From Wikipedia, the free encyclopedia
Jenis av Rana (f. 7. janúar 1953 í Trongisvágur) er færeyskur læknir og stjórnmálamaður. Hann er formaður Miðflokksins í Færeyjum.
Hann útskrifaðist sem læknir árið 1983 og hefur síðan þá starfað við lækningar í Þórshöfn.
Hann var bæjarráðsmaður í Þórshöfn á árunum 1993-1996. Hann hefur gegnt þingmennsku fyrir Miðflokkinn á Lögþingi Færeyja frá árinu 1994. Fyrir stofnun Miðflokksins árið 1992 var hann meðlimur í Kristilega Fólkaflokknum.
Jenis av Rana hefur verið lýst sem fordómafullum bókstafstrúarmanni.[1] Hann hefur í gegnum tíðina skrifað reglulega í færeyska fjölmiðla um samkynhneigð en hann hefur það á stefnuskrá sinni að Færeyjum verði stjórnað eftir „lögum Biblíunnar.“[1] Hann hefur verið sakaður um að vera haldinn fordómum gagnvart samkynhneigðum en samkynhneigð er enn viðkvæmt umræðuefni meðal Færeyinga. [1]
Jenis av Rana vakti mikla athygli á Íslandi í byrjun september 2010 þegar hann neitaði að sitja veislu með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra Íslands, og eiginkonu hennar, Jónínu Leósdóttur, vegna samkynhneigðar þeirra. Veislan var haldin í tilefni af heimsókn Jóhönnu til Færeyja, en Jenis taldi heimsókn hennar „hreina ögrun“ þar sem hún væri „ekki í samræmi við heilaga ritningu.“ Honum hafi því ekki dottið í hug að sitja veisluna.[2][3]
Árið 2022 var hann rekinn úr embætti menntamálaráðherra fyrir ummæli um sambýli samkynhneigðra sem lögmaður Færeyja sagði að samræmdust ekki færeyskum gildum.[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.