Seinni heimsstyrjöldin
styrjöld frá 1939 til 1945 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Seinni heimsstyrjöldin eða heimsstyrjöldin síðari var útbreidd styrjöld, sem hófst í Evrópu en breiddist síðan út til annarra heimsálfa og stóð í rúm sex ár. Meirihluti þjóða heims kom að henni með einhverjum hætti og var barist á vígvöllum víða um heim. Talið er að um 62 milljónir manna hafi fallið (sem á þeim tíma var 2,5% alls mannkyns) og að mun fleiri hafi særst og er hún mannskæðasta styrjöld mannkynssögunnar.
Seinni heimsstyrjöldin | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Réttsælis frá efra horni til vinstri: Kínverskar herdeildir í orrustunni um Wanjialing, ástralskar fallbyssur í fyrstu orrustunni við El Alamein, þýskar sprengjuflugvélar á austurvígstöðvunum í desember 1943, bandarísk herskip við innrásina í Lingayenflóa, Wilhelm Keitel að undirrita uppgjöf Þjóðverja, sovéskir hermenn í orrustunni um Stalíngrad. | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
Bandamenn | Öxulveldin | ||||||
Leiðtogar | |||||||
Mannfall og tjón | |||||||
Hermenn látnir: Rúmlega 16.000.000 Almennir borgarar látnir: Rúmlega 45.000.000 Alls látnir: Rúmlega 61.000.000 |
Hermenn látnir: Rúmlega 8.000.000 Almennir borgarar látnir: Rúmlega 4.000.000 Alls látnir: Rúmlega 12.000.000 |
Stríðið var háð á milli tveggja ríkjahópa. Annars vegar var um að ræða bandalag Bandaríkjanna, Breska heimsveldisins, Kína, Sovétríkjanna (eftir 1941) auk útlægrar ríkisstjórnar Frakklands og fjölda annarra ríkja sem gekk undir nafninu Bandamenn; hins vegar var bandalag Ítalíu, Japans og Þýskalands auk fleiri ríkja, sem gekk undir nafninu Öxulveldin eða Möndulveldin.
Mest var barist í Evrópu og Austur-Asíu og á Kyrrahafi en einnig í Norður-Afríku.
Venjulega er sagt að upphaf stríðsins hafi verið í Evrópu í kjölfar innrásar Þjóðverja í Pólland þann 1. september 1939 en Bretar og Frakkar lýstu yfir stríði á hendur Þjóðverjum tveimur dögum síðar. Átökin í Evrópu breiddust út á Atlantshaf og til Norður-Afríku. Stríð hafði brotist út fyrr í Asíu og er þá ýmist miðað við innrás Japana í Kína árið 1937 eða jafnvel innrás þeirra í Mansjúríu 1931 en þegar þeir réðust á flota Bandaríkjamanna í Perluhöfn á Hawaii fléttuðust saman stríðið í Asíu og stríðið í Evrópu og Bandaríkin drógust einnig inn í átökin í Afríku og Evrópu. Í Evrópu lauk stríðinu með uppgjöf Þjóðverja 8. maí 1945 en stríðið hélt áfram í Asíu þar til Japanir gáfust upp 15. ágúst 1945 eftir að Bandaríkin höfðu varpað tveimur kjarnorkusprengjum á borgirnar Hiroshima 6. ágúst og Nagasaki 9. ágúst. Japanir gáfust formlega upp þann 2. september sama ár.
Seinni heimsstyrjöldin hafði gríðarleg áhrif á alþjóðastjórnmál. Valdajafnvægi breyttist en til urðu tvö stórveldi, Bandaríkin og Sovétríkin. Máttur eldri stórvelda fór þverrandi en stríðið skildi eftir sig sviðna jörð víðast hvar í Evrópu auk þess sem jafnvel sigurvegarar sátu eftir með gríðarháar stríðsskuldir. Þá má segja að seinni heimsstyrjöldin hafi markað endalok heimsveldsisstefnunnar sem Evrópuríkin höfðu fylgt frá 19. öld. Evrópa skiptist í tvennt, Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu, sem áhrifasvæði stórveldanna; tvö hernaðarbandalög voru stofnuð, NATO og Varsjárbandalagið og kalda stríðið hófst. Sameinuðu þjóðirnar voru einnig stofnaðar í kjölfar stríðsins.