Katrín Jakobsdóttir
fyrrum forsætisráðherra Íslands From Wikipedia, the free encyclopedia
Katrín Jakobsdóttir (fædd 1. febrúar 1976) er fyrrum forsætisráðherra Íslands og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 2013 til 2024. Hún starfaði sem mennta- og menningarmálaráðherra frá 2009 til 2013 og sem forsætisráðherra frá 2017 til 2024. Hún er önnur konan sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra Íslands. Katrín var oddviti Vinstri græns í Reykjavíkurkjördæmi norður. Katrín sagði af sér sem forsætisráðherra og þingmennsku árið 2024 og bauð sig fram í embætti forseta Íslands fyrir forsetakosningarnar 2024 og lenti í öðru sæti með 25,1% atkvæða.
Katrín Jakobsdóttir | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Katrín árið 2023. | |||||||||
Forsætisráðherra Íslands | |||||||||
Í embætti 30. nóvember 2017 – 9. apríl 2024 | |||||||||
Forseti | Guðni Th. Jóhannesson | ||||||||
Forveri | Bjarni Benediktsson | ||||||||
Eftirmaður | Bjarni Benediktsson | ||||||||
Mennta- og menningarmálaráðherra | |||||||||
Í embætti 2. febrúar 2009 – 23. maí 2013 | |||||||||
Forsætisráðherra | Jóhanna Sigurðardóttir | ||||||||
Forveri | Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir | ||||||||
Eftirmaður | Illugi Gunnarsson | ||||||||
Formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs | |||||||||
Í embætti 24. febrúar 2013 – 5. apríl 2024 | |||||||||
Forveri | Steingrímur J. Sigfússon | ||||||||
Eftirmaður | Guðmundur Ingi Guðbrandsson | ||||||||
Alþingismaður | |||||||||
| |||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||
Fædd | 1. febrúar 1976 Reykjavík, Íslandi | ||||||||
Stjórnmálaflokkur | Vinstrihreyfingin – grænt framboð | ||||||||
Maki | Gunnar Sigvaldason | ||||||||
Börn | 3 | ||||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||||
Starf | Stjórnmálamaður | ||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Katrín var á þingferli sínum einn vinsælasti einstaklingur í íslenskum stjórnmálum. Samkvæmt nokkrum skoðaðakönnunum vildu flestir Íslendingar Katrínu sem forsætisráðherra.[1][2] Könnun árið 2015 leiddi í ljós að Katrín naut mests trausts (59,2% þátttakenda) alls forystufólks í íslenskum stjórnmálum, þar með taldir forsetar.[3] Í könnun árið 2021 sögðust 61% styðja Katrínu sem forsætisráðherra, sem að er það hæsta hlutfall stuðnings til forsætisráðherra Íslands.[4]
Fjölskylda
Foreldrar Katrínar hennar voru Jakob Ármannson bankamaður og kennari og Signý Thoroddsen sálfræðingur. Jakob lést árið 1996 og Signý árið 2011.[5]
Tvíburarnir Ármann Jakobsson og Sverrir Jakobsson eru bræður hennar. Skúli Thoroddsen stjórnmálamaður var langafi Katrínar og Theódóra Thoroddsen skáld langamma hennar, móðurafi hennar Sigurður S. Thoroddsen verkfræðingur og alþingismaður og Dagur Sigurðarson skáld móðurbróðir hennar.
