Fossvogur
vogur í Reykjavík og Kópavogi / From Wikipedia, the free encyclopedia
64°07′09″N 21°55′24″VFossvogur er um tveggja kílómetra langur vogur sem gengur til austurs inn úr Skerjafirði. Norðan megin við voginn eru Nauthólsvík, Fossvogskirkjugarður og Öskjuhlíð í Reykjavík, en sunnan megin norðurströnd Kársness í Kópavogi. Bæjarmörk Reykjavíkur og Kópavogs liggja um voginn frá mynni Fossvogslækjar í norðvestur og síðan út miðjan voginn til vesturs.
Fossvogsdalur gengur inn frá voginum og um hann rennur lækur sem fellur í litlum flúðafossi niður í sjó og af honum er talið að dalurinn og vogurinn dragi nafn sitt. Fossvogshverfi er í Fossvogsdal (Reykjavíkurmegin) inn af Fossvogi.