Boston
From Wikipedia, the free encyclopedia
Boston er höfuðborg og stærsta borg Massachusettsfylkis í Bandaríkjunum. Borgin er einskonar óopinber höfuðborg þess svæðis sem kallað er Nýja England og ein elsta, ríkasta og menningarlega mikilvægasta borg Bandaríkjanna. Efnahagur borgarinnar byggir aðallega á menntun, heilsu, viðskiptum og tækni. Boston var stofnuð 17. september árið 1630 af Bretum í nýlenduleit. Íbúafjöldi í borginni sjálfri er um 700.000 (2018), en á stórborgarsvæðinu eru íbúarnir um 4,8 milljónir talsins (áætlaður fjöldi árið 2016).
Boston | |
---|---|
Viðurnefni: Borgin á hæð, Baunabær, Vagga frelsisins, Aþena Ameríku, Hreintrúarborgin, Miðpunktur sólkerfisins | |
Kjörorð: Vagga frelsisins | |
Sýsla | Suffolk County |
Ríki | Massachusetts |
Land | Bandaríkin |
Stofnun | 17. september 1630 |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Michelle Wu (D) |
Flatarmál | |
• Borg | 232,1 km2 |
• Land | 125,4 km2 |
• Vatn | 106,7 km2 |
Mannfjöldi (2018) | |
• Borg | 695.000 |
• Þéttleiki þéttbýlis | 4.925/km2 |
• Stórborgarsvæði | 4.800.000 |
Tímabelti | EST (UTC-5) |
Svæðisnúmer | 617 og 857 |
Borgin er í miðju Boston-Worcester-Manchester CSA (Combined Statistical Area), sem er hið sjöunda stærsta í Bandaríkjunum. Til þess svæðis teljast hlutar fylkjana New Hampshire, Maine, Rhode Island, og Connecticut. Borgin er líka miðja Stór-Bostonsvæðisins, sem tekur til borganna Cambridge, Brookline, Quincy, Newton og margra úthverfa við Boston.