![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/38/Sierra_Leone_%2528orthographic_projection%2529.svg/langis-640px-Sierra_Leone_%2528orthographic_projection%2529.svg.png&w=640&q=50)
Síerra Leóne
land í Vestur-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Síerra Leóne er land í Vestur-Afríku með strönd að Atlantshafi og landamæri að Gíneu í norðri og Líberíu í suðri. Nafnið kemur úr portúgölsku og merkir „Ljónafjöll“. Höfuðborgin, Freetown, var stofnuð af frelsuðum þrælum frá Nova Scotia árið 1792.
Republic of Sierra Leone | |
![]() |
![]() |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unity - Freedom - Justice (enska) Eining, frelsi, réttlæti | |
Þjóðsöngur: High We Exalt Thee, Realm of the Free | |
![]() | |
Höfuðborg | Freetown |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Forsetalýðveldi |
Forseti | Julius Maada Bio |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 27. apríl 1961 |
• Lýðveldi | 19. apríl 1971 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
117. sæti 71.740 km² 1,1 |
Mannfjöldi • Samtals (2023) • Þéttleiki byggðar |
100. sæti 8.908.040 112/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2022 |
• Samtals | 16,4 millj. dala (152. sæti) |
• Á mann | 1.972 dalir (185. sæti) |
VÞL (2021) | ![]() |
Gjaldmiðill | leóne |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .sl |
Landsnúmer | +232 |
Nafnið kemur frá portúgalska landkönnuðinum Pedro de Sintra sem sigldi til landsins árið 1462 og nefndi það Serra Leoa. Ströndin varð ein af miðstöðvum þrælaverslunar á Atlantshafi. Þann 11. mars 1792 var borgin Freetown stofnuð af Síerra Leóne-félaginu og byggð þrælum sem höfðu fengið frelsi innan Breska heimsveldisins. Þangað fluttust því fyrrum þrælar frá ýmsum heimshornum og öðrum hlutum Afríku. Árið 1808 varð Freetown bresk krúnunýlenda og 1896 varð landið allt breskt verndarsvæði. Landið fékk sjálfstæði árið 1961. Við tók pólitískur óstöðugleiki með herforingjabyltingum og síðan flokksræði um langt skeið. Árið 1991 braust út blóðug borgarastyrjöld sem stóð til ársins 2002 þegar breski herinn tók þátt í að koma á vopnahléi milli stríðandi fylkinga. Breski herinn er enn í landinu.
Menning Síerra Leóne er fjölbreytt og íbúar tilheyra um sextán þjóðarbrotum sem hvert hefur sitt tungumál og sína siði. Stærstu hóparnir eru temnar og mendar. Opinbert tungumál er enska en 90% íbúa talar kríómál, kreólamál sem byggist á ensku og afrískum málum. Meirihluti íbúa er múslimar en um fjórðungur aðhyllist kristni.
Efnahagur Síerra Leóne byggist að mestu á námavinnslu, einkum á demöntum, títani, báxíti og gulli. Þrátt fyrir náttúruauðlindir lifa 70% landsmanna við fátækt.
Barnadauði og mæðradauði í Síerra Leóne eru með því mesta í heimi.