Remove ads
íslenskur viðskiptamaður og forsetaframbjóðandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Ástþór Magnússon Wium (f. í Reykjavík 4. ágúst 1953) er íslenskur viðskiptamaður og stofnandi Friðar 2000. Hann hefur boðið sig fram til forseta Íslands sex sinnum.
Ástþór Magnússon Wium | |
---|---|
Fæddur | Ástþór Magnússon Wium 4. ágúst 1953 Reykjavík, Ísland |
Stofnun | Friður 2000 |
Maki | Natalia Wium (g. 2004)[1] |
Vefsíða | forsetakosningar |
Eftir landspróf hóf Ástþór nám í Verslunarskóla Íslands en fór síðan til Bretlands í nám við Medway College of Art and Design og lauk prófi í auglýsingaljósmyndun og markaðsfræðum. Hann sótti síðan fjölda námskeiða bæði heima og erlendis í stjórnun og rekstri fyrirtækja.[2]
Ástþór var upphafsmaður að stofnun Eurocard á Íslandi árið 1979 en það var fyrsta kreditkortafyrirtæki landsins.[3] Ástþór stofnaði einnig og rak um árabil myndiðjuna Ástþór og póstverslunarfyrirtæki með útibúum í Færeyjum og Danmörku. Árið 1983 flutti Ástþór til Danmerkur og síðan til Bretlands þar sem hann gerðist frumkvöðull í þróun tölvutækni fyrir gagnvirk upplýsinga- og verslunarkerfi. Hann kom einnig að flugrekstri um árabil og er með yfir 2000 flugtíma mest við stjórn á litlum einkaþotum.[heimild vantar]
Ástþór var upphafsmaður að stofnun Friðar 2000 1994 með þátttöku meira en 100 erlendra friðarsamtaka og yfir 1000 einstaklinga árið 1995.[heimild vantar]
Nýjar raddir voru samtök mótmælenda sem Ástþór Magnússon stóð fyrir í kringum Búsáhaldabyltinguna, til höfuðs samtökunum Röddum fólksins. Nýjar raddir efndu til samkomu við Austurvöll þann 17. janúar 2009 klukkan 15:15. Þar áttu umræður að hefjast með stuttu ávarpi og þá átti orðið að vera laust. Raddir fólksins höfðu einnig skipulagt fund á Austurvelli á sama tíma, nánar tiltekið klukkan 15:00. Lögreglan mætti á staðinn og fjarlægði sendiferðabíl og annan búnað Nýrra radda. Í framhaldinu kærðu Nýjar raddir framgöngu lögreglustjórans í Reykjavík.[4][5]
Árið 2003 var Ástþór kærður af ríkislögreglustjóra til héraðsdóms Reykjavíkur fyrir að senda tilhæfulausar viðvaranir um yfirvofandi sprengjutilræði til íslenskra flugfélaga. Ástþór hafði þá sent út yfirlýsingu merkta Friði 2000 þar sem hann sagðist hafa „rökstuddan grun“ um að ráðist yrði gegn íslenskri flugvél Icelandair eða Atlanta með flugráni eða sprengjutilræði vegna stuðnings Íslands við Íraksstríðið. Í yfirlýsingunni var almenningur varaður við því að ferðast með þessum flugfélögum á næstu dögum og vikum. Héraðsdómur sýknaði Ástþór af kærunni þann 4. júlí 2003. Vísað var til þess að Ástþór hefði talið staðhæfingu sína rétta og að ekki yrði sakfellt fyrir lagaákvæðið sem um ræddi nema um vísvitandi rangar upplýsingar eða vísvitandi rangar tilkynningar hefði verið að ræða.[6]
