From Wikipedia, the free encyclopedia
Stafangur (norska: Stavanger) er borg í Rogaland-fylki í suður-Noregi. Íbúar sveitarfélagsins voru 135 þúsund árið 2019 en yfir 230.000 á borgarsvæðinu, en borgin nær einnig yfir Sola, Randaberg og Sandnes.
Nágrannasveitarfélög eru Randaberg og Rennesøy í norðri, Sandnes í suðri og Sola í vestri.
'Angur' merkir hér fjörður eða vík. 'Staf' er einfaldlega leitt af stafur og vísar líklega til að fjörðurinn er að mestu bugðulaus.
Stafangur liggur á meginlandi Noregs en til borgarinnar heyra einnig eyjarnar í kring. Flatarmál sveitarfélagsins alls er 67,67 km² og er hæsti punkturinn Jåttånuten eða Jóatúnshnjúkurinn, 139 m yfir sjávarmáli.
Stafangur hefur verið kölluð „olíuhöfuðborg“ Noregs, því olíufyrirtækið Statoil hefur höfuðstöðvar sínar þar. Þar er líka stórt olíusafn og öll umferð út á olíuborpallana í Norðursjó fer um Sola-flugvöll fyrir utan Stafangur.
Viking Fotballklubb er knattspyrnulið borgarinnar.
Vinabæir Stafangurs eru eftirfarandi:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.