Biskup Íslands From Wikipedia, the free encyclopedia
Ásmundur Guðmundsson (6. október 1888 - 29. maí 1969) var íslenskur guðfræðingur og prestur. Hann var biskup Íslands frá 1954 til 1959.
Ásmundur Guðmundsson | |
---|---|
Fæddur | 6. október 1888 |
Dáinn | 29. maí 1969 (80 ára) |
Þjóðerni | Íslendingur |
Menntun | Háskóli Íslands |
Störf | Prestur, skólastjóri, prófessor og biskup |
Titill | Herra[n 1] og/eða Dr. theol |
Trú | Kristin trú (Lútherstrú) |
Maki | 27. júní 1915 Steinunn Sigríður Magnúsdóttir (10. nóv. 1894–6. des. 1976) |
Börn | Sjö |
Foreldrar | Séra Guðmundur Helgason og Þóra Ágústa Ásmundsdóttir |
Ásmundur fæddist þann 6. október 1888 að Reykholti í Borgarbyggð. Faðir hans var séra Guðmundur Helgason frá Birtingaholti í Hrunamannahreppi, þá prestur og prófastur í Reykholti, en áður aðstoðarprestur séra Ásmundar Jónssonar prófasts í Odda á Rangárvöllum, sem varð tengdafaðir hans. Móðir Ásmundur var eiginkona Guðmundar, Þóra Ágústa Ásmundsdóttir, prófasts í Odda, Jónssonar í Lambhúsum, lektors[n 2] við Bessastaðaskóla, Jónssonar. Móðurbróðir Þóru var skáldið Grímur Thomsen, sonur gullsmiðsins[1] og húsfreyjunnar[2] á Bessastöðum, sem sáu um skólaráðsmennsku þar.
Ásmundur fór til náms í Menntaskólanum í Reykjavík þegar hann hafði aldur til og bjó hjá Þórhalli Bjarnarsyni, prestaskólakennara og síðar biskupi, að Laufási við Laufásveg, en hann var góður vinur Guðmundar Helgasonar. Guðmundur hafði verið heitbundinn Laufeyju systur Þórhalls, en hún dó ung áður en til brúðkaups kom. Guðmundur og Þórhallur höfðu haft brauðaskipti árið 1885, þannig að Guðmundur flutti frá Akureyri til Reykholts og Þórhallur í gagnstæða átt. Ásmundur myndaði ævilanga vináttu við börn Þórhalls, en þeir Tryggvi Þórhallsson voru jafnaldrar og bekkjarbræður í MR. Námið í Menntaskólanum gekk báðum vel. Þegar þeir voru á öðru ári gerðist það að einn bekkjarbræðranna skar nokkur útfyllt blöð úr bók, sem kennararnir skráðu í einkunnir fyrir frammistöðu nemenda í hverjum tíma. Síðan brenndi hann þau í ofninum sem þá var í kennslustofunni. Hefur aldrei verið ljóstrað upp um hver framdi ódæðið og nú eru allir löngu dánir, sem vissu það. Fyrir bragðið var allur bekkurinn rekinn úr skóla. Þeir fengu þó flestir fljótlega að koma aftur, þar á meðal Ásmundur. [3]
Þóra lést 1902 þegar Ásmundur var aðeins 13 ára og syrgði hann hana mjög. [4] Guðmundur faðir hans lét af preststörfum 1907 og flutti til Reykjavíkur og gerðist formaður Búnaðarfélags Íslands frá 1907 til 1917. [5] Tók hann við þeirri formennsku af vini sínum Þórhalli Bjarnarsyni, sem varð biskup 1908.
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 30. júní 1908.
Cand. phil. við Kaupmannahafnarháskóla 22.maí 1909.
Próf í hebresku við Kaupmannahafnarháskóla 8. júní 1909.
Hóf síðan nám við Prestaskólann sem varð að Guðfræðideild Háskóla Íslands þegar Háskólinn var stofnaður 1911.
Próf í guðfræði frá Háskóla Íslands 19. júní 1912. Var í fyrsta árganginum, sem útskrifaðist úr háskólanum.
Framhaldsnám í guðfræði við háskólana í Berlín og Jena í nokkrar vikur sumarið 1929.
Námsdvöl í Róm 1929.
Námsdvöl í Oxford og Cambridge 1934.
[6]
Ásmundur aðhylltist það sem kallað var frjálslynd guðfræði eða nýguðfræði. [7] Sú stefna féll ekki öllum guðfræðingum í geð. Eru í því sambandi fræg ummæli frænda hans [n 3] [8] séra Árna Þórarinssonar prófasts á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi (nú Borgarbyggð): "Ási er verri því að hann gæti afkristnað heil sólkerfi og væri ekki lengi að því". [9]
Þann 27. júní 1915 gekk Ásmundur að eiga nærsveitunga sinn Steinunni Sigríði Magnúsdóttur [10] [11] frá Gilsbakka í Hvítársíðu. Foreldrar hennar voru séra Magnús Andrésson frá Núpstúni og Syðra Langholti í Hrunamannahreppi, síðar Urriðafossi í Flóa og loks prestur og prófastur á Gilsbakka og kona hans Sigríður Pétursdóttir Sívertsen, fædd á Eyrarbakka og alin upp á Selalæk á Rangárvöllum. Sigríður var dótturdóttir séra Þorsteins Helgasonar prests í Reykholti í Borgarfirði, sem veiktist á geði á fertugsaldri og reið út í Reykjadalsá, sem var í ísi lögð en með vökum og féll í vök og drukknaði og fannst líkið ekki fyrr en ísa leysti mánuði síðar. [12] [13] Samtímamaður hans í Kaupmannahöfn og jafnaldri Jónas Hallgrímsson orti um hann fallegt erfiljóð, í hverju Eyjan hvíta kemur fyrst fyrir. Langafi Sigríðar í föðurætt var Bjarni riddari Sívertsen, sem oft er nefndur faðir Hafnarfjarðar.
