Brasilía
Land í Suður-Ameríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fyrir höfuðborg landsins, sjá Brasilía (borg).
Brasilía (portúgalska: Brasil), opinberlega Sambandslýðveldið Brasilía (portúgalska: República Federativa do Brasil) er stærsta og fjölmennasta land Suður-Ameríku og hið fimmta stærsta í heiminum bæði að flatarmáli og fólksfjölda. Landið er 8.514.877 km² að flatamáli og teygir sig frá ströndum Atlantshafsins að rótum Andesfjalla og innan landamæra þess er megnið af Amasónregnskóginum, stærsta regnskógi heims, en einnig víðáttumikil landbúnaðarsvæði. Strandlína Brasilíu er 7367 km löng.
Staðreyndir strax
Sambandslýðveldið Brasilía | |
República Federativa do Brasil | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Ordem e Progresso (portúgalska) Regla og framfarir | |
Þjóðsöngur: Hino Nacional Brasileiro | |
Höfuðborg | Brasilía |
Opinbert tungumál | Portúgalska |
Stjórnarfar | Sambandslýðveldi, forsetaræði |
Forseti | Luiz Inácio Lula da Silva |
Varaforseti | Geraldo Alckmin |
Stofnun | |
• Sjálfstæði | 7. september 1822 |
• Viðurkennt | 29. ágúst 1825 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
5. sæti 8.514.215 km² 0,65 |
Mannfjöldi • Samtals (Júlí 2014) • Þéttleiki byggðar |
5. sæti 206 milljónir. 24/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2011 |
• Samtals | 2.294 millj. dala (7. sæti) |
• Á mann | 11.769 dalir (75. sæti) |
VÞL (2011) | 0,946 (17. sæti) |
Gjaldmiðill | ríal |
Tímabelti | UTC -2 til -5 |
Þjóðarlén | .br |
Landsnúmer | +55 |
Loka