fylki í Bandaríkjunum From Wikipedia, the free encyclopedia
Washington er fylki á vesturströnd Bandaríkjanna. Höfuðborg fylkisins heitir Olympia. Seattle er stærsta borg fylkisins. Íbúar Washingtonfylkis eru rúmlega 7,6 milljónir talsins (2019).
Washington | |
---|---|
Washington | |
Viðurnefni: The Evergreen State (e. sígræna fylkið) | |
Kjörorð: Eventually (e. að lokum) | |
Land | Bandaríkin |
Varð opinbert fylki | 11. nóvember 1889 (42.) |
Höfuðborg | Olympia |
Stærsta borg | Seattle |
Stjórnarfar | |
• Fylkisstjóri | Jay Inslee (D) |
• Varafylkisstjóri | Brad Owen (D) |
Þingmenn öldungadeildar | Patty Murray (D) Maria Cantwell (D) |
Þingmenn fulltrúadeildar | 6 demókratar, 3 repúblikanar |
Flatarmál | |
• Samtals | 184.665 km2 |
• Sæti | 18. |
Stærð | |
• Lengd | 580 km |
• Breidd | 400 km |
Hæð yfir sjávarmáli | 520 m |
Hæsti punktur (Mount Rainier) | 4.395 m |
Lægsti punktur | 0 m |
Mannfjöldi | |
• Samtals | 761.500 (áætlað 2.019) |
• Sæti | 13. |
• Þéttleiki | 34,20/km2 |
• Sæti | 25. |
Heiti íbúa | Washingtonian |
Tímabelti | Pacific: UTC-8/-7 |
Póstfangsforskeyti | WA |
ISO 3166 kóði | US-WA |
Breiddargráða | 45° 33′ N til 49° N |
Lengdargráða | 116° 55′ V til 124° 46′ V |
Vefsíða | access.wa.gov |
Spánverjar könnuðu fyrstir Evrópubúa landsvæðið sem tilheyrir Washington fylki á 18. öld. Síðar komu Bretar, þar á meðal James Cook, George Vancouver og David Thompson. Frumbyggjarnir sem fyrir voru fóru illa út úr bólusótt sem Evrópubúar komu með. Árið 1819 gáfu Spánverjar eftir landsvæði norður af 42 breiddargráðu. Washington varð fylki í Bandaríkjunum árið 1889 og varð þar með 42. fylkið í röðinni. Fylkið er nefnt eftir George Washington, fyrsta forseta Bandaríkjanna.
Washington-fylki er tæpir 185 þúsund ferkílómetra að stærð. Það liggur að Bresku Kólumbíu (Kanada) í norðri, Idaho í austri, Oregon í suðri og Kyrrahafinu í vestri. Columbia-fljót myndar að mestu fylkismörk milli Washingtonfylkis og Oregon. Puget-sund er langt sund sem gengur inn í land og við það stendur meðal annars borgirnar Seattle og Tacoma.
Skógar og fjalllendi eru áberandi landslagseinkenni í fylkinu. Skógar þekja 52% af fylkinu. Meðal trjátegunda eru fjallaþinur, marþöll, degli og ýmsar furutegundir. Villt spendýr eins og hjartardýr og bjarndýr lifa í og við skógana. Úlfar hafa hafið endurkomu sína í fylkið frá aldamótum og eru nú taldir vera 17 úlfahópar í fylkinu[1]
Frá norðri til suðurs liggur fjallahryggurinn Fossafjöll (Cascade range). Hæsta fjallið er Mount Rainier sem er 4.395 metrar að hæð og eldfjall. Annað eldfjall er Mount St. Helens. Árið 1980 myndaðist þrýstingur í fjallinu svo að stór hluti af toppnum sprakk og olli eyðileggingu og mannfalli. Ólympíufjöll eru í norðvestri og samnefndur skagi.
Þjóðgarðar í fylkinu eru Olympic-þjóðgarðurinn, Mount Rainier-þjóðgarðurinn, North Cascades-þjóðgarðurinn. Einnig eru fleiri vernduð svæði.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.