From Wikipedia, the free encyclopedia
Ludwig von Mises (29. september 1881-10. október 1973) var austurrískur hagfræðingur (sem síðar gerðist bandarískur ríkisborgari), sem kunnastur er fyrir ádeilu sína á sósíalisma.
Mises fæddist í Lemberg í keisaradæmi austurrísku Habsborgaranna (nú Lviv í Úkraínu), en ólst upp í Vínarborg. Hann nam hagfræði og lögfræði í Vínarháskóla, þar sem hann var lærisveinn Eugens von Böhm-Bawerks, sem var kunnur hagfræðingur og um skeið fjármálaráðherra Austurríkis. Þótt Mises fengi ekki fasta kennarastöðu í háskóla að loknu doktorsprófi 1906 skrifaði hann næstu áratugi fjölda fræðirita, aðallega um peningamál og hagsveiflur, og hélt reglulega málstofu sem efnilegustu hagfræðinemar Austurríkis sóttu, þar á meðal Friedrich A. von Hayek. Mises var eindreginn, jafnvel einstrengingslegur frjálshyggjumaður. Hann leiddi rök að því í bókinni Sameignarskipulaginu (þ. Die Gemeinwirtschaft) 1922, að víðtækur áætlunarbúskapur eins og sósíalistar þeirra tíma hugsuðu sér fengi ekki staðist, þar sem þeir, sem semdu áætlunina, gætu aldrei aflað fullnægjandi upplýsinga um aðstæður úti í atvinnulífinu. Sú bók hafði mikil áhrif á Hayek og aðra unga hagfræðinga, þar á meðal Lionel Robbins í Bretlandi, Bertil Ohlin í Svíþjóð og Wilhelm Röpke í Þýskalandi. Mises var ákafur andstæðingur þjóðernisjafnaðarstefnu (nasisma) og fluttist til Sviss 1934, þar sem hann varð prófessor í rannsóknarstofnun um alþjóðaviðskipti. Eftir sigurgöngu nasismans í Evrópu vorið 1940 sá hann þann kost vænstan að flýja til Bandaríkjanna, þar sem hann fékkst við ýmis störf, uns hann gerðist hagfræðiprófessor við New York University 1945. Þar hélt hann reglulega málstofu eins og forðum í Vínarborg og hafði nokkur áhrif, þó að kenningar austurrísku hagfræðinganna um eðli atvinnulífsins nytu þá almennt ekki hylli og þættu sérviskulegar. Hann var einn af stofnendum Mont Pèlerin Samtakanna árið 1947. Hann lést í New York. Hann var kvæntur Margit von Mises og er stjúpdóttir hans Gitta Serény kunnur blaðamaður og rithöfundur.
Á íslensku hafa komið út eftir Mises Hugleiðingar um hagmál (1991) í þýðingu Jónmundar Guðmarssonar.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.