Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sósíalismi, einnig nefndur félagshyggja, er yfirheiti fjölda hugmyndafræða og stjórnmálahreyfinga sem einkennast af hugmyndum um samneyslu og sameiginlegri eign samfélagsins á framleiðslutækjum, jarðnæði og/eða auðlindum. Markmið sósíalismans er venjulega að stuðla að auknu efnahagslegu jafnræði og draga úr stéttaskiptingu með því að stjórna þessum eignum með hag allra í samfélaginu fyrir brjósti.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: einfalda svo hún hæfi betur sem yfirgrein og stofna sér undirgreinar um hinar ýmsu hugmynda- og stjórnmálaskoðanir sósíalismans |
Hugmyndafræðin mótaðist á 19. öld í andstöðu við kapítalisma sem sósíalistar töldu að væri ómannúðlegt og óréttlátt skipulag þar sem yfirstétt í valdi fjármagns drottnaði yfir vinnuaflinu. Nánara fyrirkomulag sósíalísks samfélags hefur alla tíð verið deiluefni og fyrir vikið eru undirgreinar sósíalismans allmargar og hafa þróast með ýmsum hætti í gegnum tíðina.
Af þeim stjórnmálahreyfingum sem hafa kennt sig við sósíalisma hafa þrjár verið útbreiddastar og áhrifamestar. Eru það kommúnismi, sósíaldemókratismi, eða lýðræðisjafnaðarstefna en oftast bara nefnd jafnaðarstefna (e. democratic socialism) og stjórnleysisstefna (e. anarchism).
Kommúnismi, eða sameignarstefna, er hugmyndafræði sem leggur áherslu á sameign og að útrýma skuli misrétti og ójöfnuði kapítalismans, jafnvel þótt það krefjist byltingar. Kommúnistar undir forystu Vladimírs Leníns náðu völdum í Rússaveldi eftir októberbyltinguna 7. nóvember 1917 og héldu þeim til hausts 1991. Þeir stofnuðu Sovétríkin. Með stuðningi Sovétríkjanna tóku kommúnistar völd í nokkrum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu eftir seinni heimsstyrjöld og stofnuðu svonefnd alþýðulýðveldi, en hafa víða tapað völdum eða breytt um stefnu. Kommúnistar náðu einnig völdum undir forystu Maó Zedong í Kína árið 1949 og hafa haldið þeim síðan. Kommúnistar ráða einnig yfir Norður-Kóreu, Kúbu og Víetnam. Helstu hugsuðir kommúnismans eru Karl Marx og Vladimír Lenín.
Á Íslandi starfaði Kommúnistaflokkur Íslands frá 1930 til 1938 og átti aðild að alþjóðasambandi kommúnista, Komintern. Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn var stofnaður árið 1938 með sameiningu Kommúnistaflokksins og hluta Alþýðuflokksins og starfaði til 1968 þegar Alþýðubandalagið var gert að formlegum stjórnmálaflokki.
Sósíaldemókratismi, eða jafnaðarstefna, er hugmyndafræði sem leggur áherslu á að lýðræði og almenn mannréttindi séu virt, auk þess sem reynt er að tryggja afkomuöryggi fjöldans og réttlátari tekjuskiptingu. Sósíaldemókratar vilja auka jöfnuð í samfélaginu með félagslegum umbótum innan ramma lýðræðis. Í Svíþjóð mótuðu jafnaðarmenn hugmyndina um „folkhemmet“, þjóðarheimilið, þar sem ríkið gegndi lykilhlutverki í velferð borgaranna. Í Bretlandi setti William Beveridge lávarður fram svipaðar hugmyndir um víðtækar almannatryggingar.
Alþýðuflokkurinn sem starfaði á Íslandi frá 1916 til 2000 kenndi sig við jafnaðarstefnu. Samfylkingin, stofnuð árið 2000 með samruna Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins, Þjóðvaka og Kvennalistans, starfar einnig í anda jafnaðarstefnu. Samfylkingin á aðild að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna eins og Alþýðuflokkurinn hafði áður gert.
Fyrstu sósíalistarnir í nútímaskilningi eru venjulega taldir Saint-Simon markgreifi í Frakklandi og Robert Owen í Bretlandi. Á fyrri hluta 19. aldar gagnrýndu þeir báðir ójöfnuð og röktu hann til einkaeignarréttar á framleiðslutækjum og uppskiptingu fólks í stéttir. Á miðri 19. öld settu Karl Marx og Friedrich Engels fram kerfisbundnar kenningar um eðlislægar mótsagnir kapítalismans sem yrðu honum að falli. Eftir það tækju öreigarnir völdin. Í upphafi 20. aldar klofnaði hreyfing sósíalista í sameignarsinna og lýðræðisjafnaðarmenn. Vladimir Lenín hélt fast við kenningar Marx og Engels og kvað öflugan kommúnistaflokk geta tekið völdin hvort sem hann hefði sigrað í kosningum eða ekki. Eduard Bernstein taldi hins vegar að sósíalistar ættu að vinna að umbótum innan lýðræðislegra stofnana og að kenningar Marx þyrfti að endurskoða. Í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar urðu lýðræðisjafnaðarmenn áhrifameiri í Vestur-Evrópu og tóku upp hugmyndirnar um blandað hagkerfi og velferðarþjónustu.
Þorsteinn Erlingsson skáld var einn fyrsti yfirlýsti sósíalistinn á Íslandi og Jón Trausti spáði því að sósíalisminn myndi deyja út með Þorsteini árið 1914, en sú spá stemmdi ekki. Ólafur Friðriksson hafði kynnst hugsjónum sósíalismans í Kaupmannahöfn og kynnti þær á Íslandi eftir að hann sneri heim frá Kaupmannahöfn. Hann var lengi ritstjóri Alþýðublaðsins. Hann skrifaði ritgerðina „Jafnaðarstefnuna“ í Eimreiðina 1926. Rithöfundarnir Þórbergur Þórðarson og Halldór Kiljan Laxness höfðu áhrif á útbreiðslu sósíalískra hugmynda með verkum sínum, svo sem Bréfi til Láru (1924) og Alþýðubókinni (1929).
Eftir klofning Alþýðuflokksins 1930 létu kommúnistar meira að sér kveða í fræðilegri kynningu en lýðræðisjafnaðarmenn. Gylfi Þ. Gíslason var áberandi í að koma sjónarmiðum jafnaðarmanna á framfæri, meðal annars í ritinu Jafnaðarstefnan (1949). Brynjólfur Bjarnason skrifaði um sameignarstefnu í anda Marx og Leníns.
Frá því að Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn var lagður niður árið 1968 við stofnun Alþýðubandalagsins var ekki starfandi stjórnmálaflokkur undir sérstöku merki sósíalískrar hugmyndafræði uns Alþýðufylkingin var stofnuð árið 2013. Hún hefur verið virk í kosningum og boðið fram í öllum þeim tíðu alþingiskosningum síðan hún var stofnuð en ekki komið manni á þing. Sósíalistaflokkur Íslands var síðan stofnaður þann 1. maí árið 2017 en einn aðalhvatamaður að stofnun hans var Gunnar Smári Egilsson blaðamaður og fyrrum ritstjóri.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.