land í Mið-Asíu From Wikipedia, the free encyclopedia
Kasakstan er stórt land sem nær yfir mikinn hluta Mið-Asíu. Hluti landsins er vestan Úralfljóts og telst til Evrópu. Landamæri Kasakstan liggja að Rússlandi, Kína og Mið-Asíuríkjunum Kirgistan, Úsbekistan og Túrkmenistan og einnig að strönd Kaspíahafsins. Kasakstan var áður Sovétlýðveldi en er nú aðili að SSR.
Lýðveldið Kasakstan | |
Қазақстан Республикасы Qazaqstan Respūblīkasy (kasakska) Республика Казахстан Respublika Kazakhstan (rússneska) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Menıñ Qazaqstanym | |
Höfuðborg | Astana |
Opinbert tungumál | Kasakska, rússneska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Kassym-Jomart Tokajev |
Forsætisráðherra | Alihan Smaiylov |
Sjálfstæði | |
• frá Sovétríkjunum | 16. desember 1991 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
9. sæti 2.724.900 km² 1,7 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
64. sæti 18.711.560 7/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 569,813 millj. dala (41. sæti) |
• Á mann | 30.178 dalir (53. sæti) |
VÞL (2019) | 0.817 (50. sæti) |
Gjaldmiðill | Tenga |
Tímabelti | UTC+5 til +6 |
Þjóðarlén | .kz |
Landsnúmer | +7 |
Kasakstan var í upphafi nokkurs konar stórveldi hirðingja. Orðið kasak (kk: Қазақ, ru: Казах) sem merkir „frjáls maður“ eða „hirðingi“ á rætur að rekja til tyrknesku (sbr. einnig orðið kósakki, sem er af sömu rót). Orðið stan merkir „(föður)land“. Nafn landsins gæti því þýtt „hirðingjaland“.
Árið 500 f.Kr. bjuggu Sakar í Suður-Kasakstan. Sakar voru hirðingjar sem ríktu á svæðum frá Altaífjöllum til Úkraínu. Þó svo að Sakar væru herskáir, urðu þeir að lúta í lægra haldi fyrir Alexander mikla. Í grafhýsi rétt utan við Almaty fundust frægar fornleifar, sem nefndar hafa verið „gullni maðurinn“. Þessi „gullni maður“ er sakneskur stríðsmaður í gylltum einkennisbúningi og þykir merkilegur gripur í Kasakstan, sem og í allri Mið-Asíu.
Djengis Khan og heimsveldi Mongólíu lögðu undir sig Kasakstan og Mið-Asíu með stærsta her heims á þeim tíma. Í hernum voru yfir 150.000 hermenn. Rétt eftir að Djengis Khan lést var heimsveldinu skipt á milli sona hans og Kasakstan varð hluti af ríki Chaghatais.
Forfeður Kasaka voru Mongólar og Úsbekar. Á 16. öld yfirtóku Kasakar mongólska hirð í Norður-Kasakstan sem hét Gullhirðin. Kasakar sameinuðust í þrjár hirðir. Þessar hirðir voru Miklahirðin í Suður-Kasakstan, Miðhirðin í Mið- og Norðaustur-Kasakstan, og Litlahirðin í Vestur-Kasakstan. Yfir hverri hirð voru þrír kanar. Titlar þeirra voru axíal, bi, og batýr.
Árin 1690 til 1720 voru tímar stóráfalla í Kasakstan. Ojradar frá Mongóliu sögðu Kasakstan, þ.e. hirðunum þremur, stríð á hendur. Hirðirnar þrjár gátu ekki varist þeim þannig að Kasakar tóku þann kost að biðja um aðstoð frá Rússlandi.
Á tímum rússneska keisaradæmisins var sífellt verið að stækka ríki þess og yfirtaka önnur landsvæði. Þegar Ojradar réðust inn í Kasakstan, átti þjóðin, eins og áður sagði, engan kost annan en að leita til Rússlands um vernd fyrir þeim. Hirðirnar þrjár hétu Rússlandi hollustu sína árið 1731. Rússar innlimuðu svo Kasakstan eftir að þeir höfðu yfirbugað Ojrada árið 1742. En að því kom að hirðirnar þrjár vildu ekki lengur vera hluti af Rússlandi og varð þá mikil uppreisn í Kasakstan. Um milljón Kasaka var drepin í þessari uppreisn sem lauk með því að Rússar héldu yfirráðum sínum í landinu.
