Hin íslenska fálkaorða er íslensk heiðursviðurkenning veitt einstaklingum, bæði íslenskum og erlendum. Nýjum orðuhöfum er oftast veitt viðurkenningin 1. janúar eða 17. júní.
Orðan var stofnuð af Kristjáni X. þann 3. júlí 1921 til að sæma þá sem hafa eflt hag og heiður Íslands. Forseti Íslands afhendir orðuna en orðuhafar eru valdir af orðunefnd. Samningur milli nokkurra ríkja vegna heimsókna þjóðhöfðingja og orðuveitinga tengdum þeim er einnig ábyrgur fyrir stórum hluta orðuveitinga.
Við andlát orðuhafa ber afkomendum að skila orðunni þó að það muni sjaldan gert. Ein orða nýtur þó undantekningar frá þessu, stórkross sem að átti að veita Jóhannesi Kjarval 1965 en hann afþakkaði. Sættir náðust þó með því að orðan var varðveitt í Listasafni Íslands en Jóhannes vildi aldrei fá hana í hendur.
Stig fálkaorðunnar
Í hækkandi virðingarröð:
- Riddarakross
- Stórriddarakross
- Stórriddarakross með stjörnu
- Stórkross
- Keðja ásamt stórkrossstjörnu (einungis fyrir þjóðhöfðingja)
Tengt efni
Orðuveitingar Hinnar íslensku fálkaorðu |
2021-2030 |
2011-2020 |
2001-2010 |
1991-2000 |
1981-1990 |
1971-1980 |
1961-1970 |
1951-1960 |
1941-1950 |
1931-1940 |
1921-1930 |
Heimildir
- „Forsetavefurinn:Fálkaorðan“. Sótt 11. desember 2005.
- „Morgunblaðið (Hátíðarblaðið), 26. júní 1930, bls. 44 - Fálkaorðan“. Sótt 2. júlí 2017.
- „Morgunblaðið, 4. mars 1979, bls. 15 - Kjarvals-orðan í Listasafninu“. Sótt 2. júlí 2017.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.