Sigurjón Birgir Sigurðsson (fæddur 27. ágúst 1962 í Reykjavík á Íslandi ) er íslenskt skáld , þekktur undir listamannsnafninu Sjón . Hann er sonur Sigurðar Geirdal , sem var bæjarstjóri í Kópavogi í mörg ár og Áslaugar Jónínu Sverrisdóttur fyrrverandi bankastarfsmanns.[1]
Sigurjón Birgir Sigurðsson
Sjón á LitteratureXchange Festival í Árósum 2019
Hann var meðlimur í hópi listamanna sem fór undir nafni Medúsa og kenndi sig við súrrealisma .
Hann skrifaði handrit kvikmyndarinnar Regína! með Margréti Örnólfsdóttur , kom fram í heimildarmyndinni Gargandi snilld og skrifaði handrit stuttmyndarinnar Anna og skapsveiflurnar þar sem hann lék Dr. Artmann. Hann skrifaði texta fyrir flest lög kvikmyndarinnar Myrkradansarinn ásamt Björk , Mark Bell & Lars von Trier .
Sjón hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2005 fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur .
LitteratureXchange Festival í Árósum 2019 Ljósmyndir Hreinn Gudlaugsson
1978 Sýnir: yrkingar
1979 Madonna
1979 Birgitta (hleruð samtöl)
1981 Hvernig elskar maður hendur
1982 Reiðhjól blinda mannsins
1983 Sjónhverfingabókin
1985 Oh!: (isn't it wild)
1986 Leikfangakastalar sagði hún það er ekkert til sem heitir leikfangakastalar
1986 Drengurinn með röntgenaugun (ljóðasafn 1978-1986) (Mál og menning, Reykjavík)
1987 Stálnótt (Mál og menning , Reykjavík)
1989 Ævintýri Tinnu og Hreins Borgfjörð 1937 (ásamt Þorra Hringssyni )
1989 Engill, pípuhattur og jarðarber (Mál og menning, Reykjavík)
1991 Ég man ekki eitthvað um skýin (Mál og menning, Reykjavík) ISBN 9979-3-0252-6
1994 Augu þín sáu mig (Mál og menning, Reykjavík) ISBN 9979-3-1954-2 ,
1995 Sagan af húfunni fínu
1998 Myrkar fígúrur
2000 Númi og höfuðin sjö
2001 Með titrandi tár (Mál og menning, Reykjavík) ISBN 9979-3-2242-X
2002 Sagan af furðufugli (Mál og menning, Reykjavík) ISBN 9979-3-2342-6
2003 Skugga-Baldur (Bjartur , Reykjavík) ISBN 9979-774-43-6
2005 Argóarflísin (Bjartur, Reykjavík) ISBN 9979-788-24-0
2007 Söngur steinasafnarans (Bjartur, Reykjavík) ISBN 978-9979-788-96-6
2008 Rökkurbýsnir (Bjartur, Reykjavík)
2013 Mánasteinn (JPV, Reykjavík)
2015 Gráspörvar og ígulker (JPV, Reykjavík)
2016 Ég er sofandi hurð (JPV, Reykjavík)
2019 Korngult hár, grá augu (JPV, Reykjavík)
1995 Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Augu þín sáu mig
1998 Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins
2002 Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Með titrandi tár
2005 Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs : Skugga-Baldur .
2013 Verðlaun starfsfólks bókaverslana: Mánasteinn: drengurinn sem var aldrei til (besta íslenska skáldsagan)
2013 Íslensku bókmenntaverðlaunin: Mánasteinn: drengurinn sem var aldrei til
2013 Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Mánasteinn: drengurinn sem var aldrei til
2016 Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Ég er sofandi hurð [2]
Bokmenntaborgin.is, „Sjón“ (skoðað 17. nóvember 2019)