Árið 1861 sendi Rússland landflótta fólk til Kasakstans. Taras Sjevtsjenko, úkraínskur listamaður og rithöfundur sem vildi frelsa Úkraínu, var á meðal þeirra. Meðan á fyrri heimsstyrjöldinni stóð var óöld í Kasakstan. Fleiri uppreisnir urðu, um 150.000 manns létu lífið og um 200.000 flúðu til Kína.
Árið 1917, rétt eftir að Rússar yfirtóku Kasakstan, stofnaði Alasj Órda flokk sem hét Þjóðernissinnaflokkur Kasakstans og hugðist frelsa Kasakstan á ný. Borgarastyrjöldin í Kasakstan var hörmuleg fyrir Kasaka. Með tíð og tíma ákvað Alasj Órda að ganga í lið með Stalín og bolsévíkum í Rússlandi. Þegar Kommúnistaflokkur Kasakstans (CPK) náði yfirráðum yfir Kasakstan, eftir að borgarastyrjöldinni lauk, voru Alasj Órda og allir í Þjóðernissinnaflokki Kasakstans myrtir að fyrirskipan Stalíns og Kommúnistaflokks Kasakstans. Margt fólk í Kasakstan var myrt í stjórnartíð Stalíns. Margir aðrir flúðu til Kína og Mongólíu. Kasakstan varð Sovétlýðveldi árið 1936.
Stalín sendi þúsundir manna til Kasakstans á árunum 1936 til 1940 til að byggja upp verksmiðjuborgir í Kasakstan. Frá 1940 til 1950 var margt fólk frá öðrum Sovétlýðveldum sent til Kasakstans til að vinna í kolanámum eða vinnubúðum. Margar þessara kolanáma og vinnubúða voru í nágrenni borga eins og Karaganda og Úst-Kamenogórsk. Árið 1953 varð Nikita Kruschev forseti í Sovétríkjunum. Hann lét loka vinnubúðum í Sovétríkjunum en í staðinn hófst hann handa við „Jómfrúarlandaáætlunina“ sem ætlað var að auka frjósemi steppunnar í Kasakstan. Yfir 250.000 km² lands, einkum í Norður-Kasakstan, var uppskorið sem akurlendi á meðan „Jómfrúarlandaáætlunin“ stóð yfir.
Meðan á kalda stríðinu stóð létu Sovétríkin byggja Bækónúr-skotpallinn“ í Suðvestur-Kasakstan. Hann var eins og skotpallurinn í Nevada í Bandaríkjunum. Gerðar voru kjarnorkutilraunir og tilraunir til þess að skjóta eldflaugum út í geim. Árið 1989 voru áttu mestu mótmæli í öllum Sovétríkjunum sér stað í Kasakstan. Fjöldi fólks hvarvetna í Kasakstan mótmælti. Mótmælendur fylgtu liði undir nafninu „Nevada-Semey hreyfingin“ og árið 1989 hættu Sovétríkin kjarnorkutilraunum sínum. En enn í dag er eldflaugum skotið út í geim frá Kasakstan og geimfarar stunda enn nám í Bækónúr-stöðinni.
Árið 1989 var Nursúltan Nazarbaev kjörinn forseti í Kasakstan. Tveimur árum síðar féllu Sovétríkin. Nazarbaev vildi ekki ganga úr Sovétríkjunum, en svo fór eigi að síður að hann samþykkti það. Þann 16. desember 1991 varð Kasakstan að lýðveldinu Kasakstan. Borgin Aqmola, sem þá var aðeins lítill kolanámubær, var gerð að höfuðborg Kasakstans. Margir töldu Nazarbaev ruglaðan að gera þetta, en nýja höfuðborgin var hluti af Kasakstan 2030 áætlun hans. Aqmola skipti um nafn var nefnd Astana, sem þýðir á kasöksku „Höfuðborg“. Árið 2019 var borgin nefnd Nur-Sultan í höfuðið á Nazarbaev.[2] Nafnabreytingin var tekin til baka árið 2022.[3]
Kasakstan er núna lýðveldi í Mið-Asíu og 9. stærsta land í heimi. Höfuðborgin er Astana, sem er á miðri steppunni í Norður-Kasakstan. Auðvaldsskipulag er hægt og rólega að umbreyta efnahagslífi Kasakstans en ríkinu svipar þó enn um margt til Sovétríkjanna gömlu.
Nazarbajev var forseti Kasakstans í tæp 30 ár; frá sjálfstæði Kasakstans árið 1991 þar til hann sagði skyndilega af sér í mars árið 2019.[4] Fólk velti fyrir sér þeirri staðreynd að hann væri valdamesti maður landsins og hann var gjarnan talinn ríkja með gerræðislegum hætti.
