![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f4/Vinstri_Gr%25C3%25A6n_Logo_%25282021%2529.png/640px-Vinstri_Gr%25C3%25A6n_Logo_%25282021%2529.png&w=640&q=50)
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Íslenskur stjórnmálaflokkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstrisinnuð stjórnmálahreyfing á Íslandi sem var stofnuð þann 6. febrúar 1999. Auk hefðbundinnar félagshyggju og sósíalisma á hún margt sameiginlegt með græningjaflokkum Evrópu í stefnu sinni.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð | |
---|---|
![]() | |
Fylgi | ![]() |
Formaður | Guðmundur Ingi Guðbrandsson |
Varaformaður | Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir |
Þingflokksformaður | Orri Páll Jóhannsson |
Framkvæmdastjóri | Ragnar Auðun Árnason |
Stofnár | 1999 |
Höfuðstöðvar | Túngötu 14, 101 Reykjavík |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Félagshyggja, umhverfisvernd, kvenfrelsisstefna og friðarhyggja |
Einkennislitur | grænn og rauður |
Sæti á Alþingi | ![]() |
Sæti í sveitarstjórnum | ![]() |
Listabókstafur | V |
Vefsíða | www.vg.is |
¹Fylgi í síðustu Alþingiskosningum |
Hreyfingin bauð fyrst fram í kosningum til Alþingis árið 1999 og fékk þá 6 menn kjörna en í kosningunum 2003 tapaði hún einum manni og hafði þá 5. Í Alþingiskosningunum árið 2007 jókst fylgi hreyfingarinnar verulega og fékk hún 9 þingmenn. Í Alþingiskosningunum árið 2009 voru 14 þingmenn kosnir á þing fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð. Í þingkosningum árið 2013 fékk hreyfingin 10,9% og 7 þingmenn, sem var ívið meira en kannanir höfðu gefið til kynna. Aðildarfélög hreyfingarinnar eru svæðisfélög hennar en einnig starfa innan hennar bæði Ung vinstri græn og Eldri vinstri græn. Félagar í VG eru nú um fimm þúsund talsins og er hreyfingin meðlimur Norræna Vinstri-Græna Bandalagsins.