![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/HomelessParis_7032101.jpg/640px-HomelessParis_7032101.jpg&w=640&q=50)
Fátækt
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fátækt eða örbirgð er efnahagslegt ástand skorts. Mikill stigsmunur getur verið á meiningu orðanna eftir samhengi. Þannig er það bæði notað kæruleysislega í dags daglegu tali en einnig til þess að lýsa ójöfnuði milli þjóðfélagsstétta eða mismunandi þjóða.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/HomelessParis_7032101.jpg/640px-HomelessParis_7032101.jpg)
Fátækt er mjög umdeilt hugtak sem erfitt er að gera góð skil. Gerður er greinarmunur á algildri fátækt og afstæðri fátækt. Algild fátækt nefnist það þegar viðkomandi líður fyrir skort á lífsnauðsynjum svo sem mat, vatni eða húsakynnum. Afstæð fátækt, eðli sínu samkvæmt, er til staðar hvar sem efnahagsstaða hópa er borin saman.[1] Í þeim tilvikum getur vöntun á heilbrigðisþjónustu, menntun, fötum eða jafnvel farartækjum verið dæmi um það sem greinir á milli ríkra og fátækra.