Í janúar 2022 fóru fram fjöldamótmæli í Kasakstan vegna hækkunar á olíuverði sem snerust brátt upp í óeirðir og allsherjarmótmæli gegn ríkjandi stjórnvöldum. Ríkisstjórn Kasakstans brást við mótmælunum af hörku og kallaði til hernaðaraðstoðar frá Sameiginlegu öryggissáttmálastofnuninni (CSTO), varnarbandalagi fyrrverandi Sovétlýðvelda. Kassym-Jomart Tokajev forseti gaf herliðum CSTO og öryggissveitum Kasakstan heimild til að „skjóta til að drepa“ mótmælendur án viðvörunar og sagði mótmælin hafa verið valdaránstilraun að áeggjan erlendra hryðjuverkamanna.[5] Samkvæmt opinberum tölum létust að minnsta kosti 164 manns og yfir 2.200 særðust í óeirðunum, auk þess sem rúmlega sex þúsund voru handteknir.[6]
Þann 16. desember 1986, þegar Kasakstan var enn hluti Sovétríkjanna, varð Gennadý Kólbin forseti landsins. Hann var ekki kasakskur heldur rússneskur. Mikhaíl Gorbatsjev, þáverandi aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, tilnefndi Gennadý Kólbin sem forseta Sovétlýðveldisins Kasakstans. Mikhaíl Gorbatsjev vissi af mikilli spillingu innan Kommúnistaflokks Kasakstans. Upphlaup varð í Kasakstan vegna þjóðernis Gennadýs Kólbins. Í Almaty fóru fram fræg mótmæli sem nefnd voru Djeltóksan, sem merkir „desember“ á kasöksku. Fáir létu lífið í mótmælunum en margir slösuðust. Í Almaty er minnisvarði við Respúblika Alangý sem heitir Djeltóksan 1986.[7]
Þann 22. júní 1989 varð Nazarbaev forseti Kasakstans. Hann var forseti frá því að Kasakstan varð lýðveldi árið 1991 til ársins 2019. Sara Alpýsóvna eiginkona hans er mjög atorkusöm í efnahagsmálum landsins og er hún einnig forstjóri „líknarmálasjóðs fyrir börn“. Þau eiga þrjár dætur og er sú elsta, Dariga Nazarbayeva, forstjóri ríkisrekinnar sjónvarpsstöðvar í Kasakstan.
Kasakstan er lýðveldi bundið stjórnarskrá. Forseti landsins er þjóðhöfðingi og getur hann beitt neitunarvaldi. Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórn Kasakstans. Núverandi forsætisráðherra er Alihan Smaiylov, en hann var útnefndur árið 2022. Þing Kasakstans skiptist í tvær deildir, neðri deild (madjílis) og efri deild (öldungadeild).
Kasasktan er stórt land, sem skiptist í 17 fylki og 3 borgir. Borgirnar eru Almaty, Astana og Bækónúr.
Fylki í Kasakstan
|
Borgir Í Kasakstan
|
Kasakstan er 9. stærsta land í heimi og er í Mið-Asíu. Í Suður-Kasakstan er eyðimörk hjá Sjimkent og einnig í Norður-Kasakstan. Þar er líka stór steppa í nágrenni Astana og Karaganda. Altaifjöll liggja að landamærum Kasakstan og Kirgistan hjá Almaty. Hæsti tindurinn er 4.572 m hár. Láglendi er í Vestur-Kasakstan við Kaspíahaf. Í Kasakstan eru hvirfilvindar mjög algengir, sérstaklega yfir láglendinu í Vestur-Kasakstan. Kasakstan liggur að Kaspíahafi og á landamæri að Aserbædsjan og Íran.
Olía hefur lengi verið afar mikilvæg fyrir efnahag Kasakstans. Kasakstan hafði yfir 66.320.000.000 kr. í tekjur af olíu árið 1996. Nazarbaev vildi leggja þjóðartekjurnar fyrir. Margt fólk í Kasakstan sem vinnur í olíuiðnaðinum býr í Vestur-Kasakstan í borgum eins og Aktá og Atýrá. Kasakar segja að Atýrá sé olíuhöfuðborg Kasakstan.
Mörg erlend fyrirtæki starfa í Kasakstan, bæði frá Evrópu og Ameríku og jafnvel Japan. Fjármálamiðstöð Kasakstans er í Almaty.
Fyrirtæki í Kasakstan frá Íslandi
Í Kasakstan í dag eru yfirstétt, borgarastétt og lágstétt eins og í hverju öðru auðvaldskerfi. Mánaðartekjur borgarastéttarinnar eru einungis um 30.000 kr. Yfirstéttin býr einkum í fjallahéruðum, í risastórum húsum, en þénar þó einungis eins og millistéttarfólk í Evrópu. Lágstéttin býr við kröpp kjör í Kasakstan. Litlar íbúðir með lélegu vatns-, orku- og fráveitukerfi eru ekki óalgeng sjón í bæjum Kasakstan.
