Alaskaösp (fræðiheiti: Populus trichocarpa) er lauftré af asparættkvísl (Populus) og víðisætt (Salicaceae). Heimkynni alaskaaspar er vesturströnd Norður-Ameríku; sunnan frá Kaliforníu norður til Kenaiskaga og Kodiakeyju í Alaska.

Staðreyndir strax Populus trichocarpa, Vísindaleg flokkun ...
Populus trichocarpa
Thumb
Alaskaösp
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida
(óraðað) Rosids
Ættbálkur: Malpighiales
Ætt: Víðiætt (Salicaceae)
Ættkvísl: Populus
Geiri: Tacamahaca
Tegund:
P. trichocarpa

Tvínefni
Populus trichocarpa
Torr. & A.Gray ex. Hook.
Thumb
Útbreiðsla
Samheiti
  • Populus balsamifera subsp. trichocarpa (Torr. & A.Gray ex Hook.) Brayshaw
Loka

Alaskaöspin er með stórvöxnustu aspartegundum og nær venjulega um og yfir 30 m. Á stöðum eins og í Oregon- og Washington-fylki í Bandaríkjunum verður hún allt að 60 metra há. [1] Ársvöxtur getur orðið allt að 1 metri á ári, og greinar vaxa 40-60 cm. á ári. Tegundin kýs sér helst frjóan jarðveg með ferskan jarðraka. Alaskaöspin er ekki langlíf og er talið að hún verði yfirleitt ekki eldri en 100 ára. Alaskaöspin myndar einnig mikið af rótarskotum sem koma upp í nokkurra metra fjarlægð frá móðurplöntunni.

Laufblöðin eru egglaga. Börkur er ljósgrár eða gulgrár á ungum trjám en dökkgrár á eldri trjám. Af brumum alaskaaspar leggur sterkan balsamilm. Haustlitir alaskaaspar eru gulir. Öspin er afar fjölbreytileg að útliti og vaxtarlagi eftir kvæmum og klónum.

Tegundin er náskyld balsamösp og tæpast er hægt að sjá mun nema á reklum tegundanna.

Á Íslandi

Alaskaösp var fengin til Íslands frá Alaska að frumkvæði Hákons Bjarnasonar árið 1943 eða 1944 og var fyrst reynd sem garðtré. Elstu eintökin má finna í Múlakoti í Fljótshlíð. Tegundin er meðal hæstu trjáa á Íslandi og hefur náð tæpum 26 metrum á hæð[2]. Fram undir 1999 var hún fyrst og fremst ræktuð sem garðtré en eftir það er farið að nota hana í stórum stíl í skógrækt og skjólbeltagerð. Þó að ræktun alaskaasparinnar hafi gengið vel hér á landi virðast mjög vindasamir staðir við sjávarsíðuna og votar mýrar henta henni ákaflega illa. Hérlendis eru einkum notuð kvæmi frá Kenai skaga og Prince Williams flóa í Alaska[3] Asparryðsveppur er sjúkdómur sem leggst á ösp og hefur verið vandamál á Suðurlandi. Einnig er komin ný skordýrategund asparglytta; sem étur blöð plantna af víðiættkvísl.

Árin 2013 og 2016 hefur alaskaösp verið valin tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands.

Öspin hefur reynst góður smíðaviður og hafa hús og innréttingar verið gerðar úr henni. [4]

Tengt efni

Heimildir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.