Bandaríkin
land í Norður-Ameríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Bandaríkin (eða Bandaríki Norður-Ameríku, skammstafað BNA) eru sambandslýðveldi sem er næststærsta ríki Norður-Ameríku að flatarmáli (9,83 milljónir km²) og jafnframt það fjölmennasta með yfir 333 milljónir íbúa (árið 2021). Þau eru ennfremur fjórða stærsta land heims og það þriðja fjölmennasta. Þau teygja sig milli Atlantshafs og Kyrrahafs og eiga landamæri að Kanada í norðri og Mexíkó í suðri. Bandaríkin samanstanda af 50 fylkjum sem njóta nokkurs sjálfræðis í eigin efnum og hafa eigin löggjöf sem þó má ekki stangast á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Auk sambandsríkjanna hafa Bandaríkin lögsögu yfir ýmsum hjálendum víða um heim.
Bandaríkin | |
United States of America (USA) | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: In God We Trust (enska) Vér treystum á Guð | |
Þjóðsöngur: The Star-Spangled Banner | |
Höfuðborg | Washington DC |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Sambandslýðveldi, forsetaræði |
Forseti | Joe Biden |
Varaforseti | Kamala Harris |
Þingforseti fulltrúadeildar | Mike Johnson |
Forseti Hæstaréttar | John G. Roberts |
Sjálfstæði | frá Bretlandi |
• Yfirlýst | 4. júlí 1776 |
• Viðurkennt | 3. september 1783 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
3. sæti 9.796.520 km² 4,66 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
3. sæti 333,287,557 33,6/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2022 |
• Samtals | 25.035 millj. dala (1. sæti) |
• Á mann | 75.180 dalir (7. sæti) |
VÞL (2021) | 0.921 (21. sæti) |
Gjaldmiðill | Bandaríkjadalur |
Tímabelti | UTC-4 til -12 Sumartími: UTC-4 til -10 |
Þjóðarlén | .us |
Landsnúmer | +1 |
Bandaríkin rekja uppruna sinn til sjálfstæðisyfirlýsingarinnar frá 4. júlí 1776 þegar þrettán breskar nýlendur lýstu yfir eigin frelsi og sjálfstæði frá Breska heimsveldinu. Nýlendurnar höfðu betur í Frelsisstríði Bandaríkjanna en það var fyrsta nýlendustríðið þar sem nýlendan hafði betur en herraþjóðin. Nýlendurnar samþykktu sameiginlega stjórnarskrá í Philadelphiu þann 17. september 1787. Stjórnarskráin gerði nýlendurnar þrettán að einu lýðveldi.
Á 20. öldinni tóku Bandaríkin forystu í heiminum hvað varðar efnahagsleg, pólitísk, hernaðarleg og menningarleg áhrif. Bandaríska hagkerfið er það stærsta í heimi en verg landsframleiðsla Bandaríkjanna árið 2006 var 13 billjónir bandaríkjadala, það er að segja um það bil fjórðungur af vergri landframleiðslu alls heimsins. Evrópusambandið er stærra hagkerfi en Bandaríkin en er ekki ein þjóð.