Francisco Pizarro
From Wikipedia, the free encyclopedia
Francisco Pizarro y González (16. mars 1478 – 26. júní 1541) var spænskur landvinningamaður sem lagði undir sig Inkaveldið og stofnandi borgarinnar Líma í Perú. Hann var frændi Hernán Cortés, fæddist í Trujillo á Spáni og ferðaðist fyrst til Vestur-Indía árið 1502. 1513 fylgdi hann Vasco Núñez de Balboa yfir Panamaeiðið að strönd Kyrrahafsins. Í Panama gerðist hann nautgripabóndi.