Borgarastyrjöldin í Jemen (2014–)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Borgarastyrjöldin í Jemen eru átök sem hófust árið 2014 og eru tveir hópar sem berjast þar um völd. Annars vegar eru það Hútí-fylkingin og hópar sem studdu Ali Abdullah Saleh fyrrum forseta landsins. Þeir stjórna höfuðstaðnum Sana. Hins vegar eru það hópar sem styðja alþjóðlega viðurkennda stjórn Jemens, sem nú er í höndum leiðtogaráðs undir stjórn Rashad al-Alimi, og hafa höfuðstöðvar í borginni Aden. Stjórnvöld Sádi-Arabíu hafa blandað sér í átökin og styðja stjórn al-Alimi.
Borgarastyrjöldin í Jemen | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af arabíska vetrinum | ||||||||||
Myndin sýnir áætlað yfirráðasvæði stríðandi fylkinga í nóvember 2021. Undir stjórn alþjóðlega viðurkenndu ríkisstjórnarinnar og bandamanna hennar
Undir stjórn Umbreytingaráðs suðursins
| ||||||||||
| ||||||||||
Helstu stríðsaðilar | ||||||||||
Meintir stuðningsaðilar: |
Ríkisstjórn Jemens Alþjóðlegt hernaðarbandalag undir stjórn Sádi-Arabíu Færri en 1.000 hermenn: Stuðningsaðilar: Aðskilnaðarsinnar í suðurhluta Jemens
Stuðningsaðilar: |
Al-Kaída Íslamska ríkið | ||||||||
Leiðtogar | ||||||||||
|
Abdrabbuh Mansur Hadi (2012–2022) Með færri en 1.000 hermenn
Aidarus al-Zoubaidi |
Abu Bilal al-Harbi | ||||||||
Fjöldi hermanna | ||||||||||
150.000–200.000 hermenn |
100 herflugvélar og 150.000 hermenn 30 herflugvélar 15 herflugvélar og 300 hermenn 15 herflugvélar 10 herflugvélar og 1.000 hermenn 6 herflugvélar 6 herflugvélar og 1.500 hermenn 4 herflugvélar og 6.000 hermenn 2.100 hermenn 4 herskip og herflugvélar 1.800 málaliðar |
ISIL: 300 | ||||||||
Mannfall og tjón | ||||||||||
„Þúsundir“ drepnir (samkvæmt Al Jazeera í maí 2018) 11.000+ drepnir (samkvæmt talningum Sáda) |
130+ hermenn drepnir 8 hermenn drepnir 4 hermenn drepnir 1 hermaður drepinn | 1.000 drepnir, 1.500 handsamaðir | ||||||||
91.600+ drepnir alls í Jemen (11.700+ óbreyttir borgarar) |
Þar sem uppreisnarher Húta er talinn njóta stuðnings stjórnvalda í Íran er gjarnan litið á átökin í Jemen sem leppstríð á milli Írans og Sádi-Arabíu um áhrif í Mið-Austurlöndum.[5][6]
Um 100.000 manns hafa látist í stríðinu, þar af um 12.000 óbreyttir borgarar, og um 50.000 særst. Sér í lagi hafa stríðsátökin komið illa niður á jemenskum börnum.[7]