Mjanmar
ríki í Suðaustur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mjanmar (búrmíska: မြန်မာ), einnig þekkt sem Búrma, er land í Suðaustur-Asíu. Það á landamæri að Alþýðulýðveldinu Kína í norðri, Laos í austri, Taílandi í suðaustri, Bangladess í vestri og Indlandi í norðvestri. Það liggur að Andamanhafi í suðri og Bengalflóa í vestri. Mjanmar er stærsta landið á meginlandshluta Suðaustur-Asíu og það 10. stærsta í Asíu. Árið 2017 voru íbúar um 54 milljónir. Höfuðborg landsins er Naypyidaw en Jangún (Rangún) er stærsta borgin.
Mjanmarsambandið | |
Pyidaunzu Thanmăda Myăma Nainngandaw | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Kaba Ma Kiey | |
Höfuðborg | Naypyidaw |
Opinbert tungumál | búrmíska |
Stjórnarfar | Þingóháð lýðveldi; herforingjastjórn |
Forseti | Myint Swe (starfandi) |
Forsætisráðherra | Min Aung Hlaing |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 4. janúar, 1948 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
39. sæti 676.578 km² 3,06% |
Mannfjöldi • Samtals (2017) • Þéttleiki byggðar |
26. sæti 53.582.855 76/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 355 millj. dala (51. sæti) |
• Á mann | 6.707 dalir (128. sæti) |
VÞL (2019) | 0.583 (147. sæti) |
Gjaldmiðill | kjat (MMK) |
Tímabelti | UTC+6:30 |
Þjóðarlén | .mm |
Landsnúmer | +95 |
Meðal menningarsamfélaga sem hafa risið í Mjanmar eru Pyu-borgríkin í norðri þar sem íbúar töluðu tíbetóbúrmísk mál, og Mon-ríkin í Neðra-Búrma. Á 9. öld fluttust Bamarar í árdal Irrawaddy, og eftir stofnun Pagan-ríkisins á 11. öld varð búrmíska ásamt Theravada-búddisma smám saman ríkjandi í landinu. Pagan-ríkið féll við innrásir Mongóla og nokkur smærri ríki urðu til. Á 16. öld sameinaði Taungoo-veldið þessi ríki og landið varð um stutt skeið stærsta keisaraveldið í sögu Suðaustur-Asíu. Snemma á 19. öld ríkti Konbaung-veldið yfir því landsvæði sem síðar varð þekkt sem Búrma, auk Assam og Manipúr. Breska Austur-Indíafélagið náði völdum í Mjanmar eftir þrjú stríð Bretlands og Búrma á 19. öld og landið varð bresk nýlenda. Landið fékk sjálfstæði árið 1948. Eftir valdaránið í Búrma 1962 tók við herforingjastjórn Sósíalistaflokks Búrma.
Lengst af eftir að landið fékk sjálfstæði hafa hin fjölmörgu þjóðarbrot sem byggja landið átt í langvinnum átökum sín á milli. Á sama tíma hafa Sameinuðu þjóðirnar og fleiri alþjóðlegir eftirlitsaðilar bent á margvísleg kerfisbundin mannréttindabrot í landinu. Árið 2011 var herforingjastjórnin formlega leyst upp í kjölfar þingkosninga 2010 og borgaraleg stjórn tók við völdum. Á sama tíma var pólitískum föngum, eins og stjórnarandstöðuleiðtoganum Aung San Suu Kyi, sleppt úr haldi. Þetta varð til þess að bæta samskipti Mjanmar við önnur ríki og dró úr viðskiptaþvingunum. Stjórn Mjanmar og herinn hafa hins vegar verið gagnrýnd fyrir ofsóknir gegn minnihlutahópum í landinu og hörð viðbrögð við mótmælum og átökum trúarhópa. Í kosningunum 2015 vann flokkur Suu Kyi meirihluta í báðum deildum. Her Mjanmar hélt þó miklum völdum í landinu og árið 2021 framdi hann valdarán gegn borgaralegri stjórn Aung San Suu Kyi.
Mjanmar er aðili að Leiðtogafundi Austur-Asíuríkja, Samtökum hlutlausra ríkja, ASEAN og BIMSTEC, en er ekki hluti af Breska samveldinu. Landið er auðugt af jaði og eðalsteinum, olíu, jarðgasi og öðrum jarðefnum. Mjanmar býr líka yfir miklum endurnýjanlegum orkulindum; landið á mestu möguleika til framleiðslu sólarorku af öllum ríkjum á Stór-Mekongsvæðinu. Árið 2013 var landsframleiðsla að nafnvirði 56,7 milljarðar dala. Tekjubilið í Mjanmar er með því mesta sem gerist í heiminum, þar sem stórir hlutar efnahagslífsins eru undir stjórn stuðningsmanna herforingjastjórnarinnar. Samkvæmt Vísitölu um þróun lífsgæða árið 2019 var Mjanmar í 147. sæti af 189.