From Wikipedia, the free encyclopedia
Vínarfundurinn (þýska: Wiener Kongress) var ráðstefna sendiherra evrópskra ríkja sem var stýrt af austurríska stjórnmálamanninum Klemens Wenzel von Metternich í Vínarborg frá september 1814 til júní 1815. Markmið ráðstefnunnar var að leysa þau vandamál sem franska byltingin, Napóleonsstyrjaldirnar og fall hins Heilaga rómverska ríkisins höfðu valdið í Evrópu og koma í veg fyrir fleiri stríð innan álfunnar. Á Vínarfundinum komu saman helstu stjórnmálaskörungar álfunnar og var aðalverkefnið að draga upp nýtt landakort af Evrópu og ráðstafa þeim ríkjum sem lent höfðu undir Napóleoni og leppstjórnum hans.[1]
Í byrjun 19. aldar höfðu herir Frakka farið sigurför um Evrópu undir stjórn Napóleons Bónaparte. Hann hafði verið æðsti maður hersins árið 1796 og var orðinn hæstráðandi í Frakklandi aðeins þremur árum síðar. Þegar veldi Napóleons var í hámarki árið 1812 náði það, ásamt ríkjum bandamanna þess og leppríkjum, yfir mestan hluta meginlands Evrópu. Þann 31. mars 1814 riðu Alexander I Rússakeisari og Friðrik Vilhjálmur III Prússakóngur inn í París og var Napóleon neyddir til að segja af sér og sendur í útlegð til eyjarinnar Elbu. Var þá ákveðið að stórveldin Rússland, Prússland, Bretland og Austurríki skyldu setjast að samningaborðinu til að semja um friðarskilmála fyrir Frakka. Nokkrar sáttagerðir höfðu átt sér stað áður en að Vínarfundurinn var boðaður, þar á meðal Kílarfriðurinn sem sá um mál í Skandinavíu og fyrri Parísarfriðurinn sem var undirritaður 30. maí 1814 á milli Frakklands og sjötta sambandshersins. Fulltrúarnir í París gerðu einnig frumdrög að nýrri ríkjaskipan Evrópu, en sammæltust um að hittast á nýjan leik í Vínarborg þá um haustið til að ganga endanlega frá því máli.
Á fundinum komu saman flestir helstu stjórnmálaskörungar álfunnar, enda var fulltrúum allra Evrópuríkja boðin þátttaka. Var það mál manna að líklega hefðu aldrei verið jafnmargir tignarmenn saman komnir á einum stað. Þangað streymdu jafnt aðalsmenn sem óbreytt alþýðufólk, og betlarar, þjófar og njósnarar söfnuðust þar saman í hundraða tali. Fáir fulltrúar fengu að koma að umræðunum og ákvörðunum af því að það var enginn allsherjarfundur. Stórveldin fjögur og sigurvegarar Napóleonsstyrjaldanna (Austurríki, Prússland, Rússland og Bretland) ætluðu ein að taka alvarlegu ákvarðanirnar, en Frakkland undir forystu Charles Maurice de Talleyrands náði að safna saman fulltrúum Spánar, Svíþjóðar og Portúgals og krefjast aðild að umræðunum.
Stórveldin fjögur höfðu áður verið kjarni sjötta sambandshersins. Um það leyti er Napóleon þurfti að játa sig sigraðan höfðu þessi ríki samið um fyrri Parísarfriðinn við Búrbóna.
Hugsjónir frönsku byltingarinnar höfðu borist víða um Evrópu með herjum Frakklands og í anda þeirra vildu margir að nú yrði komið á stjórnarumbótum, myndaðar þingbundnar konungsstjórnir eða jafnvel stofnuð lýðveldi. Því fór þó fjarri að allsráðendur á Vínarfundinum hefðu eitthvað slíkt í huga. Þeir höfðu að leiðarljósi hugtökin lögmæti og stöðugleiki. Með lögmæti áttu þeir við, að ríkin yrðu aftur fengin í hendur fyrri þjóðhöfðingjum eða réttmætum erfingjum þeirra. Með stöðugleika var átt við, að valdajafnvægi skyldi ríkja í álfunni, með sérstakri áherslu á að halda aftur af Frökkum. Þótt Vínarfundurinn kæmi ekki formlega saman, hittust menn tíðum, bæði í hinum ýmsu nefndum og auðvitað í veislum og á dansleikjum. Þar reyndu þeir að tryggja sér stuðning hvers annars við tilkall til umdeildra landsvæða, selja stuðning sinn fyrir stuðning við sig. Ótal sambönd og bandalög voru mynduð, sem síðan gátu hæglega riðlast á næsta dansleik.
Framtíð Póllands og Saxlands var miðpunktur umræðuefna fundarinns frá október 1814 til janúars 1815. Alexander I keisari var staðráðinn að innlima Pólland inn í Rússaveldi. Keisarinn bauð Prússlandi Saxland í skaðabætur fyrir tap á pólsku svæði. Austurríkismenn óttuðust að ef Pólland færi til Rússa þá yrðu vesturlandamæri Rússlands yrðu komin mun nær Vínarborg og myndu sameiginleg landamæri Austurríkis og Prússlands meira en tvöfaldast að lengd. Bretar mótmæltu einnig tilkall Rússlands til Póllands. Undir árslok 1814 voru ófriðarblikur farnar að sjást á lofti og margir óttuðust að deilurnar um Pólland og Saxland myndu enda með styrjöld. Það varð ekki til að slá á þann ótta þegar prússneski kanslarinn Hardenberg lýsti því yfir á gamlársdag, að ef Prússum yrði neitað um Saxland myndi það jafngilda stríðsyfirlýsingu. Bretar og Austurríkismenn sáu þann kost vænstan að stofna til leynilegs bandalags með Frökkum um að standa saman ef til ófriðar kæmi. Samningar tókust þó um að Rússar fengju megnið af Póllandi, en Austurríki og Prússland fengu þar einnig landsvæði. Var hinn rússneski hluti Póllands síðan gerður að sérstöku konungsríki undir stjórn Alexanders I. Borgin Kraká varð frjáls borg undir vernd Rússa, Prússa og Austurríkismanna. Eftir að þessir samningar voru í höfn höfðu Rússar lítinn áhuga á að styðja Prússa í deilunni um Saxland. Varð það úr að Friðrik Vilhjálmur sættist á að fá um helming þess lands.
Ákvarðanir gagnvart Niðurlöndum, Sviss, þýsku ríkjanna og Ítalíu voru teknar af stórveldunum til þess að hafa hemil á og einangra Frakkland með því að stofna nokkur örríki á milli þeirra sem voru öll undir áhrifum stórveldanna. Í Frakklandi voru þessar aðgerðir kallaðar „cordon sanitaire” eða varðbeltið.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.