Remove ads
Bandarískur tónlistarmaður og leikari (1935–1977) From Wikipedia, the free encyclopedia
Elvis Aaron Presley (8. janúar 1935 – 16. ágúst 1977) var bandarískur tónlistarmaður sem naut mikilla vinsælda á 20. öld. Hann var líka þekktur sem The King, King of Rock and Roll, Elvis the Pelvis og The Hillbilly Cat. Meðal laga hans eru „In The Ghetto“, „Jailhouse Rock“ og „Blue Suede Shoes“. Prestley náði fyrst miklum vinsældum með smáskífunni „Heartbreak Hotel“ sem gefin var út árið 1956. Hann var frumkvöðull í rokkabillí sem blandaði m.a. kántrí og blús. Elvis fann innblástur í gospel og blús svartra Ameríkana. Mjaðmahnykkir við tónlist sem var innblásin af svörtum vakti hneykslun hjá sumum landa hans.
Elvis Presley | |
---|---|
Fæddur | Elvis Aaron Presley 8. janúar 1935 |
Dáinn | 16. ágúst 1977 (42 ára) |
Dánarorsök | Hjartaáfall |
Hvíldarstaður | Graceland, Memphis 35°2′46″N 90°1′23″V |
Störf |
|
Ár virkur | 1953–1977 |
Maki | Priscilla Presley (g. 1967; sk. 1973) |
Börn | Lisa Marie Presley |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Undirskrift | |
Elvis Presley var kallaður til herskyldu í bandaríska hernum árið 1958 fram til 1960 og dvaldi í Þýskalandi megnið af þeim tíma. Þar kynntist hann Priscilla Wagner (síðar Priscilla Presley) og giftu þau sig 1. maí árið 1967 og eignuðust 1968 dótturina Lisu Marie Presley (d. 2023). Priscilla Presley og Elvis Presley skildu árið 1972.
Presley lést árið 1977, 42 ára að aldri, en hann hafði árum saman misnotað róandi lyf. Heimili hans Graceland var opnað fyrir almenningi árið 1982. Það eru uppi samsæriskenningar um að Elvis hefði sviðsett dauða sinn en þær kenningar þykja afar langsóttar. Hefði hann raunverulega sviðsett dauða sinn þá er samt sem áður afar ólíklegt að hann væri enn á lífi.[1]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.