„Kazakhstan 2030“ er áætlun Nazarbaevs um að gera Kasakstan að auðugu landi. Nazarbaev vill reyna að selja mikla olíu og laða fyrirtæki frá öllum heimshornum til Kasakstans. Þegar maður fer til Kasakstans má sjá veggspjöld sem á stendur „Kazakhstan 2030“ alls staðar í Kasakstan.
Tenga er gjaldmiðill Kasakstans. Tenga kemur úr orðinu dengi í rússnesku sem þýðir einfaldlega peningur. Þann 15. nóvember 1993 hætti ríkisstjórn Kasakstans að nota rúblur og tenga var tekin í notkun í landinu.
Landbúnaður í Kasakstan er mjög háður olíu og búfjárrækt. Yfir 70% landsins eru ræktarlönd og bóndabæir. Mest er ræktað af hveiti í Kasakstan. Þess vegna er bjór í Kasakstan mjög ódýr. Hálfur lítri af bjór kostar einungis 200TГ (100 kr.) í dúkan, sem er kasakstönsk verslun. Ávextir og grænmeti eru ræktuð í sveitum Kasakstan, en ávallt seld á markaði í borgunum, eins og í Silóný Basar (grænn markaður). Algengasta búfé í Kasakstan eru hestar og sauðfé.
Flugfélag Kasakstans heitir Air Astana. Vilji maður ferðast til Kasakstan frá Evrópu verður maður að fljúga með KLM frá Amsterdam, Lufthansa frá Frankfurt, Turkish Airlines frá Istanbul, Air Astana frá London eða Moskvu, eða Aeroflot. Air Astana flýgur til næstum allra áfangastaða í Kasakstan.
Járnbrautarlestir eru líka algeng samgöngutæki í Kasakstan. Hægt er að fara frá Almaty til Astönu á 20 klukkutímum. Einnig eru til hópferðabílar í Kasakstan en þeir eru ekki jafn almennur ferðamáti eins og járnbrautarlestir og flugvélar. Í borgum er hægt að ná í leigubíl með því að veifa hendinni við veginn. Leigubílar eru ekki á vegum hins opinbera heldur einkareknir. Þeir eru ódýr og mjög almennur ferðamáti í borgum eins og Almaty.
Einungis um 53% íbúa Kasakstan eru fæddir í Kasakstan. Allt frá því að Kasakstan gekk Rússlandi á hönd hafa Rússar flust um allt Kasakstan. Flestir Rússar búa Í stærstu borgunum, eins og Astana og Almaty og í Norður-Kasakstan, og eru Rússar stundum fjölmennari en Kasakar. En í bæjum eins og Sjimkent og Túrkistan eru um 80% íbúanna Kasakar. Í Kasakstan býr enn fólk frá því að Stalín sendi fólk frá Sovétríkjunum í vinnubúðir til Kasakstans, svo sem Téténar, Úkraínumenn, Úsbekar og jafnvel Hvít-Rússar. Einnig má þar finna þýska Gyðinga sem flúðu Þýskaland í seinni heimsstyrjöldinni.[8]
Þjóðernishópar í Kasakstan
Þjóðerni | 1959 % | 1970 % | 1979 % | 1989 % | 1999 % |
---|---|---|---|---|---|
Kasakar | 30,0 | 32,6 | 36,0 | 40,1 | 53,4 |
Rússar | 42,7 | 42,4 | 40,8 | 37,4 | 29,9 |
Úkraínumenn | 8,2 | 7,2 | 6,1 | 5,4 | 3,7 |
Þjóðverjar | 7,1 | 6,6 | 6,1 | 5,8 | 2,4 |
Tatarar | 2,1 | 2,2 | 2,1 | 2,0 | 1,7 |
Úsbekar | 1,5 | 1,7 | 1,8 | 2,0 | 2,5 |
Hvítrússar | 1,2 | 1,5 | 1,2 | 1,1 | 0,8 |
Úígúrar | 0,6 | 0,9 | 1,0 | 1,1 | 1,4 |
Kóreumenn | 0,8 | 0,6 | 0,6 | 0,6 | 0,7 |
Kasakska er opinbert tungumál í Kasakstan, en ekki kunna allir þeir sem búa eða eru innfæddir í Kasakstan þá tungu. Rússneska er reyndar töluð meira en kasakska í Kasakstan. Í fyrirtækjum er rússneska opinbert tungumál og kasakska er þar sjaldan eða aldrei töluð. En í stjórnkerfinu er alltaf töluð kasakska vegna þess að Nazarbaev vill að kasakska sé opinbert tungumál í Kasakstan. Í borgum eins og Almaty og Astana, sem eru mjög alþjóðlegar, er rússneska töluð meira en kasakska. En ef maður fer til Suður-Kasakstan og heimsækir borgir eins og Sjimkent og Túrkistan, mun maður einungis heyra kasöksku.[9]
