Perú
ríki í Suður Ameríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Perú er land í vesturhluta Suður-Ameríku, með landamæri að Ekvador og Kólumbíu í norðri, Brasilíu í austri, Bólivíu í austri, suðaustri og suðri og Chile í suðri. Í vestri liggur landið að Kyrrahafinu.
Lýðveldið Perú | |
República del Perú | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Firme y feliz por la unión (spænska) Staðfastur og hamingjusamur fyrir sambandið | |
Þjóðsöngur: Himno Nacional del Perú | |
Höfuðborg | Líma |
Opinbert tungumál | spænska (quechua og aymara sumstaðar opinbert tungumál) |
Stjórnarfar | Forsetalýðveldi |
Forseti | Dina Boluarte |
Varaforseti | Enginn |
Forsætisráðherra | Alberto Otárola |
Sjálfstæði | frá Spáni |
• Yfirlýst | 28. júlí 1821 |
• Staðfest | 9. desember 1824 |
• Viðurkennt | 14. ágúst 1879 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
20. sæti 1.285.216 km² 0,41 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
41. sæti 32.824.358 23/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 505,450 millj. dala (36. sæti) |
• Á mann | 15.399 dalir (85. sæti) |
VÞL (2018) | 0.763 (82. sæti) |
Gjaldmiðill | sol |
Tímabelti | UTC-5 |
Þjóðarlén | .pe |
Landsnúmer | +51 |
Í Perú stóð Norte Chico-menningin, elsta fornmenning Ameríku, frá 30. öld f.Kr. til 18. aldar f.Kr. Þar var líka vagga Inkaveldisins þar til Francisco Pizarro lagði það undir Spán 1532 til 1536. Síðasti Inkaleiðtoginn, Túpac Amaru var þó ekki drepinn fyrr en 1572. Spænska heimsveldið gerði Perú að varakonungsdæmi með Líma sem höfuðborg. Þaðan var öllum nýlendum Spánar í Suður-Ameríku stjórnað. Landið fékk sjálfstæði í kjölfar herfara José de San Martín og Simón Bolívar árið 1821. Um miðja 19. öld batnaði efnahagur landsins vegna útflutnings á gúanói en það gekk til þurrðar um 1870. Perú beið ósigur fyrir Chile í Kyrrahafsstríðinu 1879-1883. Eftir heimskreppuna 1930 skiptust borgaralegar stjórnir og herforingjastjórnir á að fara með völd. Eftir 1979 hefur lýðræði verið virkt en á sama tíma hafa staðið yfir hörð innanlandsátök vegna starfsemi eiturlyfjahringja og skæruliðasamtaka á borð við Skínandi stíg og Byltingarhreyfinguna Túpac Amaru.
Íbúar Perú eru rúmlega þrjátíu milljónir og þar af búa tæplega þrjár milljónir í höfuðborginni, Líma. Spænska er opinbert tungumál landsins þótt frumbyggjamálin quechua og aymara njóti einnig opinberrar stöðu. Yfir 80% íbúa eru rómversk-kaþólskir. Um helmingur starfa er í þjónustugeiranum en helstu útflutningsvörur landsins eru málmar á borð við kopar, sink og gull, auk jarðolíu.