Íslam
From Wikipedia, the free encyclopedia
Íslam (arabíska الإسلام al-islām framburðurⓘ), einnig nefnt múhameðstrú, er eingyðistrú og er guð þeirra nefndur Allah á arabísku og rekur uppruna sinn til arabíska spámannsins Múhameðs sem var uppi á 6. og 7. öld eftir Krist. Fylgjendur íslams kallast múslimar. Íslam er af abrahamískum stofni og talin næst fjölmennustu trúarbrögð heims á eftir kristni. Í samanburði við önnur trúarbrögð á íslam einna mest skylt við kristni og sækir ýmislegt til gyðingdóms þar sem lifað er eftir reglum svo sem hvað varðar matarvenjur, föstu á ákveðnum tímum, umskurn á kynfærum, reglulegar bænir og fleira. Margir trúarsiðir í íslam eru upprunnir úr heiðnum trúarbrögðum araba frá því fyrir tíma Múhameðs. Íslam er ekki einungis trúarbrögð heldur er þeim oft lýst sem allsherjar lífsreglum sem taka til allra þátta lífs múslima, bæði félagslegra, efnahagslegra, siðferðislegra og andlegra.[1] Stjórnskipan, réttarfar, löggjöf, refsingar og almennar lífsvenjur múslima taka mið af trúartextum íslams og lífi spámannsins Múhameðs.
Deilt er um hlutleysi þessarar greinar. Aðalvandamál þessarar greinar: sjá spjallsíðu. Vinsamlegast ekki taka út merkið fyrr en deila er til lykta leidd |
Íslam er stundum nefnd múhameðstrú á íslensku. Samsvarandi heiti voru notuð í flestum Evrópumálum en eru nú óðum á undanhaldi. Ástæðan er sú að múslimar (fylgjendur íslam) álíta hugtakið „múhameðstrú“ villandi þar sem Múhameð er spámaður en ekki Guð.