Kína
land í Austur- Asíu og fjölmennasta ríki heims / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþýðulýðveldið Kína (kínverska: 中国; pinyin: Zhōngguó) nær yfir megnið af því svæði sem í menningarlegu, landfræðilegu og sögulegu samhengi hefur verið kallað Kína. Allt frá stofnun þess árið 1949 hefur ríkið verið undir stjórn Kommúnistaflokks Kína. Það er fjölmennasta ríki veraldar með yfir 1,4 milljarða íbúa sem flestir teljast til hankínverja. Það er stærsta ríki Austur-Asíu að flatarmáli og það fjórða stærsta í heiminum. Ríkið á landamæri að fjórtán ríkjum: Afganistan, Bútan, Indlandi, Kasakstan, Kirgistan, Laos, Mongólíu, Búrma, Nepal, Norður-Kóreu, Pakistan, Rússlandi, Tadsíkistan og Víetnam. Höfuðborgin er Peking.
Alþýðulýðveldið Kína | |
中华人民共和国 Zhōnghuá Rénmín Gònghéguó | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Þjóðsöngur: Mars sjálfboðaliðanna | |
Höfuðborg | Peking |
Opinbert tungumál | Kínverska |
Stjórnarfar | Flokksræði |
Forseti | Xi Jinping |
Forsætisráðherra | Li Qiang |
Sjálfstæði | |
• Stofnun | 1. október 1949 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
4. sæti 9.596.961 km² 2,8 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
1. sæti 1.411.778.724 145/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 26.660 millj. dala (1. sæti) |
• Á mann | 11.819 dalir (70. sæti) |
VÞL (2019) | 0.761 (85. sæti) |
Gjaldmiðill | Renminbi (júan) |
Tímabelti | UTC+8 |
Þjóðarlén | .cn |
Landsnúmer | +86 |
Alþýðulýðveldið gerir tilkall til Taívan og nærliggjandi eyja sem í raun lúta þó stjórn Lýðveldisins Kína. Hugtakið „meginland Kína“ er stundum notað til að lýsa Alþýðulýðveldinu og þá eru Hong Kong og Maká yfirleitt ekki talin með sökum sérstöðu þeirra. Einnig gengur þessi hluti Kína undir nafninu „Rauða Kína“, yfirleitt á meðal andstæðinga eða gagnrýnenda þess. Þar sem Alþýðulýðveldið ræður yfir yfirgnæfandi meirihluta sögulegs landsvæðis Kínverja er það í daglegu tali yfirleitt einfaldlega kallað Kína og Lýðveldið Kína einfaldlega Taívan.
Í Kína var það opinber stefna að takmarka fjölda fæddra barna við eitt barn fyrir hverja fjölskyldu til þess að draga úr fólksfjölgun. Talið er að um 400 milljónir færri hafi fæðst en ella vegna stefnunnar.[1] Létt var á stefnunni í lok ársins 2015 og hverri fjölskyldu leyft að eiga tvö börn.[2]