Katrín er gift Gunnari Sigvaldasyni. Þau eiga saman þrjá syni en Katrín var fyrst sitjandi ráðherra á Íslandi til að fæða barn.[6]
Menntun og starfsferill
Katrín lauk grunnskólaprófi frá Langholtsskóla 1992, stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1996 með hæstu meðaleinkunn sem fengist hafði á stúdentsprófi þar, 9,7.[7] Hún lauk BA-prófi í íslensku með frönsku sem aukagrein frá Háskóla Íslands 1999 og MA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 2004 en lokaritgerð hennar fjallaði um Arnald Indriðason, glæpasagnahöfund.[5]
Katrín starfaði sem málfarsráðunautur á fréttastofum RÚV frá 1999 til 2003. Árin 2004–2007 kenndi hún í Endurmenntun HÍ og Mími. Hún var einnig ritstjóri hjá Eddu útgáfu og JPV útgáfu frá 2005–2006. Síðan starfaði hún sem stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Menntaskólinn í Reykjavík.[5]
Þann 14. janúar 2025, eftir að Katrín hætti þátttöku í stjórnmálum, tók hún við af Daða Má Kristóferssyni sem formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands.[8]
Stjórnmál
Katrín var formaður Ungra Vinstri grænna á árunum 2002 til 2003. Kjörtímabilið 2002 til 2006 var hún varaborgarfulltrúi í Reykjavík fyrir Reykjavíkurlistann. Katrín var kjörin varaformaður flokksins árið 2003. Katrín tók fyrst sæti á Alþingi í alþingiskosningnum 2007 og var menntamálaráðherra á árunum 2009 til 2013. Hún var kjörin formaður Vinstri grænna fyrir alþingiskosningarnar 2013.[5]
Alþingiskosningar 2016
Sjálfstæðisflokkurinn var fyrstur til að fá stjórnarmyndunarumboð eftir Alþingiskosningar 2016. Eftir að Bjarna Benediktssyni tókst ekki að mynda þriggja flokka stjórn með Bjartri framtíð og Viðreisn skilaði hann umboðinu til Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands.[9] Næst fékk Katrín umboðið fyrir hönd Vinstri grænna og reyndi að mynda fimm flokka stjórn með Bjartri framtíð, Viðreisn, Samfylkingu og Pírötum. Ekki tókst að mynda stjórn og því skilaði Katrín umboðinu til forsetans þann 24. nóvember 2016.[10]
Alþingiskosningar 2017
Niðurstaða Alþingiskosninga 2017 var ekki afgerandi. Stærsti flokkurinn var Sjálfstæðisflokkurinn með 25,3% atkvæða en Vinstri græn voru næststærsti flokkurinn með 16,9%.[11] Þann 2. nóvember 2017 fékk Katrín stjórnarmyndunarumboð frá forseta Íslands. Einum degi seinna hófust formlegar stjórnarmyndunarviðræður milli Vinstri grænna, Pírata, Samfylkingar og Framsóknarflokksins. Ekki náðist að mynda stjórn en Framsóknarflokkurin taldi að sögn meirihluta 32 þingmanna of nauman og því var viðræðum slitið eftir fjóra daga.[12][13]
Degi síðar ræddi Katrín við leiðtoga Sjálfstæðisflokksins, og hófust fljótlega óformlegar stjórnarmyndunarviðræður Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna.[14][15] Nokkur óánægja var meðal Vinstri grænna eftir ákveðið var að fara í viðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Tveir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði gegn viðræðunum og um það bil hundrað félagsmenn sögðu sig úr flokknum.[16] Þann 28. nóvember fékk Katrín umboð frá forsetanum á ný og tveimur dögum seinna var stjórnarsáttmáli flokkanna þriggja kynntur. Nýja stjórnin tók til starfa síðdegis þann dag með Katrínu í embætti forsætisráðherra.[17][18]
Í alþingiskosningunum 2021 hélt stjórnin áfram með Katrínu áfram sem forsætisráðherra.
Afsögn og forsetaframboð 2024
Þann 5. apríl 2024 tilkynnti Katrín að hún hygðist gefa kost á sér í forsetakosningum Íslands sama ár. Hún baðst lausnar úr embætti forsætisráðherra til að hefja kosningabaráttu sína.[19] Katrín sagði um leið af sér sem formaður Vinstri grænna.[20] Katrín sagði einnig af sér þingmennsku 8. apríl.[21] Katrín var fyrir kjördag með mest fylgi allra frambjóðanda í skoðannakönnunum en endaði samt sem áður í öðru sæti með 25,2% fylgi í kosningunum.
Annað
Katrín hefur setið í ýmsum alþjóðlegum nefndum. Frá 2013 til 2014 sat hún í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, í þingmannanefnd Íslands og ESB frá 2013 til 2016, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES frá 2014 til 2016 og Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins árið 2017.[5]
Hún kom fram í myndbandi hljómsveitarinnar Bang Gang við lagið „Listen Baby“ árið 1996.[22]
Árin 2004 og 2005 var hún einn af umsjónarmönnum Sunnudagsþáttarins á SkjáEinum.[heimild vantar]
Heimildir
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.