Samóa
From Wikipedia, the free encyclopedia
Samóa eða Samóaeyjar (áður Vestur-Samóa) er eyríki og eyjaklasi í Suður-Kyrrahafi. Áður var ríkið þekkt sem Þýska Samóa frá 1900 til 1914 og síðan Vestur-Samóa frá 1914 til 1997. Í eyjaklasanum eru tvær stórar eyjar, Upolu og Savai'i, sem saman mynda 96% af flatarmáli eyjanna, og sjö smáeyjar. Höfuðborgin Apía og Faleolo-flugvöllur eru á eyjunni Upolu.
Sjálfstæða ríkið Samóa | |
Malo Sa'oloto Tuto'atasi o Samoa Independent State of Samoa | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Faavae i le Atua Samoa (samóska) Samóa er grundvallað á guði | |
Þjóðsöngur: O Le Fuʻa O Le Saʻolotoga O Samoa | |
Höfuðborg | Apía |
Opinbert tungumál | samóska og enska |
Stjórnarfar | Lýðræði |
O le Ao o le Malo | Va'aletoa Sualauvi 2. |
Forsætisráðherra | Naomi Mata'afa |
Sjálfstæði | |
• frá Nýja-Sjálandi | 1. janúar 1962 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
167. sæti 2.842 km² 0,3 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
176. sæti 202.506 70/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2018 |
• Samtals | 1,188 millj. dala (178. sæti) |
• Á mann | 5.962 dalir (129. sæti) |
VÞL (2019) | 0.715 (111. sæti) |
Gjaldmiðill | samósk tala (WST) |
Tímabelti | UTC+13 |
Þjóðarlén | .ws |
Landsnúmer | +685 |
Elstu merki um menn sem fundist hafa á eyjunum eru taldar vera frá því fyrir um 3000 árum. Menningartengsl voru milli Samóa, Fídjieyja og Tonga. Fyrstu Evrópumennirnir komu til eyjanna á 18. öld. Franski landkönnuðurinn Louis-Antoine de Bougainville nefndi eyjarnar Stýrimannseyjar árið 1768 vegna siglingafærni íbúanna. Það var þó ekki fyrr en á 4. áratug 19. aldar að enskir trúboðar tóku að gera sig heimakomna á eyjunum. Skoski rithöfundurinn Robert Louis Stevenson bjó þar síðustu árin sem hann lifði og er grafinn þar. Rétt áður hófu Þjóðverjar verslun þar með kopra og kakóbaunir. Þegar Fyrsta samóska borgarastyrjöldin braust út 1886 studdu Þjóðverjar, Bretar og Bandaríkjamenn hverjir sína fylkinguna. Eftir að fellibylur sökkti öllum herskipum landanna við Samóa árið 1889 hættu bardagar. Á ráðstefnu um Samóadeiluna árið 1899 tóku Bandaríkin sér yfirráð yfir Tutuila og öðrum eyjum austan við 171. lengdargráðu, sem urðu Bandaríska Samóa, en eyjarnar vestan við urðu þýskt yfirráðasvæði, Þýska Samóa. Bretland gaf eftir allar kröfur sínar til eyjaklasans í skiptum fyrir aukin yfirráð annars staðar í Kyrrahafi. Íbúar hófu fljótlega andspyrnu gegn yfirráðum Þjóðverja og í upphafi fyrri heimsstyrjaldar hernámu Nýsjálendingar eyjarnar. Íbúar börðust líka gegn yfirráðum Nýja-Sjálands og ellefu létust þegar nýsjálenska lögreglan skaut á friðsama mótmælendur árið 1929. Samóa varð sjálfstætt ríki undir nafninu Vestur-Samóa árið 1962 en breytti nafninu árið 1997 í Samóa. Árið 2011 var ákveðið að flytja Samóa yfir daglínuna með því að fella 30. desember það ár niður. Þannig varð Samóa þremur tímum á undan Nýja-Sjálandi en var áður 21 tíma á eftir.
Íbúar Samóa eru tæplega 200 þúsund og þar af búa rúm 130 þúsund á Upolu. Á þingi Samóa sitja 49 fulltrúar, þar af 47 höfðingjar (matai), hver frá sínu umdæmi. Efnahagur Samóa byggist á landbúnaði (aðallega ræktun kókospálma og kakóbauna), þróunaraðstoð og peningasendingum brottfluttra íbúa. Helstu viðskiptalönd Samóa eru Nýja-Sjáland, Ástralía og Fídjieyjar. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein.