Fljótahreppur
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fljótahreppur var hreppur nyrst í Skagafjarðarsýslu, austan megin Skagafjarðar, kenndur við sveitina Fljót.[1]
Fljótahreppur skiptist í Haganeshrepp og Holtshrepp árið 1898 (eða 1899) en þeir sameinuðust aftur undir sama nafni 1. apríl 1988.[2]
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Fljótahreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi og Hofshreppi og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[3]
Síðasta hreppsnefnd Fljótahrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Guðrún Halldórsdóttir, Gunnar Steingrímsson, Haukur Ástvaldsson, Hermann Jónsson og Örn Þórarinsson.[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.