Portúgal
land á vesturströnd Íberíuskaga Suðvestur-Evrópu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lýðveldið Portúgal (portúgalska: República Portuguesa), er land í Suðvestur-Evrópu á vesturströnd Íberíuskagans. Portúgal á landamæri að Spáni og strönd þess liggur að Atlantshafi. Nokkrir eyjaklasar á Atlantshafi tilheyra einnig Portúgal, þeirra stærstir eru Azoreyjar og Madeira.
Lýðveldið Portúgal | |
República Portuguesa | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Pelo bem da Nação (portúgalska) Þjóðinni til heilla | |
Þjóðsöngur: A Portuguesa | |
Höfuðborg | Lissabon |
Opinbert tungumál | Portúgalska |
Stjórnarfar | Þingræði |
Forseti | Marcelo Rebelo de Sousa |
Forsætisráðherra | Luís Montenegro |
Sjálfstæði | |
• Stofnun | 868 |
• Endurstofnun | 1095 |
• Fullveldi | 24. júní 1128 |
• Konungsríki | 26. júlí 1139 |
• Viðurkennt | 5. október 1143 |
• Viðurkennt af páfa | 23. maí 1179 |
• Endurreist | 1. desember 1640 |
• Lýðveldi | 5. október 1910 |
• Endurheimt lýðræðis | 25. apríl 1974 |
• Núverandi stjórnarskrá | 25. apríl 1976 |
Evrópusambandsaðild | 1. janúar 1986 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
109. sæti 92.212 km² 1,2 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
89. sæti 10.298.252 114,5/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 370,5 millj. dala (52. sæti) |
• Á mann | 36.079 dalir (38. sæti) |
VÞL (2019) | 0.864 (38. sæti) |
Gjaldmiðill | evra € |
Tímabelti | UTC (+1 á sumrin) |
Þjóðarlén | .pt |
Landsnúmer | +351 |
Á 15. og 16. öld var Portúgal efnahagslegt, stjórnmálalegt og menningarlegt stórveldi þegar yfirráðasvæði þess teygði sig um allan heiminn. Veldi þessu hnignaði hins vegar nokkuð hratt eftir að önnur nýlenduveldi komu til sögunnar.
Portúgal dagsins í dag á rætur sínar að rekja til byltingar árið 1974, þegar einræðisstjórn landsins var steypt af stóli. Frá því landið gekk í Evrópubandalagið (nú Evrópusambandið) árið 1986 hafa framfarir í landinu verið miklar, þrátt fyrir að það sé enn annað tveggja fátækustu landa í Vestur-Evrópu.