![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/16/Deng_Xiaoping_and_Jimmy_Carter_at_the_arrival_ceremony_for_the_Vice_Premier_of_China._-_NARA_-_183157-restored%2528cropped%2529.jpg/640px-Deng_Xiaoping_and_Jimmy_Carter_at_the_arrival_ceremony_for_the_Vice_Premier_of_China._-_NARA_-_183157-restored%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Deng Xiaoping
Fyrrum leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína (1904-1997) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Deng Xiaoping hlustaⓘ (22. ágúst 1904 – 19. febrúar 1997) (eða Teng Hsiao-p'ing) var kínverskur leiðtogi og stjórnmálamaður, kenningasmiður og stjórnarerindreki.[1] Sem leiðtogi Kommúnistaflokksins í Alþýðulýðveldinu Kína var Deng siðbótarmaður sem leiddi Kína í átt að markaðshagkerfi. Þrátt fyrir að hafa aldrei gegnt formlegu embætti sem þjóðhöfðingi eða leiðtogi ríkisstjórnar Kína þá var hann engu að síður talinn meginleiðtogi „annarrar valdakynslóðar“ Alþýðulýðveldisins Kína frá 1978 til 1990.
- Þetta er kínverskt nafn: kenni- eða fjölskyldunafnið er Deng, eiginnafnið er Xiaoping.
Deng Xiaoping 邓小平 | |
---|---|
![]() Deng Xiaoping (邓小平) árið 1979. | |
Formaður ráðgjafarráðs kommúnistaflokksins | |
Í embætti 13. september 1982 – 2. nóvember 1987 | |
Forseti | Li Xiannian |
Forsætisráðherra | Zhao Ziyang |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Chen Yun |
Formaður hernaðarnefndar kommúnistaflokkins | |
Í embætti 28. júní 1981 – 19. mars 1990 | |
Forveri | Hua Guofeng |
Eftirmaður | Jiang Zemin |
Formaður ráðgjafarráðstefnu kínversku þjóðarinnar | |
Í embætti 8. mars 1978 – 17. júní 1983 | |
Forveri | Zhou Enlai (til 1976) |
Eftirmaður | Deng Yingchao |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. ágúst 1904 Guang'an, Sesúan, Kína |
Látinn | 19. febrúar 1997 (92 ára) Peking, Kína |
Þjóðerni | Kínverskur |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kína |
Maki | Zhang Xiyuan (1928–1929) Jin Weiying (1931–1939) Zhuo Lin (1939–1997) |
Börn | Deng Lin, Deng Pufang, Deng Nan, Deng Rong, Deng Zhifang |
Starf | Hagfræðingur, stjórnmálamaður |
Deng fæddist í Guang'an, Sesúanhéraði þann 22. ágúst 1904. Hann dvaldi við nám og störf í Frakklandi á árunum 1920 – 1925 og kynntist þar marxisma. Þar gekk hann liðs við Kommúnistaflokk Kína árið 1923. Þegar hann sneri aftur til Kína starfaði hann sem stjórnmálaerindreki á dreifbýlli svæðum Kína. Hann hófst hratt til hárra metorða innan Kommúnistaflokksins. Hann varð aðalritari flokksforystunnar þegar „gangan langa“ hófst og því talinn til „byltingahetja göngunnar“.[2] Hann varð einn æðsti yfirmaður hersins í stríðinu við Japani og í borgarastríðinu stýrði hann helmingi alls herafla kommúnista.[3] Hann tók sæti miðstjórnar Kommúnistaflokks Kína 1945. Eftir stofnun Alþýðulýðveldisins Kína árið 1949 vann Deng í Tíbet og í Suðvestur-Kína til að treysta yfirráð kommúnista þar. Hann var kallaður til starfa til Beijing sem varaforsætisráðherra (1952) þar sem frami hann reis hratt. Hann gekk til liðs við framkvæmdanefnd Miðstjórnarinnar árið 1956. Hann ásamt Liu Shaoqi gegndi lykilhlutverki í efnahagslegri endurreisn Kína eftir „stóra stökkið“ á sjötta áratugnum. Efnahagsstefna hans var talinn andstæð pólitískri hugmyndafræði Maó Zedong formanns. Vegna þessa lenti hann tvívegis í „hreinsunum“ menningarbyltingarinnar. Í fyrra skiptið (1966) var hann sendur til endurhæfingarstarfa í dráttarvélaverksmiðju. Árið 1973 var hann síðan kallaður aftur til starfa með Zhou Enlai sem varaforsætisráðherra. Í veikindum Zhou tók Deng við að innleiða kennisetningar Zhou um nútímavæðingu. Eftir dauða Zhou Enlai 1976 féll Deng aftur í ónáð og lenti í „flokkshreinsunum“. En enn reis Deng til valda 1977 í sitt fyrra embætti sem varaforsætisráðherra og að auki varaformaður flokksins. Hann heimsótti Bandaríkin árið 1979 til að leita nánari tengsla. Deng styrkti valdastöðu sína 1981 þegar hann skipti andstæðingnum Hua Guofeng flokksformanni út fyrir liðsmann sinn.
Þrátt fyrir að hafa aldrei gengt formlegu hæstu embættum sem þjóðhöfðingi, leiðtogi ríkisstjórnar eða aðalritari kommúnistaflokksins í Kína er Deng engu að síður talinn meginleiðtogi „annarrar valdakynslóðar“ Alþýðulýðveldisins Kína sem tók við eftir Maó Zedong. Hann tók við Kína í sárum þar sem félagskerfi og stofnanir höfðu verið brotnar niður í menningarbyltingunni og öðrum stjórnmálaátökum Maó tímabilsins.
Deng var höfundur nýrra áherslna í kínverskum sósíalisma, þar sem efnahagslegar umbætur byggðu á kennismíð um „sósíalískan markaðsbúskap“. Hann opnaði Kína fyrir erlendum fjárfestingum, ruddi braut landsins fyrir þátttöku á heimsmarkaði og heimilaði starfsemi einkafyrirtækja á samkeppnismarkaði. Hann er yfirleitt talinn hafa lagt grunn að gríðarlegri efnahagsframþróun Kína síðast liðin þrjátíu ár. Þessi mikli hagvöxtur hefur breytt lífskjörum hundraða milljóna Kínverja til betri vegar.[4]
En þrátt fyrir að hafa losað um ríkishöft og eftirlit krafðist hann þess að flokkurinn hefði tögl og hagldir í stjórnsýslu og stjórnmálum landsins. Hann studdi til að mynda notkun hervalds til að stöðva mótmælin á Torgi hins himneska friðar.
Deng kvaddi flokkstarfið formlega árið 1989 og tilnefndi Jiang Zemin sem eftirmann sinn. Á síðustu æviárunum þjáður af Parkinsonsveiki, gat hann varla fylgst með málefnum ríkisins. Hann taldist engu að síður til æðsta leiðtoga Kína fram á síðasta dag 19. febrúar 1997.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/9/98/Student_Deng_Xiaoping_in_France.jpg)