The Star-Spangled Banner
From Wikipedia, the free encyclopedia
Árið 1814 samdi maður að nafni Francis Scott Key ljóð um sigur Bandaríkjamanna á Bretum. Það ljóð heitir „The Star Spangled Banner“. Það varð vinsælt að syngja ljóðið við vinsæla drykkjulagið „To Anacreon in Heaven”. Uppruni þess lags er óljós en það er talið að maður sem að hét John Stafford Smith (fæddur 1750) hafi samið lagið. Það var ekki fyrr en árið 1931 eftir tuttugu ára baráttu á þingi að lagið var samþykkt sem þjóðsöngur Bandaríkjanna þó svo að sjóherinn og landherinn hefði notað það í fjölda ára.
Á Woodstock hátíðinni í ágúst 1969 spilaði Jimi Hendrix lagið mjög eftirminnilega og hefur öskrandi gítarsóló hans oft verið innblástur margra tónlistarmanna.