Broddaneshreppur. Skiptist í Fellshrepp og Óspakseyrarhrepp seint á 19. öld. Stundum nefndur Bitruhreppur í nokkrum eldri heimildum. Aftur stofnaður 1. janúar 1992 með sameiningu sömu tveggja hreppa. Frá 10. júní 2006 hluti Strandabyggðar.
Búðahreppur. Stofnaður 1907, áður hluti Fáskrúðsfjarðarhrepps. Frá 1. október 2003 hluti Austurbyggðar.
Búlandshreppur. Stofnaður 15. apríl 1940, áður hluti Geithellnahrepps. Frá 1. október 1992 hluti Djúpavogshrepps.
Bæjarhreppur í Strandasýslu. Hét áður Hrútafjarðarhreppur. Frá 1. janúar 2012 hluti Húnaþings vestra.
Bæjarhreppur í Austur-Skaftafellssýslu. Stofnaður 1801, áður hluti Holtahrepps. Frá 6. júní 1998 hluti sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarhreppur í Árnessýslu. Sjá Gaulverjabæjarhrepp.
Dalabyggð. Stofnuð 11. júní 1994 við sameiningu 6 hreppa.
Dalvíkurbyggð. Stofnuð 7. júní 1998 við sameiningu 3 sveitarfélaga.
Dalvíkurkaupstaður. Stofnaður sem Dalvíkurhreppur 1. janúar 1946, áður hluti Svarfaðardalshrepps. Kaupstaðarréttindi 22. apríl 1974. Frá 7. júní 1998 hluti Dalvíkurbyggðar.
Djúpavogshreppur. Stofnaður 1. október 1992 við sameiningu 3 hreppa. Sameinaðist Múlaþingi árið 2020.
Djúpárhreppur. Stofnaður 1. janúar 1938, áður hluti Ásahrepps. Frá 9. júní 2002 hluti Rangárþings ytra.
Egilsstaðabær. Stofnaður 1947 sem Egilsstaðahreppur, áður hluti Vallahrepps og Eiðahrepps. Fékk kaupstaðarréttindi 1987. Frá 7. júní 1998 hluti Austur-Héraðs.
Eiðahreppur. Stofnaður snemma á 18. öld, áður hluti Vallahrepps. Frá 7. júní 1998 hluti Austur-Héraðs.
Eskifjarðarkaupstaður. Kaupstaðarréttindi 1786 en missti aftur. Eskifjarðarhreppur stofnaður 1907, áður hluti Reyðarfjarðarhrepps. Kaupstaðarréttindi 22. apríl 1974. Frá 7. júní 1998 hluti Fjarðabyggðar.
Fellahreppur. Áður hluti Tungu- og Fellnahrepps. Frá 1. nóvember 2004 hluti Fljótsdalshéraðs.
Fellshreppur í Skagafjarðarsýslu. Hét áður Sléttuhlíðarhreppur. Sameinaðist Hofshreppi 10. júní 1990.
Fellshreppur í Strandasýslu. Áður hluti Broddaneshrepps sem stundum er kallaður Bitruhreppur í eldri heimildum og klofnaði í tvennt seint á 19. öld. Frá 1. janúar 1992 sameinuðust sömu hreppar aftur undir nafni Broddaneshrepps.
Hafnarhreppur (Höfn í Hornafirði). Stofnaður 1. janúar 1946, áður hluti Nesjahrepps. Fékk kaupstaðarréttindi 31. desember 1988. Frá 12. júní 1994 hluti Hornafjarðarbæjar.
Haganeshreppur. Stofnaður 1898/99, áður hluti Fljótahrepps. Frá 1. apríl 1988 hluti endurvakins Fljótahrepps.
Múlahreppur (Skálmarnesmúlahreppur). Frá 4. júlí 1987 hluti Reykhólahrepps.