Ástþór hefur boðið sig fram í embætti forseta Íslands sex sinnum, fyrst árið 1996. Ástþór kynnti hugmyndafræði sína í forsetaframboði 1996 og í bókinni Virkjum Bessastaði sem dreift var á öll heimili landsmanna. Forsetaframboð hans árið 2000 var dæmt ógilt, vegna þess að nægjanlegan fjölda meðmælenda vantaði.[7] Hann bauð sig fram í þriðja skiptið í forsetakosningunum 2004. Ástþór bauð sig fram á ný í forsetakosningunum 2012, en þann 1. júní 2012 var framboð hans dæmt ógilt því hann fékk ekki lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis.[8] Fimmta framboðið hans var í forsetakosningunum 2016. Þann 3. janúar 2024 lýsti hann yfir framboði fyrir forsetakosningarnar 2024.[9]
Ástþór greindi frá því í kosningabaráttunni 2024 að hann hefði fengið vitranir fyrir 30 árum sem hefðu orðið til þess að hann fór fyrst í forsetaframboð. Meðal annars sagðist hann hafa fengið vitrun um að ráðist yrði á Ísland með kjarnorkusprengju árið 2025 ef ekki næðist friður við Rússland.[10]
Ástþór hefur í gegnum tíðina verið afar gagnrýninn á utanríkisstefnu Bandaríkjanna, sér í lagi á tíma Íraksstríðsins, sem hann segir leidda áfram af hergagnaiðnaðinum.[11] Í deilum milli vesturlanda og Rússlands hefur Ástþór gjarnan tekið afstöðu með Rússum. Meðal annars hrósaði hann innlimun Rússlands á Krímskaga árið 2014 og sagði að Vladímír Pútín Rússlandsforseti ætti skilið friðarverðlaun Nóbels fyrir að standa fyrir henni.[12] Ástþór hefur gagnrýnt alþjóðlegar viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi og sagði þær árið 2023 jafngilda þjóðarmorði gegn rússneskum almenningi.[13]
Árið 1996 hlaut Ástþór Gandhi-mannúðarverðlaunin, sem veitt voru af stofnuninni Gandhi Memorial International Foundation(en) í Orinda í Kaliforníu.[14] Forstöðumaður stofnunarinnar og verðlaunanna var Yogesh K. Gandhi, sem hafði komið til Íslands árið 1996 á vegum Friðar 2000. Gandhi sagðist vera skyldur indverska sjálfstæðisleiðtoganum og friðarsinnanum Mahatma Gandhi,[15] en eiginlegir afkomendur Mahatma sögðu Yogesh hins vegar vera svindlara sem hefði aðallega áhuga á að auðga sjálfan sig og mynda tengsl við valdastofnanir með því að vera ljósmyndaður við hlið þjóðarleiðtoga.[16] Í heimsókn sinni til Íslands árið 1996 hafði Gandhi hlotið fund með Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Íslands.[17]
Talið er að stofnunin og veiting Gandhi-mannúðarverðlaunanna hafi verið fjármögnuð af Hogen Fukunaga(en), japönskum milljarðamæringi sem leiddi sértrúarsöfnuð í Japan.[18] Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Bandaríkjaþings á ólöglegum fjárframlögum til kosningabaráttu Bills Clinton Bandaríkjaforseta frá árinu 1998 beitti Fukunaga Gandhi-stofnuninni og verðlaununum til að koma söfnuði sínum í tengsl við áhrifafólk og auka vegsemd hans.[19] Fukunaga kom til Íslands ásamt Yogesh Gandhi í boði Friðar 2000 árið 1996 og hitti þar meðal annars Steingrím Hermannsson, þáverandi seðlabankastjóra og fyrrum forsætisráðherra Íslands.[20]
Ástþór segist hafa verið sæmdur Heilögum gullkrossi af grísku rétttrúnaðarkirkjunni fyrir meintan þátt sinn við að stilla til friðar milli Bandaríkjanna og Íraks á tíunda áratugnum. Að sögn Ástþórs tilnefndi UNESCO á Grikklandi hann til verðlaunanna.[21]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.