Kennsla í skólum í Kasakstan fór áður fram á rússnesku. Frá og með árinu 1991 hefur kennsla farið fram bæði á rússnesku og kasöksku í skólum en sumir skólar nota aðeins annað málið. Í alþjóðlegum skólum er stundum kennt á ensku, en venjulega á rússnesku. Einnig er skóli í Túrkestan þar sem kennt er á tyrknesku. Læsi í Kasakstan er 99,5%. Allir kunna kýrillíska og latneska stafrófið og sumir kunna arabíska stafrófið. Börn í Kasakstan byrja á leikskóla fimm eða sex ára gömul. Árið 2004 voru 100 leikskólar í Kasakstan og í þá gengu 135.856 börn (eða 63% barna á aldrinum fimm til sex ára í Kasakstan). Á leikskólum er bæði kennt á kasöksku og rússnesku, þó oftast er rússneska algengari. Eftir leikskóla hefst grunnskóli og þar á eftir menntaskóli. Nemendur ljúka menntaskóla 18 ára og fara svo í háskóla. Til eru margir háskólar í Kasakstan, sérstaklega í Almaty.
Menning í Kasakstan verður fyrir áhrifum frá Rússlandi, Mongólíu og Tyrklandi. Inntak hins fullkomna í kasaskri menningu er lífsmáti hirðingjans. Kúlutjöld eru enn mjög almenn í sveitum og eru líka tákn kasöksku menningarinnar. Kasakskt fólk er mjög gestrisið og gleðst alltaf yfir að hitta útlendinga sem hafa áhuga á landi þess.
Dagsetning | Íslenskt nafn | Kasakskt nafn |
---|---|---|
1. janúar | Nýársdagur | Жаңа жыл |
7. janúar | Jól (rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar) | Рождество Христово |
8. mars | Alþjóðlegi kvennadagurinn | Халықаралық әйелдер күні |
22. mars | Nárús (Mars) | Наурыз мейрамы |
1. maí | Fyrsti maí | Қазақстан Ұлттарының Бірлік Күні |
9. maí | Sigurdagurinn í seinni heimsstyrjöldinni | Жеңіс күні |
30. ágúst | Stjórnarskrárdagurinn | Конституция күні |
25. október | Lýðveldisdagurinn | Республика күні |
16. desember | Þjóðhátíðardagur | |
Besjbarmak er þjóðarréttur í Kasakstan. Hann er úr hveitimjöli og hrossakjöti. Te er mjög almennur drykkur í Kasakstan og mjög ódýrt. Þjóðardrykkurinn í Kasakstan er kúmis, sem er úr geitamjólk. Margar kjörbúðir eru í borgum þar sem fólk getur keypt ávexti, kjöt og fleira.
Íslam er útbreiddast trúarbragða í Kasakstan. Í Kasakstan hefur aldrei verið lagt mikið upp úr trúarbrögðum. Nær 47% íbúa í Kasakstan eru múslimar, en einungis 3% af þeim telja sig trúaða. Því er eins farið með önnur trúarbrögð. Gyðingar frá Rússlandi búa einnig í Kasakstan, einkum í borgunum Almaty og Pavlódar. Kristindómur og búddismi eru líka meðal trúarbragða í Kasakstan, en ekki jafn útbreidd. Samfélagið í Kasakstan er undir áhrifum frá íslam. Þau áhrif leyna sér ekki í Kasakstan, til dæmis í tungumálinu, á kasöksku heilsar maður með orðunum Assalam alaikum, sem er algeng kveðja í íslömskum löndum.
Nú á dögum er tónlist í Kasakstan blanda af poppi og hefðbundinni tónlist. Dombra, sem er kasakskur gítar, er enn notaður í tónlist nútímans, bæði í poppi og hefðbundnari tónlist. Tónlist frá Kasakstan er ekki mjög vinsæl í Kasakstan, vegna þess að mörgum landsmanna þykir tónlist frá Rússlandi, Englandi og Bandaríkjunum skemmtilegri. Hér fyrir neðan eru tenglar á tónlistarmyndbönd frá Kasakstan og einnig má smella á hljómsveitirnir til að lesa meira um þær.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.