Roman Herzog
Forseti Þýskalands (1934-2017) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Roman Herzog (5. apríl 1934 – 10. janúar 2017) var þýskur stjórnmálamaður, dómari og lögfræðingur sem var forseti Þýskalands frá 1994 til 1999. Herzog var meðlimur í Kristilega demókrataflokknum og var fyrsti forsetinn sem var kjörinn eftir sameiningu Þýskalands. Hann var áður dómari við stjórnlagadómstól sambandslýðveldisins og var forseti dómstólsins frá 1987 til 1994. Áður en hann var útnefndur dómari var hann lagaprófessor. Herzog hlaut Karlsverðlaunin árið 1997.
Staðreyndir strax Forseti Þýskalands, Kanslari ...
Roman Herzog | |
---|---|
Forseti Þýskalands | |
Í embætti 1. júlí 1994 – 30. júní 1999 | |
Kanslari | Helmut Kohl Gerhard Schröder |
Forveri | Richard von Weizsäcker |
Eftirmaður | Johannes Rau |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. apríl 1934 Landshut, Bæjaralandi, Þýskalandi |
Látinn | 10. janúar 2017 (82 ára) Jagsthausen, Baden-Württemberg, Þýskalandi |
Stjórnmálaflokkur | Kristilegi demókrataflokkurinn (1970–2017) |
Maki | Christiane Krauß (g. 1958; d. 2000) Alexandra Freifrau von Berlichingen (g. 2001) |
Börn | 2 |
Háskóli | Ludwig-Maximilian-háskóli |
Verðlaun | Karlsverðlaunin (1997) |
Undirskrift |
Loka