Múlaþing. Sveitarfélag sem stofnað var árið 2020 og nær yfir fjögur fyrrum sveitarfélög: Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað, Borgarfjarðarhrepp og Djúpavogshrepp.
Mýrahreppur í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Frá 1. júní 1996 hluti Ísafjarðarbæjar.
Mýrahreppur í Austur-Skaftafellssýslu. Stofnaður 14. nóvember 1876, áður hluti Bjarnaneshrepps. Frá 12. júní 1994 hluti Hornafjarðarbæjar.
Mýrdalshreppur. Stofnaður 1. janúar 1984 við sameiningu 2 hreppa.
Nauteyrarhreppur. Hét áður Langadalsströnd. Sameinaðist Hólmavíkurhreppi 11. júní 1994.
Neshreppur í Snæfellsnessýslu. Skipt í tvennt á 19. öld.
Neshreppur í Suður-Múlasýslu. Stofnaður 1913, áður hluti Norðfjarðarhrepps. Kaupstaðarréttindi 1. janúar 1929, hét þá Neskaupstaður.
Neshreppur utan Ennis. Stofnaður á 19. öld, áður hluti Neshrepps. Frá 11. júní 1994 hluti Snæfellsbæjar.
Nesjahreppur. Stofnaður 14. nóvember 1876, áður hluti Bjarnaneshrepps. Frá 12. júní 1994 hluti Hornafjarðarbæjar.
Neskaupstaður. Frá 1. janúar 1929, áður Neshreppur. Frá 7. júní 1998 hluti Fjarðabyggðar.
Njarðvíkurbær (Njarðvíkurkaupstaður). Njarðvíkurhreppur stofnaður 1889, áður hluti Vatnsleysustrandarhrepps. 15. júní 1908 - 1. janúar 1942 hluti Keflavíkurhrepps. Kaupstaðarréttindi 1. janúar 1976. Frá 11. júní 1994 hluti Reykjanesbæjar.
Norðurþing. Stofnað 10. júní 2006 við sameiningu 4 sveitarfélaga.
Ólafsfjarðarbær. Áður Ólafsfjarðarhreppur, hét um tíma Þóroddsstaðahreppur. Hét Ólafsfjarðarkaupstaður frá 1. janúar 1945 til 2001. Frá 11. júní 2006 hluti Fjallabyggðar.
Ólafsvíkurbær (Ólafsvíkurkaupstaður). Ólafsvíkurhreppur stofnaður 1911, áður hluti Neshrepps innan Ennis. Kaupstaðarréttindi 14. apríl 1983. Frá 11. júní 1994 hluti Snæfellsbæjar.
Óspakseyrarhreppur. Áður hluti Broddaneshrepps á Ströndum sem í eldri heimildum er stundum kallaður Bitruhreppur og klofnaði í tvennt seint á 19. öld. Frá 1. janúar 1992 sameinuðust sömu hreppar aftur undir nafni Broddaneshrepps.
Patrekshreppur. Stofnaður 1907, áður hluti Rauðasandshrepps. Frá 11. júní 1994 hluti Vesturbyggðar.
Presthólahreppur. Sameinaðist Öxarfjarðarhreppi 17. febrúar 1991.
Sauðárkrókskaupstaður. Sauðárkrókshreppur stofnaður 1907, áður hluti Sauðárhrepps. Kaupstaðarréttindi 1947. Frá 6. júní 1998 hluti sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Saurbæjarhreppur í Eyjafjarðarsýslu. Frá 1. janúar 1991 hluti Eyjafjarðarsveitar.
Saurbæjarhreppur (Saurbæjarsveit) í Dalasýslu. Sameinaðist Dalabyggð 10. júní 2006.
Selfosskaupstaður. Selfosshreppur stofnaður 1. janúar 1946, áður hluti Sandvíkurhrepps. Kaupstaðarréttindi 18. maí 1978. Frá 7. júní 1998 hluti sveitarfélagsins Árborgar.