Barry Goldwater
Bandarískur stjórnmálamaður (1909-1998) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Barry Morris Goldwater (2. janúar 1909[1] – 29. maí 1998) var bandarískur stjórnmálamaður, athafnamaður, herflugmaður og rithöfundur sem gegndi fimm kjörtímabilum á öldungadeild Bandaríkjaþings (árin 1953–1965 og 1969–1987). Goldwater var frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum 1964 en tapaði fyrir sitjandi forsetanum Lyndon B. Johnson.
Barry Goldwater | |
---|---|
Öldungadeildarþingmaður fyrir Arizona | |
Í embætti 3. janúar 1953 – 3. janúar 1965 | |
Forveri | Ernest McFarland |
Eftirmaður | Paul Fannin |
Í embætti 3. janúar 1969 – 3. janúar 1987 | |
Forveri | Carl Hayden |
Eftirmaður | John McCain |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 2. janúar 1909 Phoenix, Arizona, Bandaríkjunum |
Látinn | 29. maí 1998 (89 ára) Paradise Valley, Arizona, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Margaret Johnson (g. 1934; d. 1985) Susan Shaffer Wechsler (g. 1992) |
Börn | 4 |
Háskóli | Háskólinn í Arizona |
Undirskrift |
Goldwater er gjarnan talið til tekna að hafa stuðlað að uppgangi íhaldsstefnu í bandarískum stjórnmálum á sjöunda áratugnum. Þrátt fyrir afgerandi ósigur hans í forsetakosningunum 1964 telja margir sagnfræðingar og stjórnmálaskýrendur að hann hafi lagt grunninn að íhaldsbyltingu næstu ára innan Repúblikanaflokksins og að grasrótarfylgi hans hafi til lengri tíma stuðlað að „Reaganbyltingunni“ á níunda áratugnum. Goldwater hafði einnig töluverð áhrif á þróun frjálshyggju í bandarískum nútímastjórnmálum.[2]