Guðmundur Helgason og Magnús Andrésson voru bræðrasynir og Ásmundur og Steinunn því þremenningar. Þau eignuðust sjö börn, fjóra syni og þrjár dætur.
Var prestur í Vatnabyggðum[14]
í Saskatchewan í Kanada 1912-1914 og í Íslendingabyggðum í Alberta um mánaðartíma 1914.
Á þessum tíma var mikið að gerast í trúmálum í Kanada og samkeppni á milli trúfélaga og miklum tíma og orku eytt í deilur um trúmál. Únítarar voru mjög duglegir við trúboð og gengu margir menn af íslenskum ættum þeim á hönd.
[15]
[16]
Ásmundur var staðfastur í sinni lúterstrú. Átti hann margar góðar endurminningar frá Kanada og samskiptum við fólkið þar.
[17]
Var eftir heimkomu frá Kanada í Reykjavík við kennslu og ritstörf veturinn 1914-1915.
Vígður aðstoðarprestur til séra Sigurðar Gunnarssonar á Helgafelli á Þórsnesi í nágrenni við Stykkishólm 24. júní 1915. Sátu báðir í Stykkishólmi.
Séra Sigurður lét af preststörfum vegna aldurs í maí 1916.
Var Ásmundur þá settur sóknarprestur á Helgafelli 31. maí 1916 frá fardögum sama ár og var veitt Helgafell 13. nóv. 1916 og sat áfram í Stykkishólmi.
Samhliða preststörfum kenndi hann við barnaskólann í Stykkishólmi 1915-1916.
Skipaður skólastjóri á Eiðum 11. janúar 1919 þegar Búnaðarskólanum þar var breytt í alþýðuskóla. Eignaðist hann marga ævilanga vini á Eiðaárunum.
Skipaður dósent við guðfræðideild Háskóla Íslands 24. apríl 1928. Séra Haraldur Níelsson prófessor hafði látist vegna mistaka við svæfingu þegar hann var skorinn upp við gallsteinum þann 11. mars sama ár.
[18]
Var Ásmundur kallaður fyrirvaralítið í hans stað, ekki síst fyrir meðmæli séra Sigurðar Péturssonar Sívertsen prófessors og forseta guðfræðideildar, sem var hálfbróðir Sigríðar tengdamóður Ásmundar, samfeðra.
Skipaður prófessor við guðfræðideild Háskóla Íslands 24. apríl 1934.
Forseti guðfræðideildar 1934-35, 37-38, 40-41, 42-45, 46-50, 53-54 og haustmisserið 1954.
Varaforseti háskólaráðs 1943-45, 46-50, 53-54, og haustmisserið 1954.
Samhliða háskólakennslu var hann stundakennari við Kennaraskóla Íslands 1928-1954. [n 4]
Frændi hans og vinur Herra Sigurgeir Sigurðsson biskup lést í október 1953 og var Ásmundur kosinn biskup Íslands í ársbyrjun 1954, skipaður í embættið 30. janúar 1954 og vígður 20. júní 1954 í Dómkirkjunni í Reykjavík af séra Bjarna Jónssyni vígslubiskupi.
[19]
[20]
Vígði m.a. Kirkju óháða safnaðarins, Neskirkju og Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Vígði eftirmann sinn Herra Sigurbjörn Einarsson til biskups 22. júní 1959.
[21]
Fékk lausn frá biskupsembætti vegna aldurs 1. júlí 1959.
Fékkst við Biblíuþýðingar og ritstörf að biskupsstarfi loknu.
Var mikilvirkur fræðimaður.
[6]
[22]
Formaður Prestafélags Austfjarða 1927-1928.
Í stjórn Prestafélags Íslands 1929-1954 og formaður frá 1936.
Kirkjuráðsmaður 1932-1959 og forseti ráðsins frá 1954.
Forseti fyrsta Kirkjuþings 1958.
Ritstjóri Kirkjuritsins 1935-1959, en mestan þann tíma hafði hann annan ritstjóra með sér.
Í stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja 1942-1946.
Í stjórn stúdentagarðanna 1933-1943.
Í stjórn Vetrarhjálparinnar í Reykjavík um nokkur ár.
Í Barnaverndarráði 1932-1945.
Í Barnaheimilisnefnd Þjóðkirkjunnar.
Formaður Bandalags æskulýðsfélaga í Reykjavík um árabil frá stofnun þess 1948.
Gegndi auk þessara starfa ýmisum öðrum trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna og fyrir ungmenni. [6]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.