From Wikipedia, the free encyclopedia
Heartstopper eru breskir unglingaþættir sem hófu göngu sína vorið 2022 á Netflix. Þættirnir eru byggðir á samnefndum vefteiknimyndasögum eftir Alice Oseman en hún skrifar einnig handritið.
Heartstopper | |
---|---|
Tegund | Unglingaþættir |
Byggt á | Heartstopper teiknimyndasögunum eftir Alice Oseman |
Handrit | Alice Oseman |
Leikstjóri | Euros Lyn |
Leikarar |
|
Tónskáld | Adiescar Chase |
Upprunaland | Bretland |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 3 |
Fjöldi þátta | 16 |
Framleiðsla | |
Framleiðandi | Zorana Piggott |
Framleiðsla | See-Saw Films |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | Netflix |
Sýnt | 22. apríl 2022 – |
Tenglar | |
IMDb tengill |
Sagan fjallar aðallega um unglingsstrákinn Charlie Spring (Joe Locke) sem er samkynhneigður og verður ástfanginn af bekkjarfélaga sínum Nick Nelson (Kit Connor). Aðrar persónur koma við sögu eins og Tao (William Gao), Elle (Yasmin Finney), Tara (Corinna Brown) og Darcy (Kizzy Edgell).
See-Saw Films keypti sjónvarpsréttinn að Heartstopper árið 2019 og Netflix keypti dreifingarréttinn árið 2021. Tökur fóru fram í apríl til júní það ár. Eitt helsta einkenni þáttana er notkun á ýmsum einföldum formum, s.s. hjörtu og laufblöð, í teiknimyndastíl. Það gefur þáttunum ákveðið stílbragð en þessi teiknimyndaform eru notuð til að magna upp tilfinningar persónanna og eru bein tenging við teiknimyndasögurnar.
Fyrstu þáttaröð Heartstopper var streymt á Netflix þann 22. apríl 2022. Þættirnir fengu strax gríðarlega góð viðbrögð frá gagnrýnendum og hlutu sérstakt lof fyrir góða framsetningu á hinsegin karakterum. Aðeins tveimur dögum eftir að þættirnir fóru í sýningu voru þeir komnir á topp tíu lista Netflix yfir vinsælustu bresku þáttaraðirnar. Heartstopper er einnig með 100% í einkunn frá gagnrýnendum á Rotten Tomatoes síðunni.
Fyrsta þáttaröðin hlaut fimm Emmy verðlaun í desember 2022, þ.e. sem besta unglingaþáttaröðin, besta handrit og besta leikaraval. Auk þess hlaut Kit Connor verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki og Olivia Colman verðlaun fyrir besta gestahlutverk.
Þann 20. maí 2022 var tilkynnt að 2. og 3. sería væru á leiðinni. Þann 3. ágúst 2023 var svo annarri seríu streymt á Netflix og hefur sú fengið gríðarlega jákvæð viðbrögð eins og fyrri serían.
Hinn hlédrægni Charlie, sem er fastur í leynilegu ástarsambandi með Ben, verður skotinn í ruðningsstjörnu skólans Nick. Hann ákveður því að ganga í ruðningsliðið þvert á ráðleggingar vina sinna.
Elle gengur brösulega að aðlagast nýjum skóla á meðan Charlie og Tao eru sannfærðir um að Nick sé gagnkynhneiðgur. Nick byrjar að efast um kynhneigð sína.
Í afmælispartýi hjá Harry trúir Tara Nick fyrir leyndarmáli. Nick deilir tilfiningum sínum með Charlie og samband þeirra verður nánara.
Charlie og Nick ákveða að halda sambandi sínu leyndu þar sem Nick er enn inni í skápnum. Imogen, vinkona Nick, býður honum á stefnumót.
Nick þarf að velja á milli þess að fara á stefnumót með Imogen eða í afmæli Charlie. Tao heitir því að vernda Charlie frá Nick og dónalegu ruðningsstrákunum.
Tara og Darcy opinbera samband sitt á samfélagsmiðlum, en Tara er ekki tilbúin fyrir allt áreitið sem því fylgir. Vinahópurinn reynir að fá Tao og Elle til að viðurkenna tilfinningar sínar.
Nick og Tao lenda í slagsmálum við Harry. Charlie er hræddur um að hann sé að flækja líf Nick og spenna myndast milli vinana Charlie og Tao.
Á íþróttadegi í skólanum er Charlie á barmi þess að segja upp sambandi sínu við Nick. Tao og Elle eiga einstakt augnablik saman.
Samband Nick og Charlie verður alvarlegra og Nick veltir fyrir sér hvernig hann eigi að koma útúr skápnum fyrir Imogen sem reynist erfiðara en hann gerði sér grein fyrir. Elle reynir að daðra við Tao.
Einkunnir Charlie hafa versnað eftir að hafa byrjað með kærasta þannig að foreldrar hans setja fyrir honum strangari reglur. Tao verður afbrýðissamur þegar Elle eignast nýja vini. Eldri bróðir Nick ber enga virðingu fyrir einkalífi hans.
Nick reynir að koma útúr skápnum fyrir ruðningsvinum sínum í próflokapartýi. Tao skipurleggur hið fullkomna stefnumót. Samband Tara og Darcy verður óþæginlegt.
Í skólaferðalagi í París reyna Nick og Charlie að halda sambandi sínu leyndu. Elle og Tao bæta samband sitt í ferð á listasafn. Imogen stendur upp í hárinu á Ben.
Orðrómur fer að berast milli skólafélagana þegar Charlie vaknar upp með sogblett. Hópurinn heimsækir frægustu staði Parísar og fleiri en eitt leyndarmál kemst upp á yfirborðið.
Á síðasta degi skólaferðalagsins kynnir Nick Charlie fyrir frönskum Pabba sínum. Elle og Tao opinbera samband sitt. Sannleikurinn kemur í ljós í partýi sem er uppfullt af óvæntum atburðum.
Elle heldur stórum fréttum leyndum frá Tao. Ben þrýstir á Charlie að fyrirgefa sér. Isaac opnar sig fyrir James. Nick býður Charlie í styrtk fjölskylduboð.
Vinahópurinn kemur saman til að halda viðburðaríkan skóladansleik. En þegar það vantar einn í hópinn virka hlutirnir ófullkomnir.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.