslenskur leikari.
27. janúar - Patton Oswalt , bandarískur leikari.
29. janúar - Wagner Lopes , brasilískur knattspyrnumaður.
29. janúar - Motohiro Yamaguchi , japanskur knattspyrnumaður.
6. febrúar - Eiríkur Bergmann , íslenskur stjórnmálafræðingur.
8. febrúar - Mary McCormack , bandarísk leikkona.
Jennifer Aniston.
11. febrúar - Jennifer Aniston , bandarísk leikkona.
11. febrúar - Yoshiyuki Hasegawa , japanskur knattspyrnumaður.
22. febrúar - Hugo López-Gatell Ramírez , mexíkóskur læknir.
1. mars - Javier Bardem , spænskur leikari.
4. mars - Heimir Guðjónsson , íslenskur knattspyrnumaður.
5. mars - Juan Carlos Villamayor , paragvæskur knattspyrnumaður.
6. mars - Jintara Poonlarp , taílensk söngkona.
9. mars - Andrej Panadić , króatískur knattspyrnumaður.
10. mars - Paget Brewster , bandarísk leikkona.
26. mars - Almir de Souza Fraga , brasilískur knattspyrnumaður.
27. mars - Pauley Perrette , bandarísk leikkona.
6. apríl - Paul Rudd , bandarískur leikari.
14. apríl - Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir , íslensk stjórnmálakona.
14. apríl - Emre Altuğ , tyrkneskur söngvari.
16. apríl - Michael Baur , austurrískur knattspyrnumaður.
19. apríl - Hiromitsu Isogai , japanskur knattspyrnumaður.
20. apríl - Geir Björklund , norskur blaðamaður.
25. apríl - Renée Zellweger , bandarísk leikkona.
28. apríl - Elliði Vignisson , íslenskur stjórnmálamaður.
30. apríl - Brynhildur Pétursdóttir , alþingiskona.
1. maí - Wes Anderson , bandarískur kvikmyndaleikstjóri.
1. maí - Yasuyuki Moriyama , japanskur knattspyrnumaður.
4. maí - Vitaliy Parakhnevych , úkraínskur knattspyrnumaður.
6. maí - Vlad Filat , moldóvskur stjórnmálamaður.
14. maí - Cate Blanchett , áströlsk leikkona.
16. maí - Tucker Carlson , bandarískur þáttastjórnandi.
18. maí - Antônio Carlos Zago , brasilískur knattspyrnumaður.
19. maí - Thomas Vinterberg , danskur leikstjóri.
22. maí - Michael Kelly , bandarískur leikari.
22. maí - Carl Craig , bandarískur tónlistarmaður.
24. maí - Bjarni Ómar , íslenskur tónlistarmaður.
31. maí - Benedikt Erlingsson , íslenskur leikari.
7. júní - Kim Rhodes , bandarísk leikkona.
7. júní - Jóakim Danaprins .
11. júní - Peter Dinklage , bandarískur leikari.
14. júní - Steffi Graf , þýsk tenniskona .
15. júní - Oliver Kahn , þýskur knattspyrnumaður.
15. júní - Bashar Warda , íraskur biskup.
19. júní - Yoshiaki Sato , japanskur knattspyrnumaður.
23. júní - Martin Klebba , bandarískur leikari.
25. júní - Yasuto Honda , japanskur knattspyrnumaður.
26. júní - Steven Brand , skoskur leikari.
28. júní - Katla María , íslensk söngkona.
2. júlí - Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir , íslensk leikkona.
7. júlí - Joe Sakic , kanadískur fyrrum íshokkíleikmaður.
7. júlí - Shiro Kikuhara , japanskur knattspyrnumaður.
13. júlí - Ken Jeong , bandarískur leikari.
15. júlí - Alexander Vasilyev , rússneskur söngvari.
24. júlí - Jennifer Lopez , bandarísk leik- og söngkona.
28. júlí - Jón Arnar Magnússon , íslenskur frjálsíþróttamaður.
2. ágúst - Þórir Gunnarsson , íslenskur bassaleikari.
18. ágúst
19. ágúst - Matthew Perry , kanadísk-bandarískur leikari.
20. ágúst - Billy Gardell , bandarískur leikari.
Daníel Ágúst.
