Ríki
stjórnmálaleg eining íbúa tiltekins fullvalda landsvæðis / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ríki eru stjórnmálalegar einingar ábúenda tiltekinna landsvæða sem eru fullvalda. Skilgreining Max Webers um að ríki hafi einokun á lögmætri valdbeitingu á afmörkuðu landsvæði er viðtekin. Innlent fullveldi hefur ríki ef íbúar þess líta á það sem lögmætt. Alþjóðlegt fullveldi hefur ríki hljóti það einnig slíka viðurkenningu frá samfélagi þjóðanna.
- Þessi grein fjallar um stjórnmálahugtakið ríki. Á aðgreiningarsíðunni er hægt að sjá aðrar greinar um aðrar merkingar orðsins „ríki”.
Ríki getur einnig átt við tvö eða fleiri ríki sem saman mynda sambandsríki sem hefur miðstýrða ríkisstjórn yfir sér. Dæmi um slík sambandsríki eru Bandaríkin, Brasilía, Indland og Þýskaland. Hefð er fyrir því að kalla ríki Bandaríkjanna fylki.