![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Gamla_bogabr%25C3%25BAin_%25C3%25A1_Fnj%25C3%25B3sk%25C3%25A1_og_Vaglask%25C3%25B3gur.jpg/640px-Gamla_bogabr%25C3%25BAin_%25C3%25A1_Fnj%25C3%25B3sk%25C3%25A1_og_Vaglask%25C3%25B3gur.jpg&w=640&q=50)
Vaglaskógur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vaglaskógur er skógur í Fnjóskadal, Suður-Þingeyjarsýslu, einn stærsti skógur landsins. Skógurinn er þjóðskógur í umsjón Skógræktarinnar. Vaglaskógur meðal fjölsóttustu skóga á Íslandi. Stærð skóglendisins er um 4,5 ferkílómetrar. Þúsundir ferðamanna koma í skóginn á hverju ári til að njóta þar dvalar og útiveru, enda er Vaglaskógur tilvalinn til útivistar að sumri sem vetri. Í Vaglaskógi eru fjölbreyttar gönguleiðir, alls um 12,2 km að lengd. Þær eru merktar og fáanlegt er gönguleiðakort af skóginum. Í Vaglaskógi hafa lengi verið rekin tjaldsvæði og kjósa margir að dvelja þar með tjöld sín og ferðavagna yfir sumarið. Norðan við hann er Hálsskógur sem eyddist upp á fyrri öldum vegna beitar og skógarhöggs. Skógurinn komst í eigu Skógræktarinnar þegar stofnunin var sett á fót árið 1908 en nokkru áður hafði íslenska ríkið keypt jörðina Vagli og þar með skóginn. Á Vöglum er starfstöð skógarvarðarins á Norðurlandi og þar rekur Skógræktin fræræktarhús, frægeymslu og fræsölu. Einnig eru stundaðar þar rannsóknir, einkum kynbætur á nytjatrjátegundum.
![Gamla bogabrúin frá 1908 og Vaglaskógur. Myndin er tekin í júlí 2015](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Gamla_bogabr%C3%BAin_%C3%A1_Fnj%C3%B3sk%C3%A1_og_Vaglask%C3%B3gur.jpg/640px-Gamla_bogabr%C3%BAin_%C3%A1_Fnj%C3%B3sk%C3%A1_og_Vaglask%C3%B3gur.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/52/Location_of_Vaglask%C3%B3gur_within_Iceland.png/640px-Location_of_Vaglask%C3%B3gur_within_Iceland.png)
![Vaglaskógur - séð til tjaldsvæða austur yfir Fnjós](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/50/Vaglask%C3%B3gur_-_s%C3%A9%C3%B0_til_tjaldsv%C3%A6%C3%B0a_austur_yfir_Fnj%C3%B3sk%C3%A1.jpg/640px-Vaglask%C3%B3gur_-_s%C3%A9%C3%B0_til_tjaldsv%C3%A6%C3%B0a_austur_yfir_Fnj%C3%B3sk%C3%A1.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/%C3%86rslabelgur_%C3%AD_Vaglask%C3%B3gi.jpg/640px-%C3%86rslabelgur_%C3%AD_Vaglask%C3%B3gi.jpg)
![Góður dagur á tjaldsvæðunum í Vaglaskógi](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/03/G%C3%B3%C3%B0ur_dagur_%C3%A1_tjaldsv%C3%A6%C3%B0unum_%C3%AD_Vaglask%C3%B3gi.jpg/640px-G%C3%B3%C3%B0ur_dagur_%C3%A1_tjaldsv%C3%A6%C3%B0unum_%C3%AD_Vaglask%C3%B3gi.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/06/Vaglask%C3%B3gur.jpg/640px-Vaglask%C3%B3gur.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/ca/Birches%2C_Spruces_and_Pines_%283141588993%29.jpg/640px-Birches%2C_Spruces_and_Pines_%283141588993%29.jpg)