26. ágúst - Daníel Ágúst Haraldsson , íslenskur söngvari.
26. ágúst - Melissa McCarthy , bandarísk leikkona.
27. ágúst - Christine O'Donnell , bandarísk stjórnmálakona.
28. ágúst - Jack Black , bandarískur leikari.
31. ágúst - Jonathan LaPaglia , ástralskur leikari.
5. september - Rúnar Kristinsson , íslenskur knattspyrnumaður.
5. september - Leonardo Araújo , brasilískur knattspyrnumaður.
6. september - Norio Omura , japanskur knattspyrnumaður.
7. september - Diane Farr , bandarísk leikkona.
17. september - Bismarck Barreto Faria , brasilískur knattspyrnumaður.
19. september - Jóhann Jóhannsson , íslenskur tónlistarmaður (d. 2018 ).
20. september - Richard Witschge , hollenskur knattspyrnumaður.
22. september - Sjöfn Evertsdóttir , íslensk leikkona.
25. september - Dofri Hermannsson , íslenskur leikari.
29. september - Tore Pedersen , norskur knattspyrnumaður.
29. september - Ivica Vastić , austurrískur knattspyrnumaður.
1. október - Zach Galifianakis , bandarískur leikari.
3. október - Gwen Stefani , bandarísk söngkona.
3. október - Janel Moloney , bandarísk leikkona.
4. október - Róbert Wessman , íslenskur athafnamaður.
5. október - Ásta Kristjana Sveinsdóttir , íslenskur heimspekingur.
7. október - Yoshihiro Natsuka , japanskur knattspyrnumaður.
10. október - Loren Bouchard , bandarískur kvikari.
11. október - Konstantínus Hollandsprins .
12. október - Željko Milinovič , slóvenskur knattspyrnumaður.
19. október - Trey Parker , bandarískur leikari og handritshöfundur.
19. október - Pedro Castillo , perúskur stjórnmálamaður.
4. nóvember - Matthew McConaughey , bandarískur leikari.
4. nóvember - Samantha Smith , bandarísk leikkona.
5. nóvember - Pat Kilbane , bandarískur leikari.
10. nóvember - Ellen Pompeo , bandarísk leikkona.
10. nóvember - Jens Lehmann , þýskur knattspyrnumaður.
13. nóvember - Gerard Butler , skoskur leikari.
22. nóvember - Þorsteinn Víglundsson , íslenskur stjórnmálamaður.
27. nóvember - Hernán Gaviria , kólumbískur knattspyrnumaður (d. 2002 ).
4. desember - Jay-Z , bandarískur rappari.
11. desember - Viswanathan Anand , indverskur skákmaður.
11. desember - Max Martini , bandarískur leikari.
14. desember - Archie Kao , bandarískur leikari.
24. desember - Ed Miliband , breskur stjórnmálamaður.
27. desember
28. desember - Linus Torvalds , finnskur tölvunarfræðingur.
30. desember - Kersti Kaljulaid , eistneskur stjórnmálamaður.
31. desember - Njáll Trausti Friðbertsson , íslenskur stjórnmálamaður.
Walter Gropius.
5. júlí - Walter Gropius , þýskur arkitekt (f. 1883 ).
31. júlí - Júlíus Havsteen , íslenskur lögreglustjóri og sýslumaður (f. 1886 ).
9. ágúst - Sharon Tate , bandarísk leikkona (f. 1943 ).
17. ágúst - Ludwig Mies van der Rohe , þýskur arkitekt (f. 1886 ).
31. ágúst - Rocky Marciano , bandarískur hnefaleikamaður (f. 1923 ).
2. september - Ho Chi Minh , forseti og forsætisráðherra Víetnam (f. 1890 ).
6. september - Arthur Friedenreich , brasilískur knattspyrnumaður (f. 1892 ).
2. október - Sigurbergur Elísson , formaður Knattspyrnufélagsins Fram (f. 1899 ).
5. október - Skúli Guðmundsson , íslenskur stjórnmálamaður (f. 1900 ).
11. október - Enrique Ballesteros , úrúgvæskur knattspyrnumaður (f. 1905 ).
21. október
12. nóvember - José Piendibene , úrúgvæskur knattspyrnumaður og þjálfari (f. 1890 ).