From Wikipedia, the free encyclopedia
Sósíalismi, einnig nefndur Félagshyggja, er yfirheiti fjölda hugmyndafræða og stjórnmálahreyfinga sem einkennast af af hugmyndum um samneyslu og sameiginlegri eign samfélagsins á framleiðslutækjum, jarðnæði og/eða auðlindum og að þessum eignum sé stjórnað með hag allra í samfélaginu fyrir brjósti. Hugmyndin er að slík skipan myndi útrýma mestmegnis efnahagslegu misrétti og stéttaskiptingu.
Deilt er um hlutleysi þessarar greinar. Aðalvandamál þessarar greinar: Sjá spjallsíðu |
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: einfalda svo hún hæfi betur sem yfirgrein og stofna sér undirgreinar um hinar ýmsu hugmynda- og stjórnmálaskoðanir sósíalismans |
Hugmyndafræðin mótaðist á 19. öld í andstöðu við kapítalisma sem sósíalistar töldu að væri ómannúðlegt og óréttlátt skipulag þar sem yfirstétt í valdi fjármagns drottnaði yfir vinnuaflinu. Nánara fyrirkomulag sósíalísks samfélags hefur alla tíð verið deiluefni og fyrir vikið eru undirgreinar sósíalismans allmargar og þróast með ýmsum hætti í gegnum tíðina.
Af þeim stjórnmálahreyfingum sem hafa kennt sig við sósíalisma hafa þrjár verið útbreiddastar og áhrifamestar. Eru það kommúnismi, sósíaldemókratismi, eða lýðræðisjafnaðarstefna en oftast bara nefnd jafnaðarstefna (e. democratic socialism) og stjórnleysisstefna eða anarkismi.
Kommúnismi er sameignarstefna og sú skoðun að tafarlaust beri að binda endi á misrétti og ójöfnuð kapítalismans, jafnvel þótt það kosti byltingu. Kommúnistar undir forystu Vladimír Lenín náðu völdum í Rússaveldi eftir októberbyltinguna 7. nóvember 1917 og héldu þeim til hausts 1991. Stofnuðu þeir Ráðstjórnarríkin. Með stuðningi Ráðstjórnarríkjanna tóku kommúnistar völd í flestum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu eftir seinni heimsstyrjöld og stofnuðu svonefnd alþýðulýðveldi en hafa nær alls staðar tapað völdum eða orðið Sósíaldemókratar. Kommúnistar sigruðu einnig undir forystu Maó Zedong í borgarastríði í Kínaveldi 1949 og hafa haldið völdum þar síðan. Kommúnistar ráða einnig Norður-Kóreu, Kúbu og Víetnam. Helstu hugsuðir sameignarstefnu eru þeir Karl Marx og Vladimir Lenín.
Á Íslandi starfaði Kommúnistaflokkur Íslands 1930 - 1938 og átti aðild að alþjóðasambandi kommúnista (þriðja alþjóðasambandinu svokallaða), Komintern. Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn, sem stofnaður var 1938 með sameiningu kommúnistaflokksins og hluta Alþýðuflokksins og starfaði til 1968 þegar Alþýðubandalagið var gert að formlegum stjórnmálaflokki.
Sósíaldemókratismi eða jafnaðastefna, er sú skoðun að lýðræði og almenn mannréttindi skulu virt auk þess sem reynt sé að tryggja afkomuöryggi fjöldans og réttlátari tekjuskiptingu. Markmið sósíaldemókrata hefur tekið ýmsum breytingum í gegnum tíðina. Í upphafi var það hið sama og kommúnista, að afnema séreign og samkeppni, en með árunum urðu markmið þeirra hóflegri: aukin samneysla og stjórnsýsla með hag allra fyrir brjósti. Vilja sósíaldemókratar þannig auka jöfnuð í samfélaginu. Sænskir jafnaðarmenn mótuðu í heimskreppunni hugmyndina um „folkhemmet“, þjóðarheimilið, þar sem föðurleg forsjá ríkisins skyldi vera í þágu alþýðu manna, en ekki yfirstéttarinnar einnar. Í Bretlandi setti William Beveridge lávarður fram svipaðar hugmyndir um víðtækar almannatryggingar (sem Otto von Bismarck hafði að vísu að nokkru leyti framkvæmt áður í Þýskalandi).
Alþýðuflokkurinn sem starfaði á Íslandi frá 1916 til 2000 kenndi sig við jafnaðarstefnu. Samfylkingin, sem stofnuð var árið 2000 með samruna Alþýðuflokks, Alþýðubandalagsins, Þjóðvaka og Kvennalista, starfar einnig í anda slíkrar jafnaðarstefnu. Samfylkingin á aðild að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna eins og Alþýðuflokkurinn hafði áður gert.
Fyrstu sósíalistarnir í nútímaskilningi eru venjulega taldir Saint-Simon markgreifi í Frakklandi og Robert Owen í Bretlandi. Á fyrri hluta 19. aldar gagnrýndu þeir báðir ójöfnuð og röktu hann til einkaeignarréttar á framleiðslutækjum og skiptingar fólks í eignastétt og alþýðu. Á miðri 19. öld settu Karl Marx og Friedrich Engels fram kerfisbundnar kenningar um eðlislægar mótsagnir kapítalismans sem yrðu honum að falli. Eftir það tækju öreigarnir völdin. Í upphafi 20. aldar klofnaði hreyfing sósíalista í sameignarsinna og lýðræðisjafnaðarmenn. Vladimir Lenín hélt fast við kenningar Marx og Engels og kvað öflugan kommúnistaflokk geta tekið völdin hvort sem hann hefði sigrað í kosningum eða ekki. Eduard Bernstein taldi hins vegar að kenningar Marx og Engels þyrftu endurskoðunar við. Það væri til dæmis augljóslega rangt að öreigarnir yrðu sífellt fátækari og stéttaskiptingin sífellt meiri. Sósíalistar ættu að velja þróun í stað byltingar. Í fyrri heimsstyrjöld beið sú alþjóðahyggja sem einkennt hafði sósíalista 19. aldar hnekki og lýðræðisjafnaðarmenn tóku upp hugmyndirnar um blandað hagkerfi og velferðarþjónustu og á síðari hluta 20. aldar hurfu þeir frá stuðningi við þjóðnýtingu.
Þorsteinn Erlingsson skáld var einn fyrsti yfirlýsti sósíalistinn á Íslandi og sýndi Jón Trausti litla spádómsgáfu þegar hann kvað sósíalisma hérlendis sennilega fara í gröfina með Þorsteini 1914. Ólafur Friðriksson hafði kynnst hugsjónum sósíalismans í Kaupmannahöfn og kynnti þær á Íslandi eftir að hann sneri heim frá Kaupmannahöfn. Hann var lengi ritstjóri Alþýðublaðsins og í forystu hinna róttækari manna Alþýðuflokksins. Hann skrifaði ritgerðina „Jafnaðarstefnuna“ í Eimreiðina 1926. Rithöfundarnir Þórbergur Þórðarson og Halldór Kiljan Laxness sneru þó sennilega fleirum til sósíalisma en nokkrir blaða- eða stjórnmálamenn í tveimur bókum sínum, Þórbergur í Bréfi til Láru (1924) og Laxness í Alþýðubókinni (1929), sem hann færði sérstaklega jafnaðarmönnum á Íslandi að gjöf.
Eftir klofning Alþýðuflokksins 1930 létu kommúnistar meira að sér kveða í fræðilegri kynningu en lýðræðisjafnaðarmenn. Og myndaðist sú venja smám saman að nota orðið „jafnaðarstefnu“ aðallega um lýðræðisjafnaðarstefnu en „félagshyggju“ um sósíalisma í víðari skilningi. Var Gylfi Þ. Gíslason ötulastur við að setja sjónarmið jafnaðarmanna á blað, til dæmis í ritinu Jafnaðarstefnunni 1949 og í endurskoðaðri útgáfu þess 1977. Brynjólfur Bjarnason skrifaði hins vegar margt um sameignarstefnu í anda þeirra Karl Marx og Leníns. Þegar talað er um jafnaðarstefnu á Íslandi í byrjun 21. aldar er nær alltaf átt við frjálslynda lýðræðisjafnaðarstefnu. Sumir íslenskir sósíalistar horfa til bandaríska heimspekingsins Johns Rawls. En í bókinni A Theory of Justice (1971) setti hann fram hugmyndir um réttláta skipan mála þar sem reynt væri að búa svo í haginn fyrir lítilmagnann sem auðið væri án þess að skerða frelsi annarra.
Frá því að Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn var lagður niður árið 1968 við stofnun Alþýðubandalagsins var ekki starfandi stjórnmálaflokkur undir sérstöku merki sósíalískrar hugmyndafræði uns Alþýðufylkingin var stofnuð árið 2013. Hún hefur verið virk í kosningum og boðið fram í öllum þeim tíðu alþingiskosningum síðan hún var stofnuð en ekki komið manni á þing. Sósíalistaflokkur Íslands var síðan stofnaður 1. maí árið 2017 en einn aðal hvatamaður að stofnun hans var Gunnar Smári Egilsson blaðamaður og fyrrum ritstjóri.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.