Árið 1714 (MDCCXIV í rómverskum tölum) Ár 1711 1712 1713 – 1714 – 1715 1716 1717 Áratugir 1701–1710 – 1711–1720 – 1721–1730 Aldir 17. öldin – 18. öldin – 19. öldin Karl 12. á hestbaki. Anna Bretadrottning. Fædd 2. ágúst - Gunnar Pálsson, prestur, fræðimaður og skáld (d. 1791). Fjalla-Eyvindur Jónsson, útilegumaður (d. fyrir 1783). Sigurður Þorsteinsson, silfursmiður (d. 1799). Dáin Opinberar aftökur Þórður Andrésson, húsmaður, þá 61 árs, hálshogginn fyrir morð Gísla Einarssonar.[1] 1. ágúst - Georg, kjörfursti af Hanover, varð Georg 1. Bretakonungur. 11. september - Katalónía og Barselóna gáfust upp fyrir spænskum og frönskum Búrbónaherjum. Þar með má segja að spænska erfðastríðinu hafi lokið. 26. október - Karl 12. Svíakonungur fór frá Tyrklandi, þar sem hann hafði dvalið frá því Svíar töpuðu orrustunni við Poltava 1709, og reið þvert yfir Evrópu, um Vínarborg og Frankfurt am Main, til Stralsund í Pommern, sem þá var sænskt, 2152 km á 14 dögum. Mestallan tímann fylgdi honum aðeins einn maður. Hertogadæmið Savoja og Piemonte varð konungsríkið Sardinía. Fædd 2. febrúar - Gottfried August Homilius, þýskt tónskáld (d. 1785). 8. mars - Carl Philipp Emanuel Bach, þýskt tónskáld (d. 1788). 6. júní - Jósef 1., konungur Portúgals (d. 1777). 2. júlí - Cristoph Willibald (von) Gluck, þýskt tónskáld (d. 1787). Dáin 27. mars - Charlotte Amalie af Hessen-Kassel, Danadrottning, kona Kristjáns 5. (f. 1650). 8. júní - Soffía, kjörfurstaynja af Hanover og móðir Georgs 1. Bretakonungs (f. 1630). 1. ágúst - Anna Bretadrottning (f. 1665). Georg David Anthon, danskur arkitekt (f. 1781). Charles Davenant, breskur hagfræðingur (f. 1656) [1]Skrá á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.