Björn Þorleifsson, 47 ára gamall bóndi og „vandræðamaður“ frá Snæfellsnesi, hálshogginn á Alþingi „fyrir kvennamál, svall og „með mörgum sönnum líkindum“ þjófnað“.[1] Hin fleygu orð „Höggðu betur, maður“ eru komin úr eftirfarandi frásögn Skarðsárannáls af aftöku Björns:
„Hann kvaddi menn með handabandi, áður sig niður lagði á höggstokkinn, og bauð svo öllum góða nótt. Var hann með öllu óbundinn. Jon böðull, er höggva skyldi, var þá orðinn gamall og slæmur og krassaði í höggunum, en Björn lá kyr á grúfu, og þá sex höggin voru komin, leit Björn við og mælti: Höggðu betur, maður! Lá hann svo grafkyr, en sá slæmi skálkur krassaði ein 30 högg, áður af fór höfuðið, og var það hryggilegt að sjá.“[2]
Upplýsingar um aftökur sóttar á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, þá ekki síst skrá á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.
Björn Jónsson, Annalar Þess froma og velvitra Sauluga Biørns Jonssonar á Skardsau Fordum Løgrettumanns í Hegranes-Sýslu, 1774. Ritið finnst á bækur.is. Frásögnin er skrásett með nútímaletri í: Alþingisbækur Íslands III. bindi, 